Nýja dagblaðið - 14.10.1937, Page 2
2
N Y J A
DAGBLAÐIÐ
Vegna jarðarfarar
verdur skrífstoium og verksmiðjum lokað frá
kl. 12 á hádegi í dag.
H.F* SVANUR.
Til Kefiavíkur, Gards
og Sandgerdís daglega
tvisvar á dag.
Steindór, sími 1580.
Félag ungra
F ramsóknarmanna
heldur fund í Samhandshúsinu
annað kvöld kl. 8,30.
Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra
hefur umr. um stjórnmálahorfur
Félagar! Fjölmennið og hafið með ykk-
” ”ýia *é,aga' STJÓRNIN.
Bökunardropar
Á. ¥. R.
Romdropar,
Vanillndropar,
Citrondropar,
Möndludropar,
Cardemommndropar.
Smásöluverð er tilgreint á hverju glasi.
Öll glös eru með áskriif aðri liettu.
Afengisverzlun ríkisins.
Æf intýr aleg veturseta á rekís
norður víð heímskaut
í hálfan fimmta mánuð hafa fjórir rússnesk-
ir vísindamenn hafzt viö á ísjaka, sem þeir
œtla að láta berast með frá heimskautinu á
suðlœgari slóðir. Viðfangsefni þeirra er að
rannsaka sjávarstrauma og veðurfar með til-
liti til ráðgerðra flugferða milli Rússlands og
Ameríku. Allt er mjög í óvissu um afdrif þeirra,
en um allan heim er þessu fáheyrða og fífl-
djarfa uppátœki gefinn hinn mesti gaumur.
Hið síðasta skipa þeirra, er í
sumar héldu til vísindarann-
sókna lengst norður í höf, er
komið heim. Eftir miklar hættur
er „Gustav Holm“ laus úr haf-
ísnum og sigldur suður á bóginn
óhindraður um úfinn sjó. Þeir
einir, sem komizt hafa í náin
kynni við hafísinn, þegar hann
læsir köldum og hvítum faðmi
um skipið og ætlar allt að nísta
sundur, geta skilið tilfinningar
mannanna, er að nýju höfðu
vald á farkosti sínum og gátu
siglt til þeirrar áttar, sem þá
sjálfa fýsti. Hinna, sem eftir
hafa oröið í hinum nyrztu lönd-
um jarðarinnar, veiðimanna og
vísindamanna í Grænlandi, Sí-
beríu og Kanada, bíður heim-
skautsveturinn, margra mánaða
óslitin nótt. Þessa dagana njóta
þeir bjarmans af síðustu geislum
sumarsins, sem er á förum.
Á komandi vetri munu nokkrir
Rússar búa lengst mót norðri
allra mannlegra vera. Það eru
þekktur veðurfræðingur, Pa-
panini og þrír félagar hans, sem
í sumar flugu til norðurheim-
skautsins, og nú hafa ísbreiðu á
reki að bústað sínum.
Margir eru þeir, sem lent hafa
í lífshættu og fáheyrilegum
mannraunum í rekísnum. Menn
skulu aðeins minnast þess, er
„Hansa“ og „Teddy“ bárust með
ísnum meðfram endilangri aust-
urströnd Grænlands, eða leið-
angurs Nansens á „Fram“, sem
varaði í þrjú ár. Nú er þessu síð-
asta fífldjarfa æfintýri, sem ekk-
ert fordæmi á sérí fylgt með ó-
skertri athygli um gervallan
hinn siðmenntaða heim. Nansen
tengdi allar sínar vonir við skip-
ið, sem hann af ráðnum huga
lét frjósa inni í ísnum, svo sjáv-
arstraumar gætu flutt það
um hið ókunna haf, en Rússarn-
ir treystu á flugvélina, og flugu
í sumar á örfáum klukkustund-
um til heimskautsins, takmarks-
ins, sem Nansen aldrei náði. En
þegar til heimskautsins kom,
gáfu Papanini og félagar hans-
sig á vald óvissunni og örlögun-
um, sem þeirra kunna að bíða
þarna á ísnum.
Þessir fjórir menn hafa nú
þegar gist norðurheimskautið í
marga mánuði. Daglega hefir
umheimurinn fengið útvarps-
skeyti um tilveruna í hinu yzta
norðri. Enn hefir allt gengið
svipað til og gert hafði verið
ráð fyrir, en hitt veit enginn,
hvar þessir menn kunna aö vera
niðurkomnir að nokkrum mán-
uðum liðnum, né hvort þeir
muni nokkru sinni ná til hfan-
ar eða líta heimaland sitt aug-
um framar.
