Nýja dagblaðið - 05.03.1938, Qupperneq 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Óánægja í
Vestm.eyjum
Færeyingum kennd-
ar veidiaðferðir
V estmannaey inga
Eggert frá Nautabúi hefir tek-
ið á leigu 5 færeyskar skútur,
sem hann gerir út frá Færeyjum
á þorskanetaveiðar við Vest-
mannaeyjar í vetur. Á síðast-
liðnu hausti sendi Eggert mann
frá Eyjum til Færeyja til þess
að kenna Færeyingum að setja
upp þorskanet og á öllum skút-
unum eru fiskiskipstjórar frá
Eyjum.
Vestmannaeyingar líta þessa
útgerð illu auga, að vonum,
enda er þetta alveg hliðstætt
því, er norðlenzkir kaupmenn
sendu fyrir nokkrum árum
menn til Noregs til þess að
verka saltkjöt eftir íslenzkum
aðferðum.
Vafalítið er talið, að ef þessi
tilraun tekst vel, þá muni mikill
hluti færeyska fiskiflotans, en
hann er 180 skip, taka upp þessa
veiðiaðferð og yrði þá þar með
eyðilögð netaveiði Vestmanna-
eyinga í framtíðinni.
Fisksala
til Skotlands
Glasgowfirmun Daniel McLay
og A. Eddie, hafa undanfarið
verið að láta semja um kaup á
dragnótafiski í Vestmannaeyj -
um fyrir næsta sumar. Bæði
þessi firmu hafa keypt drag-
nótafisk í Eyjum undanfarin ár
og viðskiptin við þá reynzt vel.
Verðið á kolanum að þessu sinni
er nokkru hærra en áður eða:
Rauðspretta: stór kr. 0.50
miðlungs — 0.40
smá — 0.20
Lúða: yfir 5 kg. — 0.60
1.5 til 5 kg. — 0.40
smærri — 0.20
Sólkoli: stór — 0.40
miðlungs — 0.35
smár — 0.20
Langaflúra: stór — 0.29
miðlungs — 0.20
smá — 0.15
Öfugkjafta — 0.15
Smáýsa — 0.10
Verð þetta er miðað við fisk-
inn afhentan upp úr bát. Fram
að 1. maí er verðið 25% hærra
og sömuleiðis eftir 25. septem-
ber.
Gert er ráð fyrir að yfir 30
bátar stundi dragnótaveiðar frá
Eyjum að sumri.
Aðsent:
Góður sjónleíkur
Um þessar mundir sýnir Leik-
félag Reykjavíkur merkilegan
og lærdómsríkan sjónleik. Hann
er eftir eitt mesta öndvegis-
skáld Breta, en færður í ís-
lenzkan búning af Ragnari
Mmningarsjóður
um Sigurð á Brúnum
Vestur-Eyfellingar hafa stofn-
að sjóð til minningar um Sigurð
Vigfússon bónda á Brúnum, sem
lézt 15. desember 1936.
Tilgangur sjóðsins samkvæmt
skipulagsskránni er:
1. Að auka trjágrjóður innan
sveitar Sigurðar heitins, með
með því fyrst og fremst að koma
upp trjáreit á hverju býli sveit-
arinnar.
2. efla þroska og heilbrigði
með æskulýð Vestur-Eyjafjalla-
hrepps, með því að stuðla að
söngmennt og hljómlist meðal
hans, og bindindi á vín og tó-
bak.
Stjórn sjóðsins skipa séra Jón
M. Guðjónsson formaður, Krist-
ján Ólafsson bónid Seljalandi,
gjaldkeri, og Sigmundur Þor-
gilsson kennari Yztaskála, rit-
ari.
Með Sigurði Vigfússyni féll frá
einn hinn vinsælasti og gagn-
menntaðasti maður úr sunn-
lenzkri bændastétt. Hafði hann
þó aldrei á skóla gengið. Hann
var víðlesinn í íslenzkum og er-
lendum bókmenntum, ritfær í
bezta lagi, hagorður, úrvals
skrifari, söngvinn og einn hinn
áhugamesti í hverskyns holl-
um og hagnýtum félagsmálum.
Við bæ sinn hafði hann komið
upp fögrum skrúðgarði.
Er því ekki að undra þótt
sveitungar hans vilji halda
minningu hans á lofti, enda
verður að telja að þeir hafi í
því efni ratað rétta leið. Og ef-
laust eru til menn í öðrum bygð-
arlögum, sem kysu að leggja þar
hönd að.
Hefir sjóðstjórnin falið Guð-
brandi Magnússyni forstjóra að
veita viðtöku í Reykjavík fram-
lögum sem minningarsjóði Sig-
urðar Vigfússonar kynnu að
berast.
Kvaran, sem er leikstjóri og
leikur aðalpersónuna víða með
ágætum.
Leikur þessi er skemmtilegur,
bæði vegna þess létta gamans,
sem alvaran er klædd í, og góðr-
ar meðferðar og skilnings flestra
leikendanna á hinum mismun-
andi hlutverkum.
