Nýja dagblaðið - 22.05.1938, Page 1
FJÖLBREYTT ÍJRVAL
af
.U_\_Ö_R_U_M
komið.
Y E S T A
rv*i/\
ID/^GfIBI^ÐIHÐ
6. ár Reykjavík, sunnudaginn 22. maí 1938. 116. blað
Athyglísverðar staðreyndir
Álögvr ríkísíns hækka um 9 kr. á
mann á sama tíma og álögur Reyk a
víkurbæjar hækka um 35 krónur
Þ6 hetir ríkið varið stórfelldum framlðg-
um til framleiðslunnar en Reykjavík engu
ANNALL
142. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 2.57. Sólarlag kl. 9.54.
Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 10.30.
Næturlæknir
er í nótt Eyþór Gunnarsson Laugav.
98, sími 2111. Næturlæknir aðra nótt er
Halldór Stefánsson, Ránargötu 12, sími
2234. Suimudagslæknir í dag er Björgv.
Finnsson, Vesturg. 41, sími 3940. Nætur-
vörður er í Ingólfs Apóteki og Lauga-
vegs Apóteki.
Dagskrá útvarpsins:
9.45 Morguntónl.: Tónverk eftir Bach
og Beethoven (plötur). 10.40 Veðurfr.
12.00 Hádegisútvarp. 14.00 Messa í Frí-
kirkjunni (sr. Jón Auðuns). 15.30 Mið-
degistónl.: a)Lúðrasveit Rvikur. b)
Ýms lög (plötur). 16.30 Erindi (frá
þingi umdæmisst. nr. 1): Áfengislög-
gjöfin (Gunnar Benediktsson lögfr.).
17.40 Útvarp til útlanda (24.52 m.).
19.20 Erindi umferðaráðs: Umferðar-
vikan og verkefni umferðarráðs (Jón
Oddg. Jónsson). 20.15 „Mæðradagur-
inn“: a) Ræða (frú Guðr. Lárusdóttir).
b) Einsöngur (frú Guðrún Ágústsd.).
e) Upplestur (frú Ingibjörg Benedikts-
dóttir). d) „Rödd úr hópnum” (ræða).
e) Upplestur (frú Ingibjörg Steinsd.).
f) Einsöngur (frú Guðrún Ágústsd.).
g) Ræða (ungfrú Inga Lárusdóttir).
h) Upplestur (ungfrú Laufey Valde-
marsdóttir). 21.50 Danslög.
Póstferðir á morgun:
Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjamar-
nes. Póstbíll austur til Víkur. Fagranes
til Akraness. Dr. Alexandrine til Ak.
Til Rvikur: Mosfellssveitar-, KJalar-
ness-, KJósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
flóapóstar, Hafnarfjörður Seltjamar-
nes. Brúarfoss frá Akureyri. Esja vest-
an um úr hringferð. Fagranes frá
Akranesi.
Umferðavikan
sem umferðaráð gengst fyrir, hefst
í dag. Skátar og lögregluþjónar leið-
beina um umferð á götum bæjarins og
verða þeim, er ekki fara eftir umferða-
reglunum, gefnar skráðar upplýsingar
um umferð fyrir gangandi fólk og hjól-
reiðamenn. Umferðamyndir verða til
sýnis í búðargluggum í Austurstræti og
nokkrir hjólreiðamenn munu sýna fyr-
irmyndarakstm-. Auk þess verða flutt
erindi í útvarpið á vegum umferðaráðs
kl. 7.20.
Vormót III. flokks
hélt áfram í gærkvöldi og fóru leikar
svo að Fram vann Víking með 1 : 0 og
K. R. vann Val með 4 : 0.
Páll Zophóníasson
ráðunautur heldur í vor um 40 naut-
gripasýningar í Húnavatnssýslu, Skaga
fjarðarsýslu, Eyjafirði og Þingeyjar-
sýslu. Fyrstu sýninguna heldur hann á
miðvikudaginn.
