Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 24.10.1937, Qupperneq 2

Nýja dagblaðið - 24.10.1937, Qupperneq 2
2 NÝJA DAGBLAÐIÐ Hóieí Borg I dag kl. 3—5. Sérsiakír hljómleikar TVÆR HLJÓMSVEITIR Stíórnendur: Bernh. Monshin og Billy Cook r iolu> £ 1 /I f Celló- i i i Trombon- ^AAAA^ Leikskrá lögð á borðin. NAAAA^ A.xa.xxa.ð 3s:-völc5L 3x1. 9 e. Iol. Spánskt k-völd.. M E L E E S A Afar spennandi og æfintýra- rík ástarsaga eftir James Oliver Curwood. Sagan gerist í frumskógum Norður-Ameríku og er, ásamt því að vera mjög hugnæm ásta- saga, jafnframt atburðarík og merkileg ferðasaga. Meleesa fæst í næstu bóka- verzlun og á afgreiðslu Nýja Dagblaðsins. TIl Keflavíkur, Garðs | og Sandgerðls daglega i tvisvar á dag. | Stelndór, síml 1580. 1 K a n p 1 ð Gula bandið ÉLén^öES> * uðeins Loftur. •r bezta og ódýrasta smjörlíkið. í heildsölu hjá Samband Isl. samvinnufélaga Góð gjöf; Þazfíipúpsögu Reykjavíkup Simi 1080 Fæst hjá bók8ölum. Bjarni Benediklsson á veikum is, og lendir ofaní Bjarni Benediktsson prófessor | skrifar enn um Sundhöll Reykjavíkur í Mbl. í gær. í þessari grein segir Bjarni að ég beri Jón heitinn Ólafsson rógi, og finnur það til, að ég hafi falsað ummæli Jóns, en þetta er hinn mesti misskilningur — mis- skilningur, sem illa menntum manni gæti fyrirgefizt, en varla prófessor við Háskóla íslands. Umsögn Jóns sem ég vísa til er ekki slitin úr sambandi, það er stutt en gagnorð lýsing Jóns á því hver afstaða hans flokks er til málsins, en ekkert orð um það, hvað sé hans persónulega álit á málinu. Ég valdi Jón Ólafs- son til þess að lýsa yfir afstöðu flokksins til málsins af því að hann var bæði þingmaður Reykjavíkur og einnig bæjar- fulltrúi íhaldsflokksins; hann var því afstöðu flokksins vel kunnugur og hann segir þetta afdráttarlaust, aö bæjarstjórn sé á móti því að veita 200 þús. kr. til sundhallarbyggingar. Hitt, að rétt muni að taka lán til þessa, eru kunnar vífilengjur og ætti Bjarni Benediktsson að vita að það að athuga mál og rannsaka lántöku til framkvæmda, þýðir oft hjá íhaldinu að svæfa málið. En úr því að Bjarni vill byrja ummæli Jóns fyrr, þá hefi ég ekkert á móti því. Bjarni vill láta ummæli Jóns byrja á þessum orðum: „í vetur hafa fyrst legið fyrir endanlegar upplýsingar um þetta mál.“ í fyrri grein sinni vill Bjarni láta líta svo út, að baráttan fyr- ir sundhallarmálinu hafi verið hafin fyrir 25 árum, og hann nefnir aðallega Sjálfstæðismenn í sambandi við þá baráttu. Svo finnst honum óhjákvæmilegt að láta Jón Ólafsson lýsa því yfir, eftir að þessi sundhallarbarátta Sjálfstæðismanna hefir staðið yfir í 16 ár, að nú fyrst séu end- anlegar upplýsingar fengnar. Bjarna er svo sem velkomið að leiða Jón Ólafsson sem vitni mín vegna, um það að raunverulega hafi Sjálfstæðismenn ekkert gert í málinu; þetta er alveg satt, því allar upplýsingar í þessu máli voru gefnar af Framsóknar- mönnum. Eg sýndi fram á það í fyrri grein minni, að sá maður, sem Bjarni einkum vildi þakka upp- tök málsins, hefði ekkert fyrir það gert þau 3 ár, sem hann var ritstjóri að eina íþróttablaðinu sem gefið var út í landinu, hafði ekki skrifað orð um það, hvað þá meira. Hér við bætist svo það, að Sjálfstæðismenn voru lengi við völd í landinu eftir að Jónas Jónsson bar málið fram á þingi og þeir gerðu bókstaflega ekkert fyrir málið allan þann tíma. Eft- ir að Framsóknarflokkurinn tók við stjórn, var málið strax knúð fram á Alþingi, en þó gat Sjálf- stæðisflokkurinn tafið það enn í 8 ár í bæjarstjórn Reykjavíkur. Og heldur nú Bjarni Bene- diktsson að það sé ekki alveg vonlaus barátta fyrir hann, hef- ir hann nokkra