Nýja dagblaðið - 21.04.1938, Page 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
3
, i..
\ÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: Blaðaútgáfan h.f.
.
Ritstjóri:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
Ritstjórnarskrifstofumar:
Lindarg. 1 D. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Lindargötu ÍD. Síml 2323.
Eftir kl. 5: Síml 3948.
Áskriftarverð kr. 2,00 á mánuði.
í lausasölu 10 aura eintakið.
Prentsmiðjan Edda h.f.
Símar 3948 og 3720.
i ,mm — 0-.0 — ° —o ——° ——11 >
Sumatíð og börnín
Allir fagna sumrinu, en senni-
lega börnin mest. Börnin í höf-
uðstaðnum hafa alveg sérstaka
ástæðu til að gleðjast yfir komu
sumarsins. Allan veturinn eru
þau nokkuð aðkreppt inni í borg-
inni. Skólarnir rúma ekki nærri
öll börn bæjarins, nema með því
að margsett sé í hvert sæti. Leik-
vellir eru fáir og af allra léleg-
asta tagi. Hnir vísu feður bæj-
arins hafa fundið upp alveg sér-
kennilega tegund af leikvöllum
til að hressa hina ungu Reykvík-
inga. Það eru ömurlegar, þröng-
ar steinsteypugirðingar utan um
sand eða flag. Einn slíkur völlur
er í smíðum skammt ofan við
gasstöðina. Þar er búið að taka
lægðina alla neðan við Sunnu-
hvol undir hús. Græna túnið í
þeirri dæld var sjálfsagður leik-
vangur fyrir börn úr austurbæn-
um. Nú er þetta græna svæði allt
þakið húsum og malbikuðum
götum, en fyrir börnin er gerð
ofurlítil steinsteypustía, sem
minnir á fangabúðir.
Sumardagurinn fyrsti á að
minna Reykvíkinga á að á þessu
sumri þarf að byrja sterk og
markviss barátta til að koma
börnum höfuðstaðarins á gras.
Hið mikla framtíðarskipulag, er
Framsóknarmenn hófu baráttu
fyrir þjóðhátíðarárið 1930, þegar
þeir áttu fyrst fulltrúa í bæjar-
stjórn, er að gera landið allt frá
Tjörninni og suður að Skerja-
firði, þar með talda Öskjuhlíðina
að leikvelli, íþróttasvæði og hress
ingarstað fyrir börn þessa bæjar.
Bærinn og úthverfi hans lykja nú
þegar meira og minna um allt
þetta svæði. Vatnsmýrin á að
verða fyrir Reykjavík það sem
Hyde Park er fyrir London: Allt
grænir, sléttir vellir, þar sem
börn og fullorðnir finna angan
gróðurs og blóma, eins og í frið-
lýstri graseyju, innan um eyði-
mörk steinsteypu- og asfaltvega.
En sunnan við þessa grasey kem-
ur leikvangurinn og þá hinn
mikli baðstaður við Skerjafjörð.
Þegar þessi ráöagerð er komin í
framkvæmd, hverfa öll börn úr
fangabúðum þeim, sem nú eru
byggðar þeirra vegna inni í
borginni. Þau elta gróðurinn,
blómin og hinn salta sjó suður
úr bænum alla daga sumarsins,
þar til skólinn og veturinn kalla
þau aftur inn á múrbrúnir og as-
faltvegi.
Börnin eiga líka aðrar og enn
fegurri nýlendur. Hin víða og
breiða sveit opnast fyrir þúsund-
ir af börnum borgarinnar. Mörg
fara á sveitabæi víða út um land,
og hið fjölþætta starfslíf sveit-
Víðavangsskólarnir i Danmörku
Eflir Hallgrím Jónasson
Austur frá norðanvexðu
Mið-Jótlandi gengur allbreiður
skagi, sem heitir Djursland.
Norðan við hann er Randers-
fjörðurinn, en sunnan meg-
in Kaleyjarvík.
Úti við Jótlandshafið er
landiö nokkuð flatlent, en verð-
ur því öldóttara, sem sunnar
dregur og vestur á skagann.
Frjósemi er ekki eins mikil
þarna sem víða annarsstaðar á
Jótlandi. Jarðvegurinn er send-
inn, og ekki sérlega vel fallinn
til akurgerðar, nema þá helzt
fyrir rúg og jarðepli.
í daladrögunum og lægðunum
milli hæðanna, liggja snotur
þorp, dreifð bændabýli og margt
gamalla herragarða. Hið forna,
lyngivaxna heiðaland er víðast
brotið- til ræktunar og breið
greniskógarbelti, sem gróður-
sett voru fyrir 30—40 árum,
breiða nú skjólríkar limar um
flöt akurlendi og blómsæla
byggð.