Eysteinn Jónsson
fjármálaráðherra og Pálmi Hannes-
son rektor, fóru austur í Vestur-
Skaftafellssýslu í gær og munu mæta
þar á tveimur stjórnmálafundum. Þeir
eru væntanlegir til bæjarins á mánu-
dagskvöld.
Á fundi bæjarráðs
síðastliðinn föstudag var samþykkt
að efna til verðlaunasamkeppni um til-
lögu um fyrirkomulag og útlit á hita-
geymum í Öskjuhlíð. Ákveðið var að
verja allt að kr. 3000.00 til verðlauna.
Dómnefndina eiga að skipa 2 bygginga-
meistarar, 2 verkfræðingar og 1 mynd-
höggvari.
S. R. R. og f. S. f.
sækja um styrk úr bæjarsjóði, kr.
1500.00 hvert. Sundráðið til að senda
5—6 manna flokk á sundmót í London
i ágúst í sumar, en í. S. í. til utanfarar
kvennaflokks Ármanns til Oslo. Bæjar-
ráð mælir með báðum þessum umsókn-
um.
Hjónaband.
í gær voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Ingibjörg Jónsdóttir og Leifur
Þórhallsson bókari. Einnig voru gefin
saman í hjónaband í gær ungfrú Frið-
björg Eyjólfsdóttir og Edvard Árnason
símaverkfræðingur.
Alvarlegar viðsjár
mllli Þjóðverja
og Tékka
Stjórnir beggja land-
anna senda herlið til
landamæranna. Enska
stjórnin aðvarar Þjóð-
verja. — Tékkneskur
landamæravörður
neyðist til að skjóta
tvo Sudetta.
London:
Orðrómur gengur um það, að stjórnir
Þýzkalands og Tékkoslóvakíu láti nú
flytja herlið að landamærum þessara
ríkja.
Hefir þessi orðrómur verið svo alvar-
legur, að enski sendiherrann í Berlín
hefir verið látinn fara á fund Ribben-
trop bæði í fyrradag og gær og látinn
krefjast yfirlýsingar um, að þessi orð-
rómur væri uppspuni. í fyrradag fékk
hann þau svör, að hér væri aðeins um
að ræða venjulega hermannaflutninga
á þessum árstíma, en ókunnugt er
hvaða svör hann fékk í gær.
Brezka stjórnin er mjög áhyggjufull
út af þessum atburðum. Hefir Halifax
hætt að taka sér venjulegt frí um
helgina, vegna þessara atburða, og
Chamberlain, sem er í fríi, hefir gert
ráðstafanir til að fylgjast með öllu
samtímis.
Óstaðfestar fregnir herma, að Pól-
verjar og Ungverjar hafi einnig sent
her að landamærum Tékkoslóvakíu.
Viðbúnaður Tékka.
Tékkneska stjórnin hefir skýrt
fréttaritara Reuters frá því, að hún
hafi sent nokkuð af hermönhum til
landamæranna til æfinga með nýtizku
vopn. Ennfremur hafi nokkrar vara-
liðssveitir verið hvattar til vopna og
nokkrum landamæravegum lokað, en
ekki sé þó um neina almenna hervæð-
ingu að ræða.
Óbilgirni Súdeta.
Tékkneska stjórnin hefir gefið út
yfirlýsingu, þar sem hún lofar Sudet-
um og öðrum þjóðernisminnihlutum
víðtækum tilslökunum og óskar eftir að
taka upp samninga við Sudeta mjög
fljótlega.
Sudetar hafa svarað þessu með því
að hafna öllum samningaviðræðvun,
nema stjórnin gangi áður að ýmsum
kröfum þeirra.
Stjórnmálamenn i London telja að
stjórnin hafi með þessari yfirlýsingu
sinni tekið mjög sómasamlega í kröfur
Sudeta, en þeir sýnt hættulega þver-
möðsku og undanbrögð.
