Nýja dagblaðið - 11.01.1938, Side 1
Kosninyashrifstofa
Framsóhnarfl.
er í liafnarsír. 16
Síiibí 2323
ID/V5* IB \\J\\Ð IIIÐ
6. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 11. janúar 1938. 7. blaö
Heir drrlHli anlilzl sii 1M?
Verzlunarjöftmður þríggja seíuusfu
ára hagfstæður um 16,2 míllj. kréna
Undir stjórn heildsalanna hefði hann
orðið óhagstæður iini tngi milljóna
króna. .1
ANN ÁLL
11. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 10.09. Sólarlag kl.
3.02. Háflæður í Reykjavík kl. 12.40 1
nótt.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 3.20 síðdegis til kl. 9.50
árdegis.
Næturlæknir
er í nótt Páll Sigurðsson, Hávallag.
15, sími 4959. Næturvörður er þessa
viku í Lyfjabúðinni Iðunn og Reykja-
víkur Apóteki.
Dagskrá útvarpsins:
8.30 Dönskukennsla. 10.00 Veðurfr.
12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfr.
18.45 Þýzkukennsla. 19.10 Veðurfr.
19.20 Hljómplötur: Lög úr tónmynd-
um. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir.
20.15 Erindi: Um uppeldi, III. (dr. Sí-
mon Ágústsson). 20.40 Hljómpl.: Létt
lög. 20.45 Húsmæðratími: Unglingad.
Rauðakrossins (Sigr. Bachmann hjúkr-
unarkona). 21.00 Symfoníutónl.: Faust-
symfónían, eftir Liszt (plötur).
Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins er í Hafnarstr.
16, sími 2323.
Leiðrétting.
Þegar talin voru upp í laugardags-
blaðinu nöfn á eigendum þeirra tíu
kúabúa innan eftirlits- og fóðurbirgða-
félaganna, sem nytjabezt mætti telja,
miðað við nythæð fullmjólkandi kúa,
kosti mjólkurinnar og fóðureyðslu, hef-
ir fallið niður nafn Magnúsar Blöndal,
bónda að Grjóteyri í Kjós, en tvíritazt
nafn Vilborgar Guðnadóttur að
Reykjavöllum.
Alexandrine drottning
hefir, samkvæmt sendiherrafrétt,
veikzt á ný og var hún skorin upp á
sunnudagskvöld.
í bréfi frá Seyðisfirði,
sem Nýja Dagblaðinu hefir borizt,
er veðrátta sögð afbrigðilega góð þar
eystra, snjólítið til fjalla og alautt í
byggð. Sökum ótta við snögg veðra-
brigði, er sauðfé þó víðast hýst, en lítið
gefið og beit notuð sem verða má.
Heyfengur var bæði mikill og góður í
sumar. Hafa bændur, margir hverjir,
fjölgað búpeningi sínum. Garðrækt hef-
ir aukizt á síðari árum og öll ræktun
er í örum vexti.
Listi Framsóknarflokksins
hér í Reykjavík er auðkenndur með
bókstafnum B. Stuðningsmenn B-list-
ans, sem dvelja utan bæjarins, eru á-
minntir um að kjósa í tæka tíð hjá
næsta hreppstjóra eða sýslumanni og
senda atkvæðin til kosningaskrifstofu
flokksins í Hafnarstræti 16. Þeir, sem
fara úr bænum fyrir kjördag, eru beðn-
ir að kjósa áður á kjörstofu lögmanns,
Arnarhvoli, 3. hæð, opið 10—12 og 1—4
alla virka daga.
Fnyir Framsókn-
urmenn, mœtið á
fundinum í kvöld!
Félag ungra Framsókn-
armanna heldur fund í
Sambandshúsinu kl. 8 í
kvöld.
Á dagskrá er útbreiðslu-
starfsemi félagsins, bæjar-
stjórnarkosningarnar í
Reykjavík, afstaðan til
annarra flokka o. fl.
