Nýja dagblaðið - 15.01.1937, Qupperneq 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
TJ tlönd.
Merkasti viðburð-
ur ársins, sem leið
Þekktasti blaðamaður Dana í
utanríkismálum, Nic. Blædel,
segir m. a. í hugleiðingum sín-
um um áramótin:
„1 Leamington-ræðunni 20.
nóvember lýsti Eden utanríkis-
málaráðheiTa því yfir, að enski
herinn væri reiðubuinn til að
verja Frakkland og Belgíu, ef
á þau væri ráðizt, án tilefnis
af þeirra hálfu.
Þessi yfirlýsing gekk lengra
en nokkur önnur fyrri. Það var
slík yfirlýsing, sem enski u'tan-
ríkismálaráðherrann Edward
Grey neitaði að gefa á árunum
fyrir heimsstyrjöldina, enda
þótt nánasti samstarfsmaður
hans í utanríkismálaráðuneyt-
inu, Arthur Nicolson, færi
stöðugt fram á það. Sonur
hans, Harold Nicolsson, segir í
endurminningum sínum m. a.
eftirfarandi um föður sinn:
„I tíma og ótíma lagði hann
fast að Sir Edward Grey að
gefa öðrum þjóðum það til
kýnna svo ekki yrði um villst,
hvar við raunverulega stæð-
um“. Því „hann vissi að Þýzka-
iand, sökum vöntunar á póli-
tískri ímyndunargáfu, myndi
aðeins taka mark á áþreifan-
I legum staðreyndum. Svo lengi
í sem aðstaða okkar til Frakk-
i lands og Rússlands væri ekki
nákvæmlega skilgreind, myndi
j Þýzkaland stöðugt standa í
þeirri von, að geta sprengt
bandalag þessara þjóða með
ofbeldi".
Þessi yfirlýsing, sem Grey
vildi aldrei gefa og sem fransk-
ir stjórnmálamenn hafa stöð-
ugt leitað eftir síðan heims-
styrjöldinni lauk, liggur nú
i loksins fyrir.
Til viðbótar hefir svo komið
irönsk yfirlýsing. Hinn 4. des-
ember iét Delbos utanríkis-
málaráðherra svo ummælt í
f ulltrúadeildinni:
1 „I nafni ríkisstjórnarinnar
i iýsi ég því yfir, að öll hemað-
| artæki Frakklands á landi, sjó
i og í lofti verða notuð sjálf-
krafa og samstundis til hjálpar
Stóra-Bretlandi og á það verð-
ur ráðizt að fyrra bragði“.
Sjálfkrafa og samstundis —
w w
A Alftanes
verða framvegis áætlunarferðir með vögnum okk-
ar á miðvikudögum, laugardögum og sunnudögum:
Frá Lækjartorgi kl. 10 árdegis og 7 síðdegis.
Frá Bjarnastöðum kl. 11 árd. og 8 síðd,
Fyrsta ferð á morgun kl. 10 árdagis frá Lækj-
artorgi,
Strætfsvagnar Reykjavikur.
* Allt með íslenskuin skipum! *
eða m. ö. o. án þess að bíða
eftir úrskurði Þjóðabandalags-
ins og þeirri töf, sem gæti or-
sakað hættulegar afleiðingar af
loftárásum.
Ensku blöðin tóku yfirlýs-
ingu Delbos einum rómi með
mikilli ánægju. „Nýtt tímabil
er hafið- í sambúð Breta og
Frakka“, sagði Times (7. des.).
„öruggt varnarbandalag milli
Stóra-Bretlands og Frakklands
er orðið veruleiki“, sagði
Manchester Guardian (5. des-
ember) “.
í nýárshugleiðingum heims-
blaðanna eru þessar yfirlýsing-
ar Edens og Delbos gerðar að
umtalsefni og mörg blöðin álíta
þær þann viðburð ársins I93fi,
sem mesta þýðingu muni hafa
fyrir framtíðina, því ex slíkar
yfirlýsingar hefðu legið fyrir
1914, myndu Þjóðverjar senni-
lega aldrei hafa stofnað til
heimsstyr j aldarinnar.
Ennþá
er til:
Hvítkál á 0,60 kg-
Sítrónur - 0,20 kg>
Pöntunarfél.
Yerkamanna
Skólavörðusfíg 12
Sími 2108.
Grettisgöiu 46
Simi 4671.
Tilkynning.
Sökum mjög mikillar aðsóknar, hefir stjórn
Sjúkrasamlagsins ákveðið, að þeir trygg-
ingarhæfir samlagsmenn, sem greiða upp
fyrir lok þessa mánaðar iðgjöldin fyrir
mánuðina júlí—des. s.L, skuli frá greiðslu-
degi njóta fullra réítinda tryggðra sam-
lagsmanna, Að öðru leyti gilda framvegis
um iðgjaldagreiðslur þær reglur, er áður
hafa verið auglýstar.
Reykjavfk, 14. janúar 1937.
Sjúkrasamlagf Reykjavíkur-
Fóðurvörur
beztar ódýrastar
Fóðurblanda
Síldarmjöl
KarSamjöl
Hænsnakorn
Hænsnamjöl (varpfóður)-
Samband isl. samvinnufélaga
Simi 1080.
Tilkynning irá éldra S. R.
Vegna endanlegra reikningsskila eldra S. R. er þess öskaö
að allir þeir, er telja til skuldar hjá því, hafl sent reikninga sína
á skrifstofu þess, Bergstaðastræti 3, fynr 25. þ. m. Og verða þeir
reikningar, sem þá eru fram kornnir, greiddir svo fljótt sem auð-
ið er.