von um að fá fólk til að trúa því að Sjálfstæð- ismenn hafi barizt fyrir bygg- ingu sundhallar í Reykjavík, mennirnir sem alla tíð trössuðu að gera svo að segja nokkuð til þess að sundlaugarnar gætu tal- izt nothæfar, rnennirnir, sem hröktu íþróttamenn með Sund- skálann úr einum stað í annan og hafa svo síðustu árin komið sér hjá að byggja sundskála í Nausthólsvík? En því hafa þeir fyrir löngu lofað. Nei, þetta er vonlaus barátta, Bjarni. í grein sinni í gær segir Bjarni Benediktsson, að ég vilji láta líta svo út, að hann hafi viljað gera Erlingi Pálssyni svívirðingu og að það muni ekki í fyrsta skipti, sem hann sýni honum lítilsvirð- ingu. Þetta er alrangt. Það sem ég segi um þetta, er á þessa leið: „Erlingur kenndi t. d. sund í 10 ár bænum að kostnaðarlausu, sem sagt fyrir ekki neitt, og býst ég við að bæjarstjórnin virði það við hann, og vel má vera, að Bjarni Benediktsson hafi átt einhvern þátt í því að sýna Er- lingi virðingarvott, um það má hann bezt vita sjálfur.“ Hér hefir Bjarni því vikið sann- leikanum við. Hitt er svo annað mál, að sálfræðingar myndu draga nokkurnveginn ákveðnar ályktanir af þessari framkomu Bjarna Benediktssonar prófess- ors. í þessari sömu grein segir Bjarni, að við Framsóknarmenn höfum viljað koma Erlingi úr yf- irlögregluþj ónsstöðunni. En seilist Bjarni nú ekki of langt til lokunnar hér? Hverjir eru það, sem hafa gengið bezt fram í því að koma Erlingi úr þessari stöðu? Það eru íhalds- menn. Eða man ekki Bjarni Bene- diktsson og aðrir flokksbræður hans eftir því, þegar bæjarfull- trúar íhaldsins og leynivínsal- arnir í bænum gerðu ítrekaða til- raun til þess að koma Erlingi Pálssyni úr lögreglunni. Og hver var það, sem átti að taka við af Erlingi? Maður skyldi halda að það hefði verið einhver úrvals- maður, en það skyldi nú samt ekki hafa verið maður, sem rétt á eftir var dæmdur í 8 mánaða fangelsi í einu hinu ógeðslegasta máli? Þetta mun hafa verið 1923 eða 1924. Það er alveg víst, að þetta mál var fast sótt og það munaði litlu að því yrði afstýrt að Er- lingur væri rekinn. En menn, sem skyldu i hvert óefni var stefnt í þessu máli, gengu í það að afstýra því, og þeim tókst að hafa þau áhrif á tvo bæjarfull- trúa íhaldsins, að þeir snerust á móti flokknum, og með einlægum stuðningi jafnaðarmanna var þessi brottrekstrartillaga felld með eins atkvæðis meirihluta, en einn íhaldsmaður sat hjá. Meðal þeirra manna, sem bezt gengu fram í því að afstýra þessu hneyksli, var lögreglustjórinn, Jón Hermannsson. Mun hann hafa skrifað bæjarstjórn um þetta mál og bent þar m. a. á það, að síðan Erlingur tók við rannsókn glæpamála, þá hafi öll þau mál verið upplýst, sem kært var yfir til lögreglunnar. Nokkru síðar mun svo einn af bæjarfulltrúum íhaldsins hafa tilkynnt það á bæjarstjórnar- fundi, að hann myndi bera upp tillögu um það að reka Erling. Af þessu verður það ljóst, að Bjarni hefði átt að líta nær sér um þetta mál, áður en hann fór að bei’a það á Framsóknarmenn að þeir sætu á svikráðum við Er- ling Pálsson, því það er alveg víst, að þar hafa Sjálfstæðis- menn gengið lengra, Eg get nú látið þetta nægja i bili. Þetta ætti líka að vera nóg til þess að færa Bjarna Bene- diktssyni heim sanninn um það, að hann hefir illu heilli — fyrir Sjálfstæðisflokkinn — hafið þessi skrif, því það yrði endalaus kaffæring, ef öllu því, sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefir miður gert í íþróttamálum, væri hellt yfir Bjarna, enda ætti hann það ekki allt skilið, svo ungur maður sem hann er. En hans eigin þátt- Framh. á 3. síðu.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.