Papanini og félagar hans voru
skildir eftir í litlu hreysi á ís-
breiðunni ýfir sjálfu heimskaut-
inu. Þetta skýli er ellefu fet að
lengd og sjö fet aö breidd og sex
að hæð. Veggirnir eru þaktir
gúmmíbelgjum, fylltum lofti, en
yfir þá er lagður pappi, hrein-
dýrafeldir, silkisvæflar fylltir
æðardúni og loks pappi yzt.
Þetta er heimjji þeirra og
vinnustofa, svefnherbergi og
eldhús. Mat sinn tilreiða þeir á
olíuvélum.
Tilgangurinn með þessu er að-
allega sá, að kanna til hlýtar
sjávarstraumana á þessum slóð-
um og kynnast veðurfari á
nyrzta hjara veraldarinnar. Eins
og kunnugt er, hafa Rússar á
prjónunum stórfelldar ráðagerð-
ir um reglubundnar flugferðir
yfir íshafið, milli Rússlands og
Ameríku. Þrír flugleiðangrar
Rússa á þessum leiðum í sumar,
tókust giftusamlega, en hinum
fjórða og síðasta lyktaði á sorg-
legan hátt. Hinn frægi flugmað-
ur Levanevsky, hvarf eftir að
hafa flogið yfir heimskautið og
hefir ekkert til hans spurzt né
hans orðið vart, þrátt fyrir mikla
leit. Þareð flugmennirnir höfðu
ekki vistir nema til fimm vikna,
er nú með öllu örvænt um líf
þeirra. Auk allra þessara flug-
leiðangra, eru athuganir á skil-
yrðum til fastra flugsamgangna
gerðar af ýmsum sérfræðingum,
sem hafast við á ísbrjótum á
hinum nyrztu sjóleiðum.
í þjónustu þessa málefnis hef-
ir Papanini lagt sig í hættu. Þeir
félagarnir hafa tekið það hlut-
verk að sér, að rannsaka haf-
straumana og veðurfarið að
vetrarlagi, og á alveg einstæðan
hátt gefið sig á vald þeim örlög-
um, sem kunna að bíða fjögurra
manna á ísjaka mörg þúsund
kilómetra frá mannabyggðum.
í tímaritinu „Polar Record“
hafa þegar birzt fyrstu niður-
stöðurnar af þessum rannsókn-
um. Fyrstu dagana, sem menn-
irnir höfðust við á ísnum, var
rekið nokkuð jafnt. Á þeim tíma
bárust þeir um 45 sjómílur til
suöausturs, frá heimskautinu.
En síðan hefir ísinn ýmist rekið
til austurs eða vesturs og eftir
að þeir höfðu hafzt þarna við
fjóra mánuði, voru þeir staddir
í 230 sjómílna fjarlægð frá heim-
skautinu eða álíka norðarlega
og „Fram“ komst lengst árið
1893.
En hvað mun nú í skerast,
þegar harðnar að og hin vetrar-
langa heimskautsnótt leggst yf-
ir? Nú er helzt útlit fyrir, að þeir
muni losna út úr sjálfri ísbreið-
unni norðaustur af Grænlandi.
Hingað til hafa þeir borizt um
þrjár sjómílur á sólarhring og
eru því líkindi til, að það verði
eftir tvo eða þrjá mánuði, eða á
myrkasta tíma ársins. Það er
mesta vafamál, að hinum rúss-
nesku hj álparskipum, sem send
verða á vettvang, lánist, þrátt
fyrir öll nýtízku tæki, að finna
ísjakann, sem þeir hafa bæki-
stöð sína á, áður en hann hefir
mulizt upp við árekstra og í sjó-
gangi. — Leiðangursmennirnir
sjálfir eru við öllu hinu versta
búnir og hafa þegar skipt vistum
og farangri á milli sín, ef þeir
skyldu skyndilega neyðast til að
skiljast að. En hitt má líka vel
vera, að ísinn taki að reka hæg-
ar og berast lengra til austurs,
þegar fjær dregur heimskautinu.
Þá ætti allt að geta farið eins og
gert var ráð fyrir og ísbrjóturinn
Krassin að verða sendur til móts
við æfintýramennina um það
leyti, sem vorsólin byrjar að
sýna sig á þeim slóðum.
Enn sem komið er, hefir ísinn
rekið með nokkru meiri hraða
en búizt var við. Prófessor Otto
Schmidt, yfirmaður hinna rúss-
nesku heimskautarannsókna, og
aðstoðarmenn hans, fylgjast
með þessum atburðum öllum af
mestu eftirvæntingu og hugleiða
og bollaleggja á hvern hátt þeir
geti farsællega bjargað þessum
hugdjörfu mönnum frá voveif-
legum dauða.
M U N I Ð
f und Félags ungra
Framsóknarmanna
á föstudagskvöldið.