Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 11.04.1937, Qupperneq 2

Nýja dagblaðið - 11.04.1937, Qupperneq 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ „----VEIT ÉG ÞAÐ, en pað er pó að minnsta kosti eitt sem má reyna til að bæta og blíðka skapið með og pað er REGLULEGA GOTT KAFFI En efi pú vilt búa til óað- fiinnanlegt kafifii pá verðurðu blessuð góða að nota • *. . ' vfrl- *; ? TI - •íMHf TBBp' u______-____________________ FREVJU Hítar, ílmar, heíllar drótt, hressír, styrkir, kætír. Fegrar, yngir, Særir þrótt Freyjju kaifibætir. Útgerdarmenn i Til hraðSrystingar á pólskan markað erum vér kaupendur að 200—250 smálestum af slægðum porski í lok pessa mánaðar. Óskum eitir tilboðum nú pegar. Compensatíon Trade Co. h.fi. Tryggvagötu 28 — sími 3464. Gulasbandið er bezta og ódýraata amjörlíkið, í heildsölu hjá Sambandí ísl. samvinnulélaga Sími 1080. Útbreiðið Nýja dagblaðíð a a p 1 (Jr öllum áttum Hertoginn af Windsor dvelur nú í Austurríki og mun hafa í hyggju að setjast þar að. Ný- I 1 Veröur hann konungur Austur- ríkis? komin erlend blöð segja, að meðal margra Austurríkis- manna og þó einkum Englend- inga, sem séu búsettir þar í landi, sé töluverður áhugi fyrir því að fá hann fyrir konung. Meirihluti austurísku þjóðar- innar vill endurreisn konungs- dæmisins, en flest nágranna- ríkin eru því mó'tfallin og þó cinkum ef einhver afkomandi Ilabsbofgaranna lcæmi til valda. Með því að fá hertogann aí Windsor fyrir konungsefni, segja þessir menn, ætti að fást stuðningur Englendinga og ná- grannaríkin myndu ekki hafa éins mikið á móti honum og manni af Habsborgarættinni. í erlendum blöðum hafa komið ýmsar 'tilgátur um það, livaða dag hertoginn af Wind- sor .muni gifta sig. En því er haldið vandlega leyndu og talið að það sé enn ekki á vitorði annara en hertogans, Mrs. Simpson, konungsfjölskyldunn- ar, enska sendiherrans í Vín og yfirmanns Vínarlögreglunnar. Það þykif líklegt, að giftingin í’ari fram á ensku sendisveitar- skrifs'tofunni í Vín. Jafnframt er talið að lögreglan hafi sam- kvæmt beiðni, þegai gert ráð- síafanír til þess að engir dul- búnir spæjarar eða mynda- tökumenn geti verið viðs'taddir athöfnina. Þykir sennilegt, að IHl kiirltllln syngur í G a m 1 a B1 ó í dag (aunnudag) kl. 3. Bjarní Þórðarson aðstoðar. Aðgöngumiðar aeldir við innganginn eftir kl. 1. Alhs. Síðasta sínn. biöðin og þó einkum þau amer- ísku muni ekki víla fyrir sér að hafa í frammi hverskonar klæki til að ná fréttum og myndum • af þessum atburði eða einhverju í sambandi við hann. Lausafregnir herma að Mary ekkjudrottning ætli að vera viðstödd giftinguna til að sýna, að fullt samkomulag ríki innan konungsfjölskyldunnar. Yngs'ti sonur hennar og kona hans myndu þá verða með í förinni. 30. júní í sumar verður elzti sonur Roosevelts forseta giftur Ethel du Pont, en faðii hennar fcr einn af eigendum hinna stóru du Pont vopnaverksmiðja og var einhver allra hatram- asti andstæðingur Roosevelts í kosningunum í haust. Éthel du Pont er sögð mjög iríð sýnum og ungi Roosevelt hefir verið á biðilsbuxunum eftir henni í mörg ár. Pólitískur fjandskap- ur feðranna hefir verið þess- um ráðahag mestur Þrándur í Götu. Brúðkaupið verður haldið af foreldrum brúðarinn- ar og sennilega verður Roose- velt forseti viðstaddur. Amer- ísk blöð segja, að þáð hafi far- ið hér eins og oft áður, að ástin hafi orðið stjórnmálunum of- jarl. Flestir þjóðhöfðingjar aðrir en Bandaríkjaforseti efu skatt- frjálsir. Róoseveit verður sjálf- ur, eins og hver annar amer- ískur borgari, að taka þátt í þeirri skattabyrði, sem hann lcggur á þjóðina vegna umbóta- starfsemi sinnar. Embættislaun hans eru 75 þús. doll. á ári,en auk þess hefir hann töluverðar tekjur af eign- um sínum; hann á t. d. tölu- vert af lóðum í New York. Kona hans fær allmiklar tekjur fyrir blaðagreinar, sem hún skrifar, en samkvæmt am- erískum lögum eru tekjur hjón- anna ekki lagðar saman og maðurinn látinn greiða skatt fyrir bæði. Frú Roosevelt greiðir því sérstaklega skatt af tekjum sínum, en Roosevelt fær þó 500 dollara af tekjum sínum skattfrjálsar vegna þess að hann er giftur. Roosevelt stjómar ekki sjálf- ur eignum sínum né annast ávöx’tun peninga sinna. Það hefir hann falið einum frænda sínum, þekktum fjármálamanni Þegar Roosevelt varð forseti sendi frændinn honum svo- hljóðandi fyrirspurn: — Hvað viltu að ég geri við peninga þína? Roosevelt svaraði: — Gerðu það, sem þér þókn- ast, þeir eru á þinni ábyrgð? Skömmu síðar fékk hann þetta svar: — Ég hefi keypt ríkisskulda- bréf fyrir peningana. Nú hefir þú sjálfur ábyrgðina! $&Jn$a£cL> aðeins Lofitur.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.