Félagsmenn eru áminnt-
ir um að mæta stundvís-
lega og taka með sér nýja
félagsmenn.
Hjálpumst til að gera Fé-
lag ungra Framsóknar-
manna að þróttmesta
stjórnmálafélagi ungra
manna í Reykjavík.
Japanskír ijár-
málamenn aðvara
stjórnina
Japönsk skuldahréf
falla á ölluiii kaup-
höllnm.
KALUNDBORG:
Japanski innanríkismálaráðherrann
sem mjög hefir borið á í stjórninni
undanfarið, lagði það til á stjórnar-
fundi í fyrradag í viðurvist keisarans,
að Japanir segðu Kínverjum formlega
stríð á hendur.
Fjármálamenn í Japan aðvara
stjórnina um það, að hætta sér ekki
lengra en komið er út í ófriðaræfin-
týrið, og er orsökin talin vera sú, að
japönsk skuldabréf falla nú í verði á
kauphöllum utanlands og innan, en
herforingjarnir halda því fram, að
héðan af verði ekki aftur snúið og hið
eina sem komið geti til mála af hálfu
Japana, sé að taka undir sig svo mikið
af Kína, að eitthvað verði til að borga
með. — Japanir hafa nú tekið Tsing-
tao. — FÚ.
Uppreísraarmesm
játa ósígur s5nn
Stjórnarherinn hef-
ir allt umhverfi Te-
ruel á valdi sínu.
KALUNDBORG:
Útvarpið í Sevilla játar í gær ófarir
uppreistarmanna við Teruel, en segir
að ástæðan til þess að þeir hafi gefizt
upp, hafi verið sú, að liðsauki sem þeir
áttu von á, hafi komið of seint. Þá er
og sagt frá því í sömu frétt, að land-
fræðilega sé aðstaðan þarna mjög erfið,
og loks hafi kuldi og snjór riðið bagga-
muninn, svo að sókn uppreistarmanna
hafi verið brotin á bak aftur. Teruel og
allt umhverfi hennar er nú algerlega á
valdi stjórnarinnar. — FÚ.
Pólland fer ekki
ár Þjóðabandalayinu.
LONDON:
Beck, utanríkismálaráðherra Fól-
lands hélt ræðu í gær, þar sem hann
sagði, að Pó.Uand vildi ekki auka á
erfiðleika og áhyggjur Þjóðabanda-
lagsins, en samt sem áður yrði það að
fá greinilega að vita, hverjar skuld-
bindingar Póllands væru og hve langt
þær næðu. Hann sagði, að úrsögn
ýmsra stórvelda úr Þjóðabandalaginu
hefði skert áhrifavald þess og lægi
við sjálft, að Þjóðabandalagið væri nú
orðið að bandalagi þjóða, sein væru i
andstöðu við annað bandalag þjóða,
sem stæðu utan þess. — FÚ.
Fœreyinyum hjálpað
EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN:
Danska stjórnin er nú að íhuga það,
að veita Færeyingum nýtt fiskveiðalán
að upphæð 400 þús. kr., til þess að bæta
Færeyingum það, að þeim var synjað
um leyfi til þess að gera samning við
Gismondi um bækistöð fyrir ítalska
togara í Þórshöfn. — FÚ.
Níðurstaðan af at-
hugunum Hagstof-
unnar
Samkvæmt útreikning-
um Hagstofunnar er dýrtíð
hér í bænum ekki meiri nú
en á þeim tíma, þegar sein-
ast var samið um ráðning-
arkjör á togurum.
Nýja dagblaðið hefir í sam-
ráði við fjármálaráðherra feng-
ið Hagstofuna til að gera sam-
anburð á verðlagi hér í bænum
á síðastl. hausti og þegar sein-
ast voru gerðir samningar um
kaup sjómanna á togurum. En
ráðningarkjörin hafa verið ó-
breytt síðan í ársbyrjun 1929,
að því frátöldu að kaup á ís-
fiskveiðum hefir hækkað samkv.
samningi, er gerður var 1935.
