Nýja dagblaðið - 08.04.1937, Page 2
2
N Ý 3 A
DAGBLAÐIÐ
Happdrætti Háskóla Islands
Aðeins 2 söludagar eStír fyrir 2. drátt
Athugíð, að í 2.-10. ílokkí eru vínning-
ar samtals meira en 1 mílljón króna.
Kaupum flöskur.
Þessa viku til föstudagskvölds
kaupum við tómar flöskur. —
Flöskunum er veitt móttaka í
Nýborg dagl. kl. 9—12 og 1—5,30.
ÁFENGISVERZLUN
RÍKISINS.
Kjötverzlanír
Seljum hreinsaðar kindagarnir.
Garnastöðin, Reykjavík.
Sími 4241.
M1 kiiðrtdllnii
endurt«kur söngskemmtun
sína í Gamla B í ó annað
kvöld (9. apvíl) kl. 7,15.
Bjarní Þórðarson
aðstóðar.
Aðgöngumiðar seldir í Bdkaverzlun Sigfúsar Ey-
mundsaonar, og Hljóðfœraveizliin Katrínar Viðnr —
Pantanir sækíst fyrir kl. 4 á morgun.
Logia k.
Eftir kröfu ntjórnar Sjiikrasamlagn Reykjavíkur og
að uudangengnum úrskurði, uppkveðnum 6. þ m., veið-
jur samkvæmt heimild 1 87. gr. Jaga um alþýðutrygg-
ingar nr. 26, 1. febrúar 1936, sbr. 42. gr. og 85. gr.
nömu laga. og samkvæmt lögum um lögtak og fjárnám
nr. 29, 16. des. 1885, lögtak látið fram fara til trygg-
ingar öllum ógreiddum iðgjöldum til Sjúkrasamlagn
Reykjavíkur, þeim er fóllu í gjalddaga 1. febrúar og 1.
marz sl., að átta dögum liðnum frá birtingu auglýs-
ingar þessarar, séu þau eigi að fullu goldin innan þess
tíma.
Lögmaðurinn I Reykjavík, 6. marz 1937.
Björn Þórðarson.
Takíð eftír!
Hafragrautur, mjólk, egg,
2 stk. brauð á 65 aura, frá
kl. 8—11 fyrir hádegi, —
krónumiðdagur frá kl. 12-9
fæst hvergi nema á
Heítt og Kalt.
E.s. Lyra
fer hóðan á fimmtudag, 8.
þ. m., kl. 4 síðd. til Bergen
um Vestm eyjar og Thors-
havn.
Flutningi veitt móttaka
fyrir hádegi á fimmtudag.
Farseðlar sækist fyrir
sama tíma.
P. Smíth & Co.
aðeins Loftur.
Skíðamót
á Síglufírðí
11 ára drengur
stekkur 26 mtr.
Yngsti þáttak-
andi 7 ára
Úrslit í innanfélag'skeppni
skíðafélagsins Siglfirðings urðu
þessi: í öðrum flokkí stökk
Jónas Ásgeirsson, 16 ára, 26,5
metra. Sami vann 10 kílómetra
gönguna á 51,26 mín. Hlaut
hann fyrstu verðlaun í hvort-
tveggju, auk þéss fékk hann
fyrir samanlagt afrek farand-
grip, silfurdreginn málmskjöld,
sem á er greyptur fjallahring-
ur Siglufjarðar, auk ále'trunar.
Er það fagur gripur, gefinn af
cnefndum félagsmanni. — 200
metra slalom vann Guðmundur
Samúelsson á 1,13 mín. I þriðja
flokki vann stökkið, 16 metra,
Sverrir Olsen, 11 ára. Gönguna,
5 km., vann Aðalbjörn Þor-
steinsson, 13 ára, á 26,31 mín.
í samanlögðu stökki og göngu
vann Sverri Olsen farandbikar.
200 metra slalom vann Jön
Kristjánsson á 1,39 mín. Yngsti
keppandinn, Kristján Jónsson,
var 7 ára gamall. Alls voru
veitt 26 verðlaun. — FÚ.
Úr öllum áttum
Skólamaður nokkur hefir at-
hugað s'tafrofskver ýmsra
landa. Honum segist m. a. svo
frá:
„. . . . Japanska stafrófskver-
ið er mjög vel bundin og mynd-
MUSSOLINI.
skreytt bók. Hemaðarandinn
hefir gert það að verkum, að
síður þess eru fullar af teikn-
ingum af byssum, fallbyssum,
skriðdrekum og öðrum nýtízku
hernaðartækjum. Nazisminn
hafði mjög mótað hið þýzka
stafrófskver, hakakrossinn var
rauði þráðurinn í ölium teikn-
ingunum. Vitanlega var Beni-
to Mussolini mjög áberandi í
ítalska stafrófskverinu. Ein
myndin, mikið frekar óeðlileg,
sýndi II duce, þar sem hann
liélt á svolitlum skólas'trák í
fanginu og undir var letra:
„Benito Mussolini eiskar böm-
in hjartanlega. Börn ítalíu
elska II duce! Lengi lifillduce!