Árásir þýzku blaðanna.
í þýskum blöðum er nú daglega hald-
ið uppi hvassorðum áróðri gegn Tékk-
um og tékknesku lögreglunni, fyrir að
beita Sudeta ofriki.
(Framhald á 4. siOu.)
Samkvæmt nýlokinni at-
hugun fjármálaráðuneytis-
ins, hafa tollar og skattar
ríkissjóðs að meðaltali á
mann numið því sem hér
segir:
1925—1934: kr. 100.48
1934: — 103.22
1935—1937: — 109.74
Hækkunin nemur 9% eða 9 kr.
á mann, sé miðað við meðaltal
áranna 1925—1934. En hinsvegar
ekki nema 6 krónum eða 6%, sé
miðað við árið 1934, en þá giltu
tolla- og skattalög, sem eldri
stjórnir höfðu haft áhrif á.
Lokun saltfisksmarkaðanna og
hnignun þorskveiðanna hefði
haft hinar ægilegustu afleiðing-
ar, ef þjóðfélagið hefði ekki
neytt allra ráða til þess að halda
uppi athafnalífi í landinu. Enda
hefir beinn og óbeinn stuðningur
ríkisins við atvinnuvegina aldrei
verið meiri en í tíð núverandi
stjórnar. Hefði ekki sú stefna
verið upp tekin, að auka toll- og
skatttekjur ríkissjóðs, til þess að
ríkið gæti haldið uppi slíkum
stuðningi við atvinnuvegina, og
jafnframt haldið uppi miklum
opinberum framkvæmdum, þá
myndi afkoma almennings nú
ekki hafa verið á marga fiska.
Eru þetta sannindi, sem ekki
verður um deilt.
Hitt mun almenningur ekki
hafa vitað, hve ótrúlega litil
meðaltalshækkunin er, sem rik-
issjóður hefir til sín tekið í aukn-
um sköttum og tollum á þessum
síðustu og erfiðustu árum.
Svo sem áður var greint, er
hækkunin 6 kr. síðan 1934, og
sézt bezt hve smávægileg hún er,
þegar þess er gætt, að beinar
greiðslur ríkisins á siðastliðnu
ári vegna sauðfjárveikinnar
einnar, námu sem svarar 5 krón-
um á hvert mannsbarn á land-
inu.
Hliðstæðar tölnr fyrir
Reykjavikurbæ
En þar sem að það eru einkum
blöð Sjálfstæðisflokksins, sem
öðru hvoru hafa fengið kviður
og álasað núverandi fjármála-
stjórn rlkisins, þá þykir við eiga
hér að benda á hvað hliðstæðar
tekjur Reykjavíkurbæjar, þ. e.
útsvör og fasteignaskattar,
námu að meðaltali á mann í
bænum:
1925—34 kr. 88.00
1935—37 — 123.00
Samkvæmt því hafa „tollar og
skattar" Reykjavíkur hækkað
um 35 kr. að meðaltali á mann
í bænum, á sama tíma, sem hlið-
stæðar álögur ríkissjóðs hafa að-
eins hækkað um 9 kr. að meðal-
tali á mann í landinu. En þrátt
fyrir það hefir Reykjavíkurbær
ekki varið einum eyri meira til
framleðslunnar i bænum en áð-
ur, en ríkið hefir hinsvegar á
sama tíma stóraukið framlög sín
til þeirra hluta.
Er ekki að undra, einmitt nú
þegar bæjarstjórnarmeirihlutinn
er að senda frá sér niðurjöfnun-
arskrána, og sér samtímis fyrir
sér þessar staðreyndir, þótt hann
þá láti blöð sín tala um að taka
þurfi upp „nýja stjórnarstefnu".
En það er hinsvegar enganveg-
inn líklegt að almenningur í
landinu sé ráðinn i því að hlýta
forsjá íhaldsins um það, hver
sú nýja stjómarstefna eigi að
vera!
Síldