Nýja dagblaðið - 10.10.1937, Side 1

Nýja dagblaðið - 10.10.1937, Side 1
AÐALi ÁSTASAGA arsins er MGLEESA rssmiA 0/^G.IBIIi^C)mÐ 5- ár. Reykjavík, sunnudaginn 10. október 1937. . 235. blað ANN ALL 283. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 6.52. Sólarlag kl. 5.38. Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 8.40. Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Ránar- götu 12, sími 2234. Næstu nótt Karl Sig. Jónasson, Sóleyjargötu 13, sími 3925. Sunnudagslæknir er Karl. Sig. Jónasson. — Næturvörður er þessa viku í Ingólfs Apóteki og Laugavegs Apó- teki. Ljósatími bifreiða er frá kl. 6.05 að kvöldi til kl. 6.25 að morgni. Veðrið. Vestanátt um allt land. Hægviðri sunnanlands en allhvasst á annnesjum norðanlands. Dálítil rigning vestan lands, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 8—10 stig um allt land. Grunn lægð fyrir norðan landið á austurleið. Veðurútlit í Reykjavík í dag: Suð- vestan kaldi, skýjað loft og dálítil rign- ing. Útvarpið í dag. 14.00 Messa í Fríkirkjunni (síra Árni Sigurðsson). 15.30 Miðdegistónleikar frá Hótel Borg (stj. B. Monshin). 17.40 Útvarp til útlanda (14.52 m.). 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Hljómplötur: Skemmtilög. 19.50 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Þættir úr sænsku stúdentalífi (Jón Magnúss., fil. cand.). 20.55 Hljómplötur: Stúdentalög. 21.20 Upplestur: Sögukafli (Gunnar M. Magnúss). 21.45 Danslög (til 24). Útvarpið á morgun. 19.20 Þingfréttir. 19.35 Skýrsla um vinninga í Happdrætti Háskólans. 19.50 Auglýsingar. 20.00 Fréttir 20.30 Um daginn og veginn. 20.55 Útvarpshljóm- sveitin leikur alþýðulög. 21.30 Hljóm- plötur: Ýms lög. Messur í dag. í Laugarnessskóla kl. 5 síðdegis sr. Garðar Svavarsson. í fríkirkjunni kl. 2, síra Árni Sigurðsson. í dómkirkjunni kl. 11, prestsvígsla. Hjónabönd. í gær voru gefin saman í hjónaband af séra Garðari Svavarssyni ungfrú Valborg Karlsdóttir og Þórður Jó- hannsson. Heimili þeirra er að Bjarn- arstöðum á Grímsstaðaholti. — Sr. Árnl Sigurðsson gaf saman í gær ung- frú Sigríði Þorbjörnsdóttur og Sigurð Hansson, til heimilis á Framnesvegi 16. — í gær voru gefin saman hjá lög- manni, Soffía Ólafsdóttir og Ingólfur Finnbogason trésmiður. Heimili þeirra verður á Laugaveg 34b. Vígsla hins nýja skólahúss Flensbogarskól- ans fer fram kl. 3 i dag. Á öðrum stað í blaðinu er ítarleg grein eftir Jónas Jónsson alþm., þar sem saga bygging- arinnar er rakin í aðaldráttum. Farþegar með Gullfossi til Leith og Kaup- mannahafnar: Margrét Ólafsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Hulda Benedikts- dóttir, Sigr. Hallgrimsdóttir, Valgerður Tómasdóttir, Hulda Kristmanns, Sv. Ragnars, Ragnar Kaaber, Margrét Guðmundsdóttir, Rigmor Hansen, Finnb. Kjartansson, Ól. Th. Sveinsson, Þór Sandholt Sigtryggur Klemensson og frú, Brynjólur Stefánsson og frú, Eiður Kvaran, Stefán Guðmundsson, Magnea Guðjónsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir, Jakobína Björnsdóttir, Þórólfur Jónsson, Baldur Guðmunds- son, Kjartan Guðnason, Pétur Péturss., Arnfr. Árnadóttir, Sigr. M. Pétursd., Steinunn Hermannsdóttir, B. Bjarna- son, Gunnl. Pálsson, Ól. Björnsson, Tr. Þorsteinsson, Garðar Sigurjónsson, Már Ríkarðsson, Birgir