Nýja dagblaðið - 08.03.1938, Side 1

Nýja dagblaðið - 08.03.1938, Side 1
IVýjar vöriar í VORTÍZKU koma í búðina daglega. Þrátt fyrir hækkaða tolla hef- ir verðið ekkert hækkað. V-E-S-T-A Sími 4197. Laugaveg 40. rvyj/A ID/^QplBIL^tÐliE 6. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 8. marz 1935. 55. blað Islenzka skátahreyfingín svívírt ANNÁLL 67. dagur ársins. Sólarupprás kl. 7.15. Sólarlag kl. 6.03. Árciegisháflæöur í Reykjavík kl. 9. Ljósatími bifreiða er frá ki. 6.40 síðdegis til kl. 6.50 ár- degis. Næturlæknir er í nótt Ólafur Þorsteinsson, Mána- götu 4, sími 2255. Næturvörður er þessa viku í lyfjabúðinni Iðunn og Reykja- víkur Apóteki. Dagskrá útvarpsins: 10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 19.10 Veðurfr. 19.20 Þingfréttir. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindi: Lokaðir kirtlar (Jón Steffensen próf.). 20.40 Hljómpl.: Létt lög. 20.45 Húsmæðratími: Innl. fæðutegundir: Mjólk (ungfrú Sigurb. Kristjánsdóttir). 21.00 Symfóníu-tónl.: a) Ernst Drucker leikur á fiðlu. b) (21.40 Kammermúsik (Adolf Busch og Edwin Fischer leika) (plötur). Póstferðir á morgun: Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-póstar. Hafnarfjörð- ur. Seltjarnarnes. Til Reykjavíkur: Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-póstar. Hafnarfjörð- ur. Seltjarnarnes. Laxfoss frá Borgar- nesi. Ferðafélag íslands heldur skemmtifund að Hótel Borg í dag, 8. marz, og verður húsið opnað kl. 8.15. Frú Oddný Sen segir frá Kína og sýnir skuggamyndir. Dansað til kl. 1. Aðgöngumiðar seldir í bókaverzlun Sigf. Eymundssonar til kl. 6 á þriðju- dag. Aðgöngumiðar að samsæti Sigurjóns Péturssonar óskast sóttir kl. 3—6 í dag á skrifstofu Ármanns í íþróttahúsinu, sími 3356. Frá sjúklingum á Vífilsstöðum hefir blaðið verið beðið að færa hljóðfæraleikurunum, þeim Pétri Bern- burg, Stefáni Lyngdal, Jóni Ólafssyni og Tage Möller beztu þakkir fyrir komuna og hina ágætu skemmtun, sem þeir veittu þeim á föstudaginn var. íslandsdeild friðarfélagsins. „Mellanfolkligt samarbete" heldur fund í Oddfellowhúsinu uppi í kvöld, kl. 8%. Umræðuefni: Erlendir flótta- menn á íslandi. Félagsmenn mega taka með sér gesti. „Bláa kápan“ verður sýnd á miðvikudagskvöld og verða aðgöngumiðar seldir í Iðnó eftir kl. 4 í dag. Bjarni Björnsson endurtekur skemmtun sína á fimmtudagskvöldið, vegna mikillar að- sóknar. Lækkað verð. Þórður Jónasson, bóndi að Ljósalandi í Vopnafirði andaðist að heimili sínu 4. þ. m., 70 ára að aldri. Skipafréttir. Gullfoss var í Stykkishólmi í gær. Goðafoss er í Khöfn. Brúarfoss er á leið til London frá Vestmannaeyjum. Dettifoss fór til útlanda í gærkvöldi. Lagarfoss er á lenð til Austfjarða frá Leith. Selfoss fór frá Hull 1 gærkveldi áleiðis til Antwerpen. Esja fór í gær- kveldi í strandferð vestur um land. Félag ungra Framsóknarmanna hélt fund í gærkvöldi, þar sem rætt var um samband íslands og Danmerk- ur. Guðmundur V. Hjálmarsson hafði framsögu. Fjörugur umræður urðu um málið. Hjónaband. Ungfrú Elsa Friðfinnsson og Haukur snorrason verzlunarmaður voru nýlega gefin saman í hjónaband. Vígbánaður Englendinga Við mumiiii berjast fyrlr lýðræðið ef þörf krefur, segir Chamberlain. LONDON: í gær hófust umræður í brezka þing- inu um útgjöld til vígbúnaðar. Ohamberlain forsætisráðherra var fyrstur ræðumanna. Hann sagði að tilgangurinn með vígbúnaði Breta væri fjórfaldur: Að vera við því búinn að verja brezku eyjarnar, að vernda siglingaleiðir brezka verzlunarflotans, að aðstoða samveldislöndin við land- varnir sínar og að geta farið til liðs við þá bandamenn, sem Bretar kynnu að þurfa að styðja, ef til ófriðar kem- ur. Chamberlain