En alvaran og sannindin, sem
þetta leikrit flytur, verður svo
eftirtektarvert, að það mun fara
fyrir mörgum fleirum en mér á
þá leið, að þeir hafi ekki lengi
undanfarið verið á samskonar
skemmtun, sem hafi gefið þeim
eins mikið umhugsunarefni eins
og þessi leikur Leikfélagsins á
„Fyrirvinnunni" hans Somer-
set.
Það er vonandi að Reykvík-
ingar sýni þroska sinn og
smekkvísi í að sækja þessa leik-
sýningu Leikfélagsins vel og a.
m. k. ekki lakar en ómerkilega
og listsnauða skopleiki, sem
stundum byggjast á klaufalegu
narti í náungann og að „það
henti bezt að hafa allt sem vit-
lausast".
Leikhússgestur.
aðeins Loftur.
— áður en bíllinn kemur
Bíðið ekki með að brunatryggja innbú yðar. Þó
allt sé í bezta lagi í dag, getur það verið of seint
á morgun.
Svo að segja daglega koma fyrir, hér á landi,
stærri eða minni brunatilfelli.----Hvar næst?
Enginn er óhultur.
Örfáar krónur* á ári, kannske 5—10, geta bjarg-
að yður frá eignatjóni, sem þér annars aldrei
biðuð bætur á.
Látið nú verða af því. Hringið í síma 1700 og frá
því augnabliki er alh tryggt.
BRUNADEILDIN.
Eimskip 2. hæð. Sími 1700.
Kjarnar — (Essensar)
Höfum bírgðir af ýmiskonar kjörnum tiliðnaðar
Áfengisverzlun ríkísins.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
► Borgíð Nýja dagblaðíð!
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
Happdrætti
Háskóla
Islands.
í íslenzka happdrættinu er
hægt að vinna mörgum sinnum
á sama ári á sama miðann, enda
hefir það margoft komið fyrir.
Flýtið yður því að kaupa miða,
á'öur en það verður um seinan.
Frá starfsemi
happdrættisins.
32. Bjargaöi sér frá sveit.
Konan A. á Norðurlandi barðist við
sveit með barnahóp og sjúkan mann.
Taldi hún það vissu, aö hún myndi
auðgast á happdrættinu. 1935 hlaut
hún 1250 krónur á fjórðungsmiða og
bjargaðist sæmilega af vegna þessa
vinnings.
33. Hættulegt að gleyma að
endurnýja.
1935 hlaut ungur maður frá Akúr-
eyri 25.000 króna vinning. Hann endur-
nýjaði miðann á aðalskrifstofunni í
Reykjavík kvöldið áður en dregið var.
Varð að senda símskeyti norður um
endurnýjunina og kom það svo seint,
að umboðsmaður hafði gengið frá
skýrslum og búið um endursendingu
óseldra miða.
34. Einkennilegnr draumur.
í Vestmannaeyjum kom maður tvis-
var sinnum til umboðsmanns og óskaði
eftir að fá ákveðiö númer í hvort
skiptið. Kvað hann sig hafa dreymt
þau og varð mjög áfjáður, einkum í
síðara skiptið. Númer þessi voru seld
annarstaðar, en í bæði skiptiin hlutu
þau hæsta vinning.
35. Hættulegt að sleppa
númeri sínu.
Einn af umboðsmönnum happ-
drættisins hefir reiknað út, hve miklu
viðskiptamenn í umboði hans hafa
tapað á því annaðhvort að hætta að
spila eða að endurnýja ekki. Upphæð-
in er 51.000 krónur.
Hvcr vfll missa vonina
um að vinna.
ATH. Vegna óvanalegrar
eftirsóknar tilkynnist heiðr
uðum viðskiptavinum Happ
drættisins, að pantaðir mið
ar hjá umboðsmönnum vor-
um, verða að skrásetjast og
sækjast í síðasta lagi 5.
marz, annars eiga við-
skiptamenn vorir á hættu
að hinir pöntuðu miðar
verði seldir öðrum.
Umboðsmenn í Reykjavík:
Frú Anna Ásmundsdóttir og frú
Guðrún Björnsdóttir, Túngötu 3,
sími 4380.
Dagbjartur Sigurðsson, kaupm.
Vesturgötu 45, sími 2814.
Einar Eyjólfsson, kaupmaður,
Týsgötu 1, simi 3586.
Elís Jónsson, kaupm., Reykja-
víkurveg 5, sími 4970.
Helgi Sívertsen, Austurstræti 12,
sími 3582.
Jörgen Hansen, Laufásvegi 61,
simi 3484.
Frú Maren Pétursdóttir, Lauga-
vegi 66, sími 4010.
Pétur Halldórsson, Alþýðuhús-
inu. —
Stefán A. Pálsson & Ármann,
Varðarhúsinu, simi 3244.
Umboðsmenn í Hafnarfirði:
Valdemar Long, kaupmaður,
simi 9288.
Verzlun Þorvalds Bjarnasonar,
sími 9310.