Kjaran, Sig. Sigurðsson, Ingólfur Ágústsson, Kai Milner, Magnús Þorvaldsson, Halld. Ól- afsson, Ól. Ólafsson, Þuríður Jónsd., Sveinbjörg Haralds, Magna Sigfúsd., Guðrún Gísladóttir. Hlutavelta K.F.U.M. og K. hefst kl. 3 í dag í húsi félaganna við Amtmannsstíg. Þar verða margir ágætir drættir (sbr. augl.) en engin núll og ekkert happdrætti. Svo er alm. samkoma í kvöld kl. 8.30. Þar talar sr. Bjarni Jónsson og einnig verður þar kórsöngur og fiðlusóló. Allir eru velkomnir á þá samkomu. Heíír íundist lyf gegn fjár- Leikfélag Reykjavíkur sýnir í annað sinn í kvöld leikritið „Þorlákur þreytti“. Frumsýningin var á fimmtudagskvöldið og munu allir, sem þar voru, ljúka upp einum munni um það, að leikritið sé sprenghlægilegt og leikur .aðalleikendanna. góður. Á myndinni sést Haraldur Á. Sigurðsson,. sem .leikur. Þorlák þreytta og Martha Indriðadóttir, sem Ieikur konu hans. Nýír herflutn- íngar tíl Spán- ar írá Þýzka- landí og Italíu Sonur Mussolinis stjórnar loítárás á Valencia OSLO: Enska blaðið „Manchester Guardian“ skýrir frá því í gær í fregn frá einka- fréttaritara sínum í Berlín, að 100— 130 þýzkir flugmenn hafi fyrir nokkr- um dögum verið sendir til Spánar í flugvélum hlöðnum matvælum og her- gögnum. Blaðið birtir ennfremur ýms- ar fregnir um herafla sem ítalir hafi sett á land á Spáni undanfarna daga, og telur að alls muni nú vera komnar á land á Spáni 110—120 þúsundir ít- alskra hermanna. Franska blaðið „Figaro" skýrir frá því 1 gær, að Bruno, sonur Mussolini, sem er flugforingi, hafi fyrir skömmu verið sendur til Spánar með flugsveit og að það hafi verið flugsveit hans, sem gerði loftárásina á Valencia á dög- unum. — FÚ. Ætla Ítalír að gera gagnárásír á borgir uppreísnarmanna og kenna síðan spönsku stjórninni um pær ? LONDON: Spanska sendisveitin í London hefir snúið sér til brezku stjórnarinnar, með sönnunargögn, sem hún segist hafa fengið í hendur fyrir því, að ítalir hafi nú í undirbúningi víðtæka áróðurs- starfsemi á Spáni. Meðal annars und- irbúi ítalska stjórnin árásir með eitur- gasi, sem hún ætlist til að spánska stjórnin verði sökuð um. T. d. segist sendisveitin hafa sannanir fyrir því, að eiturgas-árás á eina borg uppreisn- armanna, Palma, sé fyrirhuguð. Enn- fremur ráðgeri ítalir kafbátaárásir með ítölskum kafbátum, er sigla eigi undir stjórnarfána Spánar. — FÚ. Vélbáturinn Kolbeinn ungi sem áður var eign Sigurðar Bjarna- sonar kaupmanns á Akureyri, hefir nú verið seldur til ísafjarðar og mun ætl- unin að nota skipið þar til póstferða. Það er 58 smálestir að stærð og var söluverðið 45 þús. króna. Kolbeinn ungi lagði af stað frá Akureyri til ísa- fjarðar um síðastliðna helgi. Chamber- lain þakkar Ro osevelt Viðræður milli Breta og Bandaríkjamanna LONDON: í ræðu, sem Neville Chamberlain forsætisráðherra hélt í fyrrakvöld á þingi íhaldsflokksins brezka í Scar- bourough, sagði hann um ræðu Roose- velts forseta, að hún væri eins velkom- in í Englandi, eins og hún væri orð í tíma talað. Hann sagði ennfremur, að það hefði verið orðin rikjandi skoðun út um allan heim, að Bandaríkin vildu undir engum kringumstæðum blanda sér í málefni annarra þjóða. Þeim mun gleðilegra væri það, þegar þessi vold- ugasta þjóð heimsins vildi nú leggja sinn skerf