Nýja dagblaðið - 13.10.1936, Side 2

Nýja dagblaðið - 13.10.1936, Side 2
2 N Y J A DAtíBLAÐlÐ Rasputín Straumur atvikanna í mann- legu lífi getur gerzt lítt skilj- anlegur. Þar sem hann rýfur virkisveggi þess ramma, er um- lykur mannvitið sjálft, verður hann óskynhæfur. Eitt furðulegasta fyrir- brigði í mannkynssögunni eru án efa þau atvik, er fundu sér stað í veldi Rússakeisara, kringum upphaf heimsstyrjald- arinnar miklu, í sambandi við þá persónu, er bar gerfinafnið Rasputin. Nafnið Rasputin þýðir; „Gerðu aldrei gott son- ur“. — Hver einasta hugsun, athöfn og allt hans líf, var greypt í mót þeirrar hugsunar. Saga Rasputins er saga rúss- nesks bónda, er fær breiddar út kynjasögur um kraftaverk sín, skrýðist munkakufli og verður höfundur nýrra trúar- bragða. Kjarni trúarbragða Lans er um fullnægingu holds- ins. Hann vinnur í trúarbragða- flokk sinn eingöngu konur í sínu umhverfi upphaflega, sem var þorp við Norðuríshafið. — Þaðan tekst honum að komast til Pétursborgar, sem munkur- inn „Gríska“. Hann nær mikl- um völdum í kirkjunni. Kemst í kynni við fjölda hæstsettra kvenna úr aðli Pétursborgar, en það var vegurinn til keis- arafjölskyldunnar. Gerir hann kraftaverk á veikum prinzinum. Nær dauðahaldi á tilfinning- um drottningarinnar, keisarans og prinzessunnar, auk kvenna úr aðalsstétt. — Verður einvaldur í hinu rússneska keisaradæmi, — en um leið hat- rammasti fjandmaður þess. — Hann er erindreki Vilhjálms Þýzkalandskeisara í ófriðnum mikla og breytir eftir hans persónulegu fyrirmælum. Á furðulegasta hátt fær Ras- putin með valdboðum fram komið morðum og tortímingu þeirra embættismanna ríkisins, er unnu hag þess, og sömu meðferð hlutu ötulustu rúss- nesku herforingjamir. Hann lagði á ráðin til að eyðileggja rússneskai’ vopnaverksmiðjur. Gerir djöfullegar tilraunir með, að breiða út drepsóttir, svo sem kóleru o. fl. meðal hins lússneska fólks. Menn skyldu lesa þessa bók. Með því að athuga þann grundvöll, sem Rasputin-veldi Rússlands varð til á, sem gaf því líf og athafnamöguleika, þá kemur í ljós, að Rasputin- isminn er árangur takmarka- lausrar félagsspillingar. Iíann stiklaði upp í æðsta valdasess Rússlands á helsjúkum tilfinn- ingum, á úrgangi þess elds er auðlegðin, athafnaleysið og sið- leysið kyndir í sálunum ann- arsvegar og hinsvegar tilfinn- ingum múgsins, sem örbirgð- ín og eymdin hefir fryst til heljar. — Hvorttveggja mætist á botni þjóðfélags- ins og verður sameiginlegur grundvöllur fyrir veldi Raspu- tin-ismans. Það er sannarlega mikilsvert að fá þessa bók til lesturs. Hún er hvorttveggja: skemmtileg aflestrar, málsins vegna, hit- andi, sem hún á átakanlögan hátt gefur ljóslifandi mynd af binum ömurlegasta dapurleik þess, sem mannleg vera getur alið við brjóst sér. Jóhannes G. Helgason. w A skaulum eða kaSiíhúsí Síðastliðinn vetur gekkst Knattspyrnufél. Fi’am fyrir því að koma á skautasvelli á Aust- ' urvelli, til afnota fyrir bæjar- ; búa og var það mikil fyrirhöfn | og kostnaðarsamt fyrir félagið. Oft urðu félagsmenn að leggja mikla vinnu á sig við að hreinsa skautasvellið, þegar hætt var að nota það á kvöldin og einnig við að sprauta á það, þegar þess þui’fti með. En þrátt fyrir : þessa miklu fyrirhöfn, er fé- ; lagsmenn