kvaðst hvorki hneigjast að fasisma, nazisma eða bolshevisma. Sjálfur kvaðst hann myndi berjast fyrir lýðræðinu, er til stríðs kæmi og það hyggði hann að flestir samlandar hans myndu einnig gera. Tilgangur brezku stjórnarinnar væri þó sá, að búa svo í haginn, að enginn þyrfti að berjast. — FÚ. Orrustuskipi sukkt fyrir uppreistar- möiuium LONDON: Balearis, einu af beitiskipum upp- reistarmanna, var sökkt í fyrrakvöld undan Palos-höfða. Balearis, Canarias og annað beitiskip uppreistarmanna, voru þar á ferð, þegar tvö gömul beiti- skip stjórnarinnar bar þar að, ásamt tundurspilladeild, og var skotið tund- urskeytum úr beitiskipunum á Bale- aris. Það varð mikil sprenging í skip- inu, og síðan tók það að sökkva. Flug- vélar stjórnarinnar vörpuðu sprengj- um yfir skipið og önnur skip uppreist- armanna, á meðan Balearis sökk. Tvö brezk herskip, Boreas og Camp- enfelt, voru þarna í grenndinni og björguðu þau úr sjónum þeim sem komust lífs af. — FÚ. Lcpp-keisarinn myrtur LONDON: Chow Feng Chi, sá er Japanir höfðu ráðgert að gera að lepp-keisara, hefir verið skotinn til bana, og er álitið að banamaður hans hafi verið kín- verskur. Tilboði Mussolinis hafnað LONDON: Haile Selassie hefir opinberlega lýst því yfir, að hann muni ekki ganga að neinum skilmálum, að því er snerti Abessiníu, sem ekki séu í samræmi við fullkomið sjálfstæði ríkisins. — FÚ. | Ofviðrið á laugard.nóttína Xánari fregnir utan af landi. í gær var iokið viðgerð á hinum bil- uðu símalínum. Hafa borizt nýjar fréttir um margvíslegt tjón af völdum veðursins aðfaranótt laugardagsins. í Vestmannaeyjum skemmdust margir vélbátar á höfninni og einn, Ester, sökk. Átta árabátar eyðilögðust. Á Eskifirði varð mikið tjón á bátum, húsum og síma og rafmagnskerfi, og er talið, að skaðarnir nemi tugum þúsunda króna. í Fáskrúðsfirði og í Borgarfirði eystra urðu ýmsar skemmdir og skóla- húsið á Eiðum varð fyrir áfalli. Á Seyðisfirði urðu skemmdir á hús- um og bátum og á Norðfirði ónýttust fjórar bátabryggjur. Á Sauðárkróki sökk vélbátur. Á Raufarhöfn rofnaði þak síldar- verksmiðjunnar og fok urðu á tveimur bæjum í grenndinni, Rifi og Höskulds- staðanesi. Á þrem bæjum í Miðfirði, Brekkulæk, Huppahlíð og Melstað, hlauzt tjón af veðrinu. í Hornafirði fauk járn af útihúsum á nokkrum bæjum. Oívíðríð náðí eínníg tíl Noregs Tjónið iioiiiui* mörg- um milljónum króua EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN: Nánari fréttir eru nú komnar af of- viðrinu í Noregi og kemur það í ljós, að tjónið nemur mörgum milljónum króna. Veðrið hefir sumstaðar verið svo óstjórnlegt að með fádæmum þyk- ir. Þrír litlir strandbæir í norðanverð- um Noregi eru svo að segja í rústum svo að varla stendur hús uppi. Skóg- artré hafa brotnað og skógar víða eyðilagzt; skemmdir hafa orðið á járn- brautum og símum. Þýzka beitiskipið Köln laskaðist svo í veðrinu úti fyrir Noregsströnd, að draga varð það til hafnar í Þrándheimi. — FÚ. Nýr skrífstofustjórí í stjórnarráðinu Jónas Jónsson, Sigurjón Á. Ólafsson og Jóhann Jósefsson flytja frv. um að skipaSur verði sérstakur skrifstofustjóri fyrir skrifstofu utanríkismála. Utan- ríkismálin útheimta nú starfs- krafta og starfsskilyrði á við aðrar deildir stjórnarráðsins, og munu þó verkefnin vaxa á næstu árum. Ríkisstjórn og utanríkismálanefnd munu mæla með þessu frv. Skrifstofa utanríkismála mun verða flutt bráðlega úr Stjórnarráðshúsinu í Arnarhvál. Nf sáttatilraun Hæstiréttnr skipar nefnd til að koma á sáttnm í togara- deilunni. Fyrir atbeina ríkisstjórnar- innar verður gerð ný tilraun næstu daga til að koma á sáttum í togaradeilunni. Forsætisráðh. skrifaði hæsta- rétti í gær og