til þess að halda uppi gildi gerðra sáttmála og koma í veg fyrir að heimurinn lendi í því að samskipti þjóðanna færist á villimannastig. Talið er víst að Bandaríkin taki þátt í ráðstefnunni um Austur-Asíumálin. Sendiherra Breta í Washington og Wilson, aðstoðarutanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, hafa átt viðræður sam- an og munu halda áfram að ræðast við og er talið að þar sé um undirbún- ing þessa máls að ræða. Bandaríkjastjórn hélt fund í gær og stýrði forseti fundinum. Þegar hann að loknum fundi var spurður um það, hvort Austurlandaráðstefnan kynni að verða haldin í Washington, vildi hann þó ekki gefa ákveðin svör. — FÚ. —mm^m^m^mmmmmmmmm^mmmmmmmmmmm^imm^mmmmmmmmmmmmj Barnaheímílí Vorboðans FjársöSnun í dag Þaö var í apríl í vor, að barnaheimilisnefndin Vorboði var stofnuð með það markmið að koma þegar á þessu sumri nokkrum Reykjavíkurbörnum til sumardvalar uppi í sveit. Sjálfsagt hefir mörgum fundizt það furðu mikil bjartsýni að hugsa sér að þetta mætti takast með svo stuttum undirbúningi. En þeir sem þekktu Reykvík- inga að því, hvað gott er að biðja þá, voru vongóðir. Og sú von brást ekki, því að í sumar tókst nefndinni að starfrækja sumarheimili fyrir börn úr Reykjavík, frá 1. júlí, til 1. sept. Framhald á 4. síðu. pestínní? Tílraunír eru nú gerðar á talsvert möigum kíndum og vírðast ætla að bera árangur Prófessor Níels Dungal hefir gert í sumar ýmsar lækninga- tilraunir á kindum, sem sýktar voru af borgfirzku veikinni. — Notaði hann ýms lyf í því augnamiði og virðist, sem eitt þeirra hafi reynzt bezt, og gefi nokkrar vonir um að lækna megi með því sýktar kindur. Nú standa yfir lækningatil- raunir með um 100 ær á ýmsum bæjum í Borgarfirði, Hesti, Grímarsstöðum, Hvanneyri og víðar. Innan skamms verður úr því skorið, hver árangurinn verður af þessum lækningatil- raunum, og bíða menn á fjár- pestarsvæðinu þeirrar vitneskju með mestu óþreyju. Lækningin er í því fólgin, að hinum sjúku kindum er gefið inn fljótandi efni (brenni- steinssýringur). Heggstaðancsið Heggstaðanesið hefir verið fjárlaust með öllu síðan 22. sept. í haust, en þar á að gera til- raunir með, hvort heilbrigt fé sýkist við það, að vera til beitar á landi, þar sem sýkt fé hefir verið áður. Nú hafa bændur þar keypt um 540 fjár austur á Kópaskeri, sem nýjan fjárstofn. Hegg- staðanesið er afgirt, sem kunn- ugt er, og verður sú girðing gerð tvöföld mjög bráðlega. Páll Zophóniasson hefir ann- azt útvegun á þessu fé, en flutn- ingur þess að austan verður bændum að kostnaðarlausu. Þrjú biireiðar- slys í gær Þrjú bifreiðarslys, sem öll höfðu talsverð meiðsl í för með sér, urðu hér í bænum í gær. Fyrsta slysið varð um hádegisleytið á vegamótum Kalkofnsvegar og Tryggvagötu. Ók bifreið þar á mann á reiðhjóli og kastaði honum í götuna. Fóru framhjól bifreiðarinnar síðan yf- ir reiðhjólið og muldi það í sundur, en manninum varð það til lífs, að hann hafði kastazt það langt í burtu, að bíl- stjórinn gat stöðvað bifreiðina áður en hún hafði ekið yfir hann. Meiddist hann þó töluvert mikið á höfði, vinstri öxl og hægra fæti. Meiðslin munu þó ekki hættuleg. Nafn mannsins er Sig- urjón Viktor Finnbogason, Bergþóru- götu 15a. Annað slysið varð um kl. 3.15 fram- undan