urðu að leggja á sig, ! eru þeir reiðubúnir til að gera það aftur nú í vetur, og hafa | sótt um leyfi til bæjarráðs Reykjavíkur, til þess að mega gera skautasvell á Austurvelli eins og síðastliðinn vetur. Er vonandi að bæjarráðið sjái sér fært að verða við þeirri beiðni i Ríkustu Íeíkarar í Hollywood Yfirvöldin í Hollywood hafa nýverið gefið út skrá yfir tekj- ur og eignir þær, sem borg- aramir í staðnum hafa gefið upp. Kom þá í ljós, að Charlie Chaplin var auðugasti maður þessa kvikmyndabæjar. Hann taldist að eiga 10 millj. krón- ur s. 1. ár. Af leikkonum þar, er Mary Pickford efst á blaði. Hún er hálfdrættingur á við Chaplin, á 5 millj., því næst koma smærri spámenn, sem ekki eru eins efnum búnir. Þó eru tekjur þeirra og eign- ir all-verulegar. Þannig á Har- ald Lloyd gimsteina uþp á 120 þús. kr. Tom Mix á skraut- gripi, sem virtir eru á 30 þús- und og Joan Crawford skart fyrir 40 þús. kr. H. Lloyd á auk þess innbú fyrir 300 þús. krónur. félagsins, því svo mikla gleði veitti það bæjarbúum síðastlið- inn vetur, bæði ungum og göml- um. Miklar þakkir á Knatt- spyrnufélagið Fram skilið fyrir íramtakssemi sína með að taka þettað mál í sínar hendur með jafnmikilli fyrirhyggju og dugnaði eins og það hefir gert. Oft var ánægjulegt að koma niður að Austurvelli á kvöldin og sjá þar fleiri hundruð manna, unga og gamla, renna sér fagurlega á skautum undir góðum hljóðfæraslætti. Lífs- gleði, þróttur og ánægja skein út úr hverju andliti. Það var einhver munur að sjá unga fólkið fara heim til sín á kvöld- in rjótt, sællegt, og þægilega þreytt, eftir skautaerfiðið, heldur en að sjá það fara heim til sín af bíóunum eða kaffi- húsunum, því það var reynsla síðastliðinn vetur, að þegar skautasvell var á Austurvelli, voru bíóin og kaffihúsin tóm. Bæjarráð Reykjavíkur sýnir væntanlega hug sinn til íþróttamálanna og leyfir knatt- spyrnufélaginu Fram að gera skautasvell á Austurvelli í vet- ur, ef mögulegt er. Skautamaður. íí Rjómabássm jör frá Akureyri, Sauðárkróki og Húgavík alltaf til nýtt og gott, í V* kg. stykkjum, 5 kg. pinklum og kútuin á 25 og 50 kg. Samband isl. Samvinnuféiaga gimi1080 Háryötn A.V.R. Eau de Portugal Eau de Cologue Eau de Quinine Bay Rhum ísvatn. Reyníð pað og sanniærist um gæðin. Smekklegar umbúðir. Sanngfarnt verð. ■ x Afengisverzlun r í k i si n s. fer annað kvöld vestur og norðúr Aukahafinirs Stykkishólmur Flatey Pat.ieksfjörður og Þingeyri, Húðir og skinn Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar hÚðÍP og skínn, sem falia til á heimilum þeirra ættu þeir að biðja kaupfélag sitt að koma þesaum vörum í verð. — Samband ísl. samvinnufélaga seiur nautgripahúðip, hposshúðíp, kálfskinn, lambskinn og selskinn til út- landa og kaupip þessap vöpup Hl súfunnp. — Nauf- gpipahúðip, hposshúðip Og kálfskinn er bezt að salta, en gera verður það strax að lokinni slátrun. Fláningu verður að vanda sem bezt og þvu óhreinindi og blóð af skinnunum, bæði úr holdrosa og hári, áður en saltað er. Góð og hreinleg meðferð, á þessum vörum sem öðrum, borgar sig. Tíl brúðargjafa — Til tækifærisgjafa Postulín — Kristall — Nýtísku Karamikvörur. K. Einarsson & Björnsson Bankastræti 11.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.