Eitt af nesjum þeim, sem
ganga suður úr aðalskaganum,
heitir Mols. Það er heimkynni
Molbúanna. Sögurnar af þeim
eru alkunnar, á sinn hátt eins
og frásagnir Bakkabræðra hjá
okkur. Hitt er aftur á móti að
mestu eða öllu ókunnugt,
hvernig á því stendur, að Mol-
búunum eru eignuð svo mörg
og hjákátleg heimskupör, því
fólkið þarna er jafn vel gefið
og jafnvel mennt, sem íbúar í
öðrum hlutum landsins.
En nú vil ég biðja lesend-
ur mína að fylgjast með mér
í huganum suður á Molsskaga,
stutta stund og athuga þar einn
þátt í skólamálum Dana, eins
og hann hefir verið rekinn um
allmörg' undanfarin ár.
Það var einn dag í byrjun
síðastliðins septembermánað-
ar, að ég hjólaði út frá bænum
Grenaa, er stendur austast á
anna er þeim betra en nokkur
skóli. En því miður eru alltof fá
börn, sem eiga von á sumarvist
á sveitabæ. En mörg af þeim fá
aðra möguleika. Tjaldborgir til
sumardvalar eiga að rísa víða í
nánd við höfuðstaðinn. Talað er
um tjaldborg á Reykjum í Ölfusi.
Önnur gæti verið á Reykjum í
Mosfellssveit. Hn þriðja í Foss-
vogi, fyrir þær mæður, sem ekki
eiga heimangengt langt frá sin-
um heimkynnum.
Tjaldborgir margar og fjöl-
mennar við sjó og heita staði
eiga að verða sumarheimkynni
þúsunda mæðra og barna úr höf-
uðstaðnum, margar vikur af
hinu hvikula íslenzka sumri.
Sumardagurinn fyrsti heilsar
börnum Reykjavíkur með opnum
örmum. Þetta sumar á að færa
æsku höfuðstaðarins út úr bak-
görðum og þröngum malar- og
asfalt-götum, út í náttúruna, til
samfélags við dýrin, þar sem grös
og gróður angar og nóttin er út-
læg um margra vikna skeið.
J. J.
skaganum Djúrsland, út við
hafið.
Skólastjórinn í þorpinu fylg-
ir mér á leið. Það er einn af
vinsemdarvottum hans, fyrir
það að ég hafði um morguninn
flutt erindi í skólanum og sýnt
skuggamyndir frá íslandi.
Veðrið er yndislegt, — eins
og það hafði verið allan ágúst-
mánuð og raunar sumarið allt.
Sólskin, hiti og logn. Um síð-
ustu hundrað ár hefir aðeins
einu sinni komið jafngott sum-
ar, eftir því, sem talið var. Og á
góðum vegum og í góðri tíð, er
ekkert farartæki handhægara
né ódýrara en hjólhesturinn. í
þetta skifti ferðaðist ég á hon-
um landið þvert og endilangt
og naut þannig betur en ann-
ars hinnar einstöku veðurblíðu
og áhrifanna af landsins smá-
fögru, frjóu náttúru og yndis-
leik.
Það er litlu skemmra til Mols
en Árósa, um 60 km. Þegar
þangað er komið, er útsýn fal-
leg af öldóttu nesinu. Beint í
vestri sér til höfuðborgar Jót-
lands handan við Riskovsundið.
Norður í botni Kaleyj arvíkur
mótar greinilega fyrir hallar-
rústunum, þar sem Gústav Vasa
Svíakonungur sat fangi á sinni
tíð. En rétt í suðurátt rís Sáms-
ey, lág og flatlend upp úr
dimmbláu hafinu, sömuleiðis
auðug af sögum gamalla at-
burða, eins og fundi þeirra
Hjálmars hugumstóra og Ang-
antýs.
Víðavangsskólinn
Á einum stað, milli skógi vax-
inna hæða, stendur einstök og
snotur timburbygging. Það er
auðsýnilega ekki bóndabær og
því um síður herrasetur. En
autt er húsið eigi að heldur.
Flokkar karla og kvenna haf-
ast við umhverfis það og að
ýmislegum störfum.
Þetta er allt ungt námsfólk.
Sumt fæst við mælingar og
uppdrætti af umhverfi staðar-
ins, fyrir fótum annara liggur
stórt steinasafn, er flutt hefir
verið saman á einn stað og nú
er verið að athuga, og enn aðr-
ir eru á leið heim til hússins,
utan úr skóginum, með ýmis-
konar muni og áhöld í hönd-
unum.
Hvaða staður er þetta?
Hverskonar fólk er þetta,
hvaðan er það og hvað hefst
það að?
Úr þeirri gátu leysist greið-
lega við nánari kynni.
Það eru nemendur úr einum
fremsta kennaraskóla Dan-
merkur, sem hér stunda nám,
undir leiðsögu tveggja kennara,
nám, sem brýtur nokkuð i bág
við venjulega skólakennslu.
Hér uppi í norð-austanverðu
Mið-Jótlandi hafast við annars
bekkjungar úr kennaraskólan-
um í Haderslev, er sjálfur ligg-
ur — svo sem kunnugt er —
niðri i Suður-Jótlandi og er,
eins og aðrir skólar landsins,
tekinn til starfa fyrir nokkru,
eftir sumarfríið.
Hér getur að líta einn þann
þátt í skólastarfsemi þjóðar-
innar, sem Haderslev skólinn
tók einna fyrstur upp og sem
óðum er að ryðja sér til rúms.
Danir nefna þessa starfsemi
„Lejrskolen", en á íslenzku
mætti ef til vill kalla hana
víðavangsskóla, og svo verður
hér gert.
Þetta kennslusnið þykir gef-
ast einna bezt fyrir nemendur
kaupstaða- og borgarskóla. Það
er í styttstu máli á þá leið, að
nokkur hluti námsfólksins í
hlutaðeigandi kennslustofnun,
dvelur vissan tíma hvers árs —
venjulega haust og vor — á ein-
hverjum tilteknum stað úti á
landi, við beinar verklegar at-
huganir og rannsóknir. Þar er
komið upp víðavangsskóla, þ. e.
húsi til íbúðar og athugana,
annaðhvort af eigin rammleik,
eða með tilstyrk hins opinbera,
nema þá að byggingin sé leigð.
Tilgangur víðavangsskólans
er sá, að flytja nemendur nokk-
urn tíma á burt úr hinni venju-
legu kennslustofu, burt úr
námsbókanna, stundum nokkuð
þurra heimi, og út í hið sláandi,
raunhæfa líf og starf.
í þessari tilbreytni eru ekki
fólgnar neinar nýjar náms-
greinar til viðbótar yfirfylltri
stundaskrá. Hér er námsfþlkið
leitt út í sjálfa náttúruna og
því komið í samband við raun-
veruleikann. Hér er kennaran-
um gert auðvelt að sýna hið
nána samband milli landafræði,
náttúrufræði og sögu.
Námið miðar að beinni rann-
sókn á umhverfinu. Nemendur
gera athuganir sínar sjálfir,
skýra þær með uppdráttum,
teikningum, skýrslugerðum, rit-
uðum greinum og útreikningum.
Hér fær mælingafræðin t. d.
sitt praktiska starfsvið. Bókun-
unum þokar um set og þær
verða einungis leiðbeinandi
hjálpartæki. Raunveruleikinn
verður hið ráðandi viðfangs-
efni.
Og inn á milli þessara raun-
hæfu námsþátta eru svo felld-
ar íþróttaiðkanir, leikir og
söngvar. Þetta er heillandi fé-
Hallgrímur Jónasson
lagslíf með kennurum og skóla-
systkinum.
Skólinn er upprunnínn
í Englandi
í Yorkshire var fyrsta til-
raunin gerð við kvennaskóla
einn. Sú tilraun þótti takast
svo vel, að starfið varð fastur
liður í kennsluháttum stofnun-
arinnar.
Með sjálfstæðum athugunum,
með sjálfstæðri vinnu, einstakl-
ingsstarfi og hópvinnu, áttu
nemendur að afla sér þekking-
ar á náttúrunni umhverfis þá.
Að fyrstu námsdvölinni í
víðavangsskólanum lokinni,
fórust forstöðukonunni m. a.
þannig orð um tilgang hennar
og gildi:
„Við vonum að afleiðingarn-
ar af þessari nýbreytni verði
þær, að þeir, sem hafa tekið
þátt í tilraunum okkar, finni
framvegis meiri skilning og
aukna ánægju í flestu því um
ríki náttúrunnar, sem þeir áð-
ur létu sig oft litlu skifta af því
þeim fannst það svo kunnugt,
og ég vona, að þeir bætist ekki
í þann stóra, sjóndapra og
hugsunarsnauða hóp, sem lifir
svo lífi sínu, mitt í furðuleg-
ustu leyndardómum náttúr-
unnar, að þeim verður hvorki
að spyrja né undrast“.
Sumarið 1929 var fyrsti víða-
vangsskólinn settur á laggir í
Danmörku. Það var kennara-
skólinn í Haderslev, sem fyrst-
ur hélt inn á þessa nýstárlegu
leið.
Hann leigði ferðafélagsskóla
norður á Mols og hefir jafnan
siöan haft þar dvalarstað, haust
og vor, fyrir ýmsa bekki skól-
ans.
Óskurn öllum
GLEÐILEGS SIJMARS.
Þökk fyrir viðskiplin á vetriimm.
Hafliði Raldvinsson.
Óskum öllum viÖskiptavinum okkar
GLEÐILEGS SEMARS,
og þökkum viðskiptin á vetrinum.
Vegfffó&rarinn h.f.