óskaði eftir að rétturinn tilnefndi þriggja manna nefnd, sem ynni að því, ásamt sáttasemjara ríkisins, að koma á sættum milli deiluaðila allra næstu daga. Hæstiréttur hefir þegar til- nefnt mennina og eru það Hil- mar Stefánsson bankastj., Ein- varður Hallvarðsson, formaður gjaldeyris- og innflutnings- nefndar og Gunnlaugur Briem, fulltrúi í atvinnumálaráðuneyt- inu. Nefndin mun hafa komið sam- an strax í gær og mun vitanlega hraða störfum sínum eftir því sem hægt er. Nýr Dímítroff Bukliarin mælir gegn hinum fölsku ákær- um stjórnarinnar. L.R.P.: í réttarhöndunum í Moskva í gær vakti sjálfsvörn Bukharins mesta at- hygli. Hann neitaði þvi nú gjörsam- lega, að hann hefði nokkru sinni tekið þátt í ráðagerðum til að myrða Lenin. Ennfremur bar hann það algerlega af sér, að hann hefði nokkru sinni unnið að njósnum í þjónustu erlendra ríkja, né heldur kvatt nokkurn mann til þess að gera slíkt. Þá bar hann loks á móti því, að hann hefði átt nokkurn þátt í því að espa bændur til uppreistar gegn stjórninni, en þeirri sök er hann einnig borinn. — FÚ. Togarakaup Færeyinga EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN: Færeyingar eru nú að ljúka hinum fyrirhuguðu togarakaupum sínum. Fé- lag í Þórshöfn hefir keypt enskan tog- ara og frétzt hefir að annað færeyskt félag væri í þann veginn að festa kaup á öðrum enskum togara. — FÚ. Sæsíminn bilaður Sæsíminn milli íslands og Fær- eyja bilaði í gærmorgun og voru öll skeyti til útlanda afgreidd loftleiðis í gær. Helgí Tómasson kjörinn skáta- höfðíngí Skátahreyfingin er fjölmenn- asti og útbreiddasti æskulýðsfé- lagsskapur heimsins. Enginn slíkur félagsskapur nýtur óskor- aðra trausts og fyllri virðingar en hún. Það kemur af því, að andi hennar, lög hennar og öll starfsemi miðar fast og mark- visst til mannbóta og aukins drengskapar þeirra æsku- manna, sem hreyfingarinnar njóta. En því aðeins hefir tek- izt, að ná glæsilegum árangri í þessum efnum, og því aðeins hefir verið unnt að skapa traust og virðingu á hreyfingunni og halda því við, að hreyfingin hefir jafnan og hvarvetna ver- ið vönd að leiðtogum, því að þeir eru fyrirmynd hinna ungu skáta. Lög og reglur vega minna en fordæmið. íslenzku skátarnir hafa verið mjög heppnir með skátahöfð- ingja sinn fram að þessu. A. V. Tulinius var glæsimenni og drengur góður, sem alstaðar naut virðingar og allir treystu. Því meiri vandi var að velja honum eftirmann. Nú hefir það verið gert. Val- inn hefir verið dr. Helgi Tómas- son á Kleppi! Þetta er slíkt reginhneyksli, að annað verra hefir ekki gerzt í vali trúnaðarmanna á íslandi. Eitt meginboðorð skátalag- anna, eitt höfuðsérkenni skát- ans, er þetta: „Skáti er drengi- legur í allri háttsemi." Skáta- höfðinginn er yfirmaður og að- alfyrirmynd íslenzkra skáta. Hann á að vera persónugerð skátalögin og skátahugsjónin, svo fullkomlega sem unnt er. Og nú á dr. Helgi Tómásson að vera leiðtogi íslenzkra drengja um drengskap, maður sem fyrst og fremst er frægur að einu: ó- drengilegasta og viðurstyggileg- asta bragði, sem framið hefir verið í hinni miður drengilegu stj órnmálabaráttu voxri. Ó- skátalegra athæfi en hin fræga aðför dr. H. T. að Jónasi Jóns- syni er hér óþekkt til þessa. Það er stórlega sorglegt og verður að áteljast harðlega, að virðingu og tiltrú skátahreyf- ingarinnar hér á landi, og drengskaparhugmynd íslenzkra skáta um leið, skuli vera stofnað í hættu með því, að velja þeim skátahöfðingja með slíkri for- tíð. En úr því að þetta er þegar gert, verður að gera svo gott úr því og það svo óskaðlegt, sem verða má. Fyrir framinn ó- (Frh. á 4. síBu.)

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.