Nýja dagblaðið - 23.03.1938, Síða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Alpingi
Ný þingmál
Rafveitur ríkisins.
Iðnaðaxnefnd neðri deildar
flytur frv. til laga um rafveit-
ur ríkisins. Samkv. frv. er rík-
inu heimilt að stofna og starf-
rækja rafveitur, er vera skulu
eign ríkisins og reknar sem
fjárhagslega sjálfstætt fyrir-
tæki með sérstöku reiknings-
haldi undir umsjón atvinnu-
málaráðuneytisins. Stofnunin
skal heita: Rafveitur ríkisins.
Rafveitur ríkisins geta einn-
ig gerst meðeigandi í orkuveit-
um annara eða tekið þær á
leigu.
Rafveitur ríkisins skulu hafa
sérstakan framkvæmdarstjóra,
sem kallast rafveitustjóri ríkis-
ins.
í greinargerðinni segir að
venjulegast hafi bæjar- eða
hreppsfélög haft forgöngu um
virkjun og dreifingu raforku
til almenningsþarfa. En þessir
aðilar hafi ekki ráðið við meiri-
háttar framkvæmdir, án veru-
legrar aðstoðar ríkisins. Þess-
vegna sé sú leið farin í þessu
frumvarpi, að í áframhald-
andi raforkuvinnslu og dreif-
ingu milli kaupstaða, kaup-
túna og hreppa skuli ríkis-
stjórnin taka beinan þátt í að-
stoðinni með því að reka sjálf
almenningsveitur til slíkra
þarfa.
Frv. er undirbúið og flutt eft-
ir beiðni fráfarandi atvinnu-
málaráðherra.
Orkuráð.
Iðnaðarnefnd neðri deildar
flytur frv. til laga um orkuráð.
Skal það skipað sjö mönnum:
þrír menn tilnefndir af þrem
stærstu flokkum þingsins,
vatnamálaráðunautur ríkisins,
forstöðumaður rafmagnseftir-
litsins, forstjóri Sogsvirkjun-
arinnar og skrifstofustjóri í
atvinnumálaráðuneytinu. —
Orkuráð skal eiga frumkvæði
að rannsóknum á hagnýtingu
vatnsorku og hveraorku og
gera tillögur um notkun þeirra.
Reynt sé eftir megni að láta
opinberar stofnanir annast
slíkar rannsóknir, án auka-
kostnaðar.
Frv. er flutt samkvæmt beiðni
fráfarandi atvinnumálaráð-
herra.
Af Fljótsdalshéraðí
Af Fljótsdalshéraði er blaðinu
skrifað, að ofviðrið, sem varð 4.
þ. m., hafi valdið þar miklu tjóni
einkum á húsum. Víða fauk
járn af hlöðum og urðu hey
þannig fyrir miklum skemmd-
um. Sumstaðar fauk einnig
mikið af heyi. Elztu menn þar
segjast ekki muna eftir meira
veðri, nema ef vera skyldi
páskabylurinn 1918.
Síðan hefir tíðin verið fram-
úrskarandi góð og" er orðið al-
autt í byggð. Fénaðarhöld hafa
verið góð.
9. þ. m. lézt að Finnsstöðum í
Eiðaþinghá, Jón Ámason, fyrr-
um bóndi þar.
Lagarfljót hefir aldrei verið
farið á ís í vetur og er það
sjaldgæft.
Bióirx
Lloyds í London.
heitir amerísk mynd, sem Nýja
Bíó byrj ar að sýna í kvöld. Efnið
er sótt í sögu Englands og hins
heimsfræga vátryggingarfélags.
Aðalsöguhetjan er Jonathan
Blake, sem náði miklum völdum
hjá félaginu. Hann var æskufé-
lagi og vinur Nelsons, sjóliðs-
foringjans fræga. Einn þáttur-
inn lýsir tilraunum félagsins til
að ná nokkrum hluta af her-
skipum þeim, sem heyrðu undir
Nelson, til að fylgjast með kaup-
förum og verja þau árásum
Frakka. Slíkt hefði getað orsak-
að ósigur Nelsons og brezka
heimsveldisins. Blake reyndi því
að afstýra þessu eftir megni,
þótt hann stofnaði með því
eignum, mannorði og lífi sínu i
hættu.
Myndin er mjög viðburðarík
og vel leikin, eftir því, sem er-
lendum blöðum segist frá.
Jonathan Blake leikur Fred-
die Bartholomew (meðan hann
er ungur) og Tyrone Power. La-
dy Elizabeth, sem er ástmey
hans, leikur Madeleine Carroll.
Kvikmyndafréttir.
Það er enn ekki séð, hvaða
kvikmyndir, sem gerðar voru á
síðastl. ári, munu hljóta mestan
orðstír. En meðal þeirra beztu
eru einkum nefndar tvær
myndir, „Perlur kórónunnar" og
„Svikahrappurinn". Þær eru
franskar og hefir Sacha Guitry
haft leikstjórn beggja á hendi.
Fyrri myndin rekur sögu fjögra
dýrmætustu perlanna, sem til-
heyra ensku konungsættinni.
Hún nær yfir rúmlega þrjár ald-
ir og mörg stórmenni koma þar
við sögu, eins og Franz I.
Frakkakonungur, Henrik VIII.
Englakonungur, páfi Clemenz
VIII., Maria Stuart, Katarina af
Medici, Elizabeth Englands-
drottning, Napóleonarnir I. og
III. o. s. frv. Myndin endar á
hinu nýja Atlantshafsfari, „Nor-
mandie“.