benzíngeymi Shell við Vestur- götu. Var sendisveinn að koma austur götuna, þegar bifreið kom frá geymin- um og lenti á hjólinu. Féll drengurinn Alþingí sett Kosníngum frest- ad þangað til á morgun Alþingi var sett í gær og fór sú at- höfn fram með svipuðum hætti og venjulega. Gengu þingmenn fyrst fylktu liði úr Alþingishúsinu í Dómkirkjuna og hlýddu þar á ræðu sr. Björns Magnús- sonar. Kommúnistar komu þangað þó ekki og ekki nema helmingur Alþýðu- flokksþingmannanna. Héðinn, Jón, Finnur og Vilmundur héldu til í þing- húsinu meðan messugerðin fór fram. Eftir að þingmenn voru komnir í sæti í neðri deildar salnum, las forsætisráð- herra konungsboðskap um að Alþingi væri sett. Síðan tók aldursforseti þings- ins, Ingvar Pálmason, við forsetastörf- um. Minntist hann fyrst þriggja nýlát- inna þingmanna, þeirra Guðmundar Björnssonar landlæknis, Sigfúsar Jóns- sonar kaupfélagsstjóra og Jóns Ólafs- sonar bankastjóra. Fór síðan fram athugun kjörbréfa og voru engar athugasemdir gerðar við þau. Að því loknu fór fram kosn- ing á forseta sameinaðs þings, og hlaut Jón Baldvinsson kosningu með 25 at- kvæðum. 18 seðlar voru auðir. Fyrsta forsetaverk hans var að fresta fundi til mánudags, og halda kosningar þá áfram. Sá atburður gerðist, þegar þingmenn höfðu hrópað húrra fyrir ættjörðinni og konunginum, að kommúnistaþing- mennirnir risu .á fætur og hrópuðu: Lifi frelsisbarátta íslenzku þjóðarinnar. Munu þeir hafa kunnað því illa, að hrópa ekki neitt, en jafnaðarmenn hörkuðu það af sér að sitja þegjandi undir öllum hrópunum. Fjórir þingmenn mættu ekki á fund- inum í gær: Bjarni Ásgeirsson, Thor Thors, Jóhann Jósefsson og Sigurður Kristjánsson. Eru tveir þeir fyrst- nefndu í útlöndum. Af nýju þingmönnunum eru átta, sem ekki hafa átt sæti á þingi áður. Eru það Skúli Guðmundsson, Pálmi Hannesson, Helgi Jónasson, Sigurður Hlíðar, Stefán Stefánsson og kommún- istarnir þrír. Bæjarbruni Annað íbúðarhúsið í Flekkuvík á Vatnsleysuströnd, eign Úlfars Bergs- sonar, brann i fyrrakvöld. Eldurinn kviknaði laust fyrir miðnætti. Enginn var í húsinu sem brann, en í öðru húsi, sem stendur rétt hjá, voru húsbændurnir fjarverandi, en aðeins börnin heima, elzt 18 ára gömul stúlka. Vaknaði hún við bjarmann af eld- inum og gat bjargað einhverju lítils- háttar út, en annars brann mestallt sem inni var. Stúlkan gat bjargað út kanínum sem inni voru, en hundur, sem hún hafði náð, slapp inn í húsið aftur og brann inni. Menn frá næstu bæjum og vegfar- endur er komu að, gátu með naumind- um varið hitt húsið. Eldsupptök eru ókunn. — FÚ. í götuna, en meiddist ekki mikið. Hjól- ið mun hafa nær eyðilagzt. Þriðja slysið varð um fjögur leytið á vegamótum Skothúsvegar og Suður- götu. Rákust þar saman bifreið og bif- hjól. Stúlka, sem var farþegi á bifhjól- inu, meiddist talsvert og bifhjólið sjálft gereyðilagðist. Bílslys svipuð þessum, virðast hafa verlð mjög tíð hér í bænum að undan- förnu og má tvímælalaust telja aðal- ástæðuna fyrir því þá, að bifreiðar- stjórar, hjólreiðamenn og fleiri vegfar- endur gæta ekki nógu mikillar varúð- ar. Ættu hin stöðugu slys þó að vera næg áminning til manna að fylgja bet- ur umferðareglum en yfirleitt virðist gert.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.