Niðurstaðan á þessari athug-
un Hagstofunnar er sú, að vísi-
tölur hafa á þessum tímum
verið sem hér segir: Okt. 1928 Okt. 1937
Matvörur '220 194
Eldsneyti og ljósmeti 192 199
Fatnaöur og þvottur 222 257
Útsvör og skattar 135 253
Húsnæði 433 493
Önnur gjöld 228 209
Aðalvísitalan 253 257
Við þessar niðurstöðutölur
Hagstofunnar er eftirfarandi að
athuga:
Húsnæði er miðað við húsnæð-
isskýrslur 1928, en slíkar skýrsl-
ur hafa ekki verið gerðar síðan
1930. Hagstofan hefir því reikn-
að húsaleiguna í okt. 1937, þann-
ig, að miða við húsnæðisskýrsl-
urnar 1930 og hækkun bygging-
arkostnaðar síðan. Er þó vitan-
legt að byggingarkostnaður hef-
ir hækkað miklu meira en húsa-
leigan á síðustu árum og benda
allar heimildir til að húsaleigan
hafi að mestu leyti staðið í stað
síðan 1928. Hækkun hennar hef-
ir a. m. k. orðið miklu minni en
vísitölur Hagstofunnar benda til.
Hækkun á útsvörum og skatti
er miðuð við 4000 kr. nettotekj-
ur. Er vitanlegt, að á lægri tekj-
um hafa skattar hækkað sára-
lítiö og útsvör heldur ekki nærri
eins mikið. Þessi hækkun nær
því ekki til sjómanna og ann-
ara láglaunamanna, nema að
litlu leyti.
Síðan í október 1937 hefir
vísitalan á matvörum lækkað
(Framhald á 4. slðu.)
Hagstofan hefir nú lokið bráða-
birgðayfirliti um verzlunina við útlönd
á síðastliðnu ári.
Samkvæmt því hefir útflutningurinn
á árinu numið kr. 58.933.560.00 og inn-
flutningurinn kr. 51.626.200.00.
Verzlunarjöfnuðurinn hefir því orðið
hagstæður á árinu um 7.307 þús. kr.
Árið 1936 var útflutningurinn 48.238
þús. kr. og innflutningurinn 41.631 þús.
kr. Verzlunarjöfnuðurinn á því ári hef-
ir því verið hagstæður'um 6.607 þús. kr.
Árið 1935 var útflutningurinn 47.777
þús. kr. og innflutningurinn 45.470 þús.
kr. Hagstæður verzlunarjöfnuður þá
hefir því verið 2.302 þús. kr.
Þessi þrjú stjórnarár núverandi rík-
isstjórnar hefir verzlunarjöfnuðurinn
þvi verið hagstæður samanlagt um
16.216 þús. kr.
Hvaða áhrif það hefði haft, ef inn-
flutningurinn hefði verið frjáls á þess-
um árum, má bezt marka á því, að á
stjórnarárum íhaldsins, árin 1925, 1926,
og 1927 nam innflutningurinn samtals
191.120 þús. kr. Ef innflutningurinn
hefði verið svipaður á árunum 1935—
1937, hefði hallinn á verzlunarjöfnuði
þessara ára orðið um 26 millj. kr. Er
þó vitanlegt, að innflutningurinn hefði
Gcngur norski Alþýðn-
flokkurinn í Alþjóða-
samliamlið?
Stjórn norska alþýðuflokksins hefir
fengið það samþykkt með öllum at-
kvæðum gegn einu, í framkvæmdaráði
flokksins, að fram skuli látin fara
allsherjar atkvæðagreiðsla um það,
hvort flokkurinn skuli ganga í alþjóða-
samband jafnaðarmanna. Er gert ráð
fyrir að atkvæðagreiðslu þessari geti
orðið lokið í febrúar.