S t j ó r n i n.
Frá öðrum löndum
Rúmenia ogFrakkland
Hinn nýi utanríkisráðherra í
Rúmeníu, Antonescu, heimsótti
frönsku stjómina um miðjan
síðastl. mánuð. Átti hann lang-
ar viðræður bæði við Blum og
Delbos. í viðtali við Paris-Soir
lýsti hann því yfir, að vinskap-
ur Frakka og Rúmena myndi
aukast að sama skapi og stríðs-
hættan ykist.
Það er gert ráð fyrir, að
árangur þessarar heimsóknar
hafa m. a. orðið sá, að Frakk-
ar muni veita Rúmenum stórt
lán til að auka vígbúnað sinn
með svipuðum hætti og þeir
veittu Pólverjum vígbúnaðar-
lán á síðastl. hausti.
I sumar var búizt við því að
vinskapur Frakka og Rúmena
myndi kólr.a eftir að hinn mikli
Frakkavinur Titelescu, lagði
iiiður störf utanríkisráðherra.
Kröfur Ungverja um að fá aft-
ur það land, sem tekið var af
þeim í heimsstyrjöldinni og
sem hlotið hafa hlýlegar und-
irtektir í Þýzkalandi og Italíu,
hafa orðið til þess að Rúmen-
um hefir fundizt öruggara að
hailda áfram sambandinu við
Frakka.
Hætfulegar gíffíngar
í Bandaríkjunum hafa ný-
lega vakizt upp giftingarmál,
sem hafa komið af stað nærri
því meira umtali í blöðunum
þar en sjálf ástamál Játvarð-
ar VIII.
William Bullit heitir núver-
andi sendiherra Bandaríkjanna
í Moskva. Hann hélt veizlu
snemma í síðastl. mánuði og
bauð þangað öllum starfsmönn-
um sínum, ásamt frúm þeirra.
I ræðu, sem hann hélt í veizl-
unni, sagði hann að hún minnti
á nokkurskonar þjóðabanda-
’agsfund. Ekki einn einasti af
starfsmönnum sendisveitarinn-
ar hefði gifzt konu af amerísk-
um ættum. Þeir hefðu allir
valið sér lífsförunaut frá fram-
andi þjóðum.
Þessi ræða varð fljótlega að
umtalsefni í amerísku blöðun-
um, og flest þeirra héldu því
fram, að slíkar giftingar gætu
verið meira en vafasamar, því
liagsmunir erlendra þjóða ættu
nieiri ítök í þessum konum en
liagsmunir Bandaríkjanna, og
það gæti verið hættulegt,
þar sem þær hefðu aðstöðu til
að komast eftir ýmsum leynd-
armálum.
Eitt blaðið birti skýrslu um
það, að af 683 helztu starfs-
mönnum í hinum ýmsu sendi-
sveitum Bandaríkjanna, væru
127, eða 18%, giftir erlendum
konum, og af 724 starfsmönn-
xim, sem gegndu lægri embætt-
um við sendisveitimar, væru
202 giftir konum úr framandi
löndum.
Umræður blaðanna hafa orð-
ið það áhrifamiklar að utanrík-
ismálaráðherrann, Mr. Hull,
hefir lofað að taka máiið til
athugunar.
Hátekfur í Ameríku
Samkvæmt skattaskýrslum
Bandaríkjanna vom þaí 1934
33 menn, sem höfðu meira en
eina millj. $ í tekjur eða 480
færri en fimm árum áður. Sá
tekjuhæsti hafði 5 millj. doll-
ara í árstekjur. Þessir 33 menn
hafa 6% af öllum skattskyld-
um tekjum í Bandaríkjunum.
Fimmtán þeirra búa í New
York. 100 þús. Bandaríkja-
menn hafa frá 10.000—25.000
dollara í árstekjur.
Greta Garbo
Amerísk blöð segja, að Greta
Garbo sé orðin svo heilsuveil,
að hún muni hafa ákveðið að
hætta allri leikstarfsemi í apríl-
lok. Áður lýkur hún aðalhlut-
verkinu í einni nýrri Napo-
leons-mynd, „Madame Wal-
ewska“ og verður það sam-
kvæmt þessu seinasta myndin,
sem hún leikur í. Myndatakan
á að standa yfir frá 15. jan. til
30. apríl.
„Greta Garbo hefir sagt
kunningjum sínum“, segir ei'tt
blaðið, „að hún þoli ekki leng-
ur hið íburðarmikla yfirborðs-
líf í Hollywood. Hún vill verða
aftur< óbreytt manneskja —
ekki lengur nein stjama eða
„jiúmer".
Garbo er nú þrítug að aldri.
Síðastl. ár hafði hún 2 millj.
kr. í tekjur.
Svíar vonast eftir því, að hún
setjist að í heimalandi sínu, ef
hún hættir leikstarfsemi.
Syxaír Zamora
með stjórnmai
Fyrverandi forseti Spánar,
Zamora, sem kom hingað til
Reykjavíkur síðastl. sumar,
dvelur nú í París. Nýlega fóru
tveir synir hans þaðan til Spán-
ar til að berjast í liði stjóm-
arinnar. Er annar þeirra sósía-
listi og hinn kommúnis'ti. —
Faðir þeirra snéri sér til
frönsku lögreglunnar og bað
hana að stöðva ferð þeirra. En
samkvæmt frönskum lögum
skorti hana heimild til þess og
varð því ekki af því. Báðir
bræðurnir eru nú komnir til
Valencia.