Seinni myndin hefst með því,
að ellefu menn verða fyrir eitr-
un, en sá tólfti sleppur, vegna
þess að hann hafði stolið 8 aur-
um og var settur hjá. Hann
heldur óráðvendni sinni áfram
og allt gengur vel. En seinna
ætlar hann að gerast heiðvirður
og ráðvandur, en þá snýst ham-
ingjan á móti honum.
Þetta eru fyrstu myndirnar,
sem Sacha Guitry hefir stjórnað
og hafa þær aflað honum mik-
ils álits.
Lillian Harvey hefir eignazt
hættulegan keppinaut. Hún
heitir Marika Röck og er 24 ára.
Hún er ungversk að ætt og hefir
þegar leikið í tveim myndum.
Áður hafði hún aflað sér mikill-
ar frægðar fyrir dansleikni sína
og þykir líklegt að hún muni í
framtíðinni skipa það sæti í
þýzkri leiklist, sem Lillian Har-
vey hefir haft.
*
Columbia hefir nýja Hepburn
—Grant mynd í undirbúningi.
Leikstjóri er George Cukor, sem
hefir áður stjórnað „Kamelíu-
frúnni“ og „Romeo og Júlía“.
*
Námsstyrkir
Búnaðarfélagfsms
Búnaðarfélag íslands hefir
nýlega úthlutað styrk til náms-
manna erlendis fyrir yfirstand-
andi ár.
Eftirfarandi menn hafa hlotið
styrk:
Búnaðarhásk.nám í Danmörku:
Zophonias Pálsson kr. 300.00
Gunnar Bjarnason — 300.00
Sig. I. Sigurðsson — 3Ó0.00
Gísli Kristjánsson — 300.00
Stefán Björnsson — 300.00
Kristj. H. Pétursson — 400.00
Jón Jónsson — 400.00
Árni Jónsson — 400.00
Búnaðarháskólanám l Svíþjóð:
Áskell Löve kr. 600.00
Ólafur Björnsson — 300.00
Garðyrkjunám í Danmörku:
Jónas S. Jónsson kr. 100.00
Mjólkurlðn.nám í Danmörku:
Þ. Ragnar Jónasson kr. 200.00
Skafti Óskarsson — 200.00
Ólafur Þórðarson — 200.00
Mjólkuriðnaðarnám l Noregi:
Jóh. S. Þorsteinsson kr. 200.00
Búnaðarnám í Noregi:
Halld. Guðlaugsson kr. 100.00
Jóhann Jónasson — 100.00
Bjarni Fanndal — 100.00
Eðvald B. Malmquist — 100.00
Vefnaðarnám í Noregi:
Margrét Gísladóttir kr. 100.00
Ströng lög
Hinn 23. júlí 1937 gáfu ar-
gentisk stjórnarvöld út til-
skipun, þar sem ýmsum opin-
berum starfsmönnum, svo sem
tollmönnum, heilbrigðisfulltrú-
um, hafnarlögreglumönnum o.
fl., sem vinna að eða hafa um-
sjón með afgreiðslu skipa, er
bannað að fara fram á eða taka
á móti, í sambandi við starf
sitt, nokkrum aukaþóknunum
eða gjöfum í hvaða mynd sem
er. Tekur bannið einnig til
gjafa á mat og drykk um borð
í skipi.
Tilskipunin kveður á um, að
hver sem gerir sig sekan um að
bjóða nefndum starfsmönnum
slíkar þóknanir eða gjafir,
skuli sæta frá 6 mánaða til 2ja
ára fangelsisvist. Sama refs-
ing bíður þess, sem tekur á
móti gjöfinni.
(Tekið upp úr félagsblaði
Assurance-foreningen Skuld
(Gjensidig) apríl—júní 1937).
Hin ódauðlega saga Mark
Twain’s, „Tom Sawyer", hefir
nýlega verið kvikmynduð. Þessi
fræga saga hefir verið þýdd á
íslenzku og birzt í Nýjum kvöld-
vökum.
KAl/PIÖ
Bálfarafélag Islands.
Skrifstofa: Hafnarstrœti 5.
Félagsskírteini (æfigjald) kosta 10 kr.
Skírteini, sem tryggja bálför, kosta 100
krónur, og má greiða þau í fernu lagi,
á einu ári. Allar nánari upplýsingar á
skrifstofu félagsins. Simi 4658.
Blindravinaíélag Islands
Sími 4046 SÖLUDEILD LauSásvegi 19
Höfum nú fyrírliggjandi
GÓLFKLÚTA í heildsölu
Hlálpið bllndum!
Kaupið vörur þeirra.
KR0N
lækkar kaffíverðið:
Bláa kannan, br. og malað .. búðarverð 0.80 pk.
Brennt kaffi, ómalað..... ...... 2.90 kgr.
Óbrennt kaffi............ ...... 2.15 kgr.
Reyníð »Bláu kðnnuna«.
Tilkynning.
Það tilkynnist hér með, að frá og með 1. marz
1938, hefi ég undirritaður tekið að mér Reykja-
víkur afgreiðslu Sameinaða gufuskipafélagsins í
Kaupmannahöfn.
Samkvæmt leyfi frú Ragnheiðar Zimsen, rek
ég nefnda afgreiðslu framvegis undir sama nafni
og áður var,
SKIPAAFGREIÐSLA JES ZIMSEN
og með fullri ábyrgð minni.
Virðingarfyllst
Erlendur Pétursson.
Garnír
Kaupum saltaðar, vel verkaðar garnir og
langa úr kindum, kálfum, nautum og
svínum.
Garnastöðin, Reykjavík,
Sími 4241.