Undanfarið hafa staðið yfir samn-
ingar um sameiningu norska alþýðu-
flokksins og kommúnistaflokksins, en
það hefir ekki tekizt að fá sameining-
una, aðallega vegna þess, að kommún-
istar hafa ekki getað fallizt á samein-
inguna án þess að hafa jafnframt sinn
eigin skipulagða félagsskap fyrir sig.
— FÚ.
Rúmenar oy Frakkar
LONDON OG KALUNDBORG:
Mishescu, utanríkismálaráðherra
Rúmeníu, átti í gær tal við forseta og
forsætisráðherra og utanrikismálaráð-
herra Tékkoslóvakíu í Prag, og er nú
ný-lagður af stað þaðan til Belgrad í
Júgóslavíu. Að loknum viðræðum hans
við tékknesku ráðherrana, var gefin
út opinber yfirlýsing, þar sem sagt var
að þeir hefðu verið á einu máli um
allt, sem bar á góma. — FÚ.
orðið mun meiri síðari árin en þau
fyrri, ef útflutningurinn hefði verið
frjáls.
Ef stefna heildsalanna hefði ráðið
á undanförnum þremur árum, hefði
hallinn á verzlunarjöfnuðinum því
numið mörgum tugum milljóna króna
í stað þess að hann hefir verið hag-
stæður um röskar 16 millj. kr. Á þessu
getur þjóðin dæmt, hvorum sé betur
treystandi til að hafa forsjá þessara
mála, Framsóknarflokknum eða Sjálf-
stæðisflokknum.
Fyrirspurnir
endurteknar.
Fyrir viku síðan birtist mikil
lofgrein í Þjóðviljanum um nýju
stjórnarskrána og lýðræðið í
Rússlandi. í tilefni af því voru
eftirfarandi fyrirspurnir lagðar
fyrir ritstjóra blaðsins, Einar
Olgeirsson:
Myndu koinmúnistar ekki
reyna að koma á samskonar
„frjálsræði til að stilla upp
frambjóðendum og tryggja kosn-
ingu þeirra" hér á landi, ef þeir
hefðu aðstöðu til þess?
Væri það lýðræði, ef Ólafur
Thors kæmist hér til valda og
breytti stjórnarskránni þannig,
að ekki mætti aðrir tilnefna
frambjóðendur en félög verzl-
unarmanna, bænda og verka-
manna, sem viðurkennd væru af
ríkisvaldinu, og sérstök nefnd,
skipuð af Ólafi Thors, ákvæði
það síðan endanlega, hverjir af
þessum tilnefndu frambjóðend-
um fengju að vera í kjöri?
Þar sem E. Olgeirsson hefir
enn ekki svarað þessum fyrir-
spurnum, eru þær því hér með
endurteknar. Fyrirspurnum frá
Einari, sem komu nokkru seinna,
er svarað hér í blaðinu í dag, og
ætti því enn frekar að mega
vænta þess, að hann léti ekki
lengur standa á svörunum.
Kosning
utan kjörfunda er hafin á skrifstof-
um lögmannsins í Arnarhvoli, 3. hæð.
Skrifstofurnar eru opnar frá kl. 10—12
árdegis og kl. 1—4 síödegis alla virka
daga. Framsóknarmenn, sem dvelja hér
í bænum, en eiga kosningarétt í öðrum
kaupstöðum landsins eða kauptúnum
þar sem sveitastjórnarkosningar fara
nú fram, eru áminntir um að neyta
atkvæðisréttar síns í tæka tíð. Sérstak-
lega er áríðandi að Austfirðingar dragi
ekki að kjósa, sökum strjálla sam-
gangna við þann landshluta. Kosn-
ingaskrifstofa Framsóknarflokksins í
Hafnarstræti 16, sími 2323, mun annast
heimsendingu atkvæðanna, ef þess er
óskað. Engar upplýsingar liggja fyrir
um það hjá lögmanni, með hvaða bók-
staf framboðslistarnir úti um land eru
auðkenndir.