Lof sé II duce“. Barnið á
myndinni heilsar auðvitað með
fasistakveðju!
Heimskautafarinn Hubert
Wilkins hefir kafbát í smíðum,
sem ætlaður er til rannsóknar-
starfs í Suður-Ishafinu. Á
kafbátnum ætlar hann sér að
ferðas't undir ísnum og hefir
báturinn því verið útbúinn með
tækjum, sem eiga að geta
brætt vök á ísinn, svo hann
geti þannig komizt upp á
yfirborðið, ef þörf krefur, án
þess að þurfa að leita eftir
\ ökum.
Kauptúnið Boldo í Rúmeníu
brann næstum til kaldra koia
fyrir skömmu. Þrjú hundruð
íbúðarhús eyðilögðust, og
nokkrar manneskjur, einkum
börn, létu lífið í eldinum.
í hinni árlegu róðrarkeppni
milli stúdenta í Oxford og
Cambridge sigruðu Oxford-
slúdentar í vor. Var sigurinn
þeim kærkominn, því þeir hafa
tapað samfleytt í 13 síðastl. ár.
Cambrigde hefir þá alls unnið
43 sinnum, en Oxford 41 sinni.
Einu sinni hefir orðið sami tími
hjá báðum. Fyrsta keppnin var
1841. Árin 1915—18 var engin
keppni. Metið, sem var sett
1934, er 18,03 mín. Vegalengd-
in en 4*4 ensk míla.
í Mexico hafa konur nýlega
kosið nefnd, sem á að safna
íé til að reisa fyrir minnis-
merki af óbreyttri þjónustu-
stúlku. Ástæðan fyrir fjársöfn-
uninni er þessi:
Stúlkan vann hjá auðugum
manni. Stálpuðum dreng, sem
hann átti, var rænL af bófa-
ílokki, er krafðist svo mikils
lausnarfjár, að ekki var hægt
að fullnægja kröfunni. Leit lög-
reglunnar að drengnum var
árangurslaus. Þá fór stúlkan af
stað og henni heppnaðist að
finna heimkynni ræningjanna.
Tólt hún jafnframt þá fífldjörfu
ákvörðun, að hún skyldi ein
frelsa drenginn. Hafði hún
vörð um bólstað ræningjanna
og beið eftir hentugu tækifæri.
Eitt .sinn varð hún þess vör, að
bófarnir voru orðnir dauða-
drukknir, réði því til inngöngu,
náði tali af drengnum og sýndi
lionum hvaða leið hann ætti að
fara. Sjálf beið hún átekta
ekki langt í burtu. Þegar bóf-
arnir urðu þess varir, að dreng-
urinn var farinn, hófu þeir óð-
ar leit og fundu stúlkuna, sem
sagðist hafa séð drenginn og
vísaði þeim rangt til vegar.
Leitin að drengnum varð því
árangurslaus, en ræningjarnir
grunuðu stúlkuna um svik og
íéðu henni því bana.
Með því að reisa minnis-
merkið ætla konur i Mexico að
varðveita frá gleymsku þessa
óvenjulegu, en sorglegu hetju-
sögu.
Nokkrir þekktir Englending-
ar, þar á meðal Lloyd George,
Normann Angell, H. G. Wells,
Archibald Sinclair, foringi
frjálslynda flokksins, og major
Atlee, foringi jafnaðarmanna,
hafa birt harðorð mótmæli í
Times gegn ógnarstjórn ítala í
Abessiníu og þó sérstaklega
blóðbaðinu í Addis Abeba eftir
árásina á Graziani. „Við viljum
ekki aðeins“, segir í mótmæl-
i'num, „láta í Ijósi það álit
okkar að jafn viðurstyggileg
grmmd sé óafmáanlegur smán-
arblettur á iilutaðeigandi þjóð,
heldur jafnframt stórhættuleg
fyrir yfirráð hvíta kynþáttar-
ins í Afríku og framtíð hinnar
kristnu menningar“.
Það hafði um skeið vakið at-
hyg'li í Danmörku, að ýmsir
heldri menn, sem dæmdir höfðu
verið til fangelsisvistar, óskuðu
eftir að taka út hegninguna í
ríkisfangelsinu í Ædeltoft, sem
er skammt frá Aarhus. Skýr-
ingin á þessu hefir nú fengizt.
Yfirmaður fangelsisins hefir
játað á sig að hafa verið frek-
ar greiðvikinn við hína ,,fínu“
gesti. Stundum hélt hann þeim
veizlu heima hjá sér, ásamt
frúm þeirra. S'tundum spilaði
hann við þá peningaspil í
fangaklefunum o. s. frv. Hann
hefir nú verið sviptur embætt-
inu og bíður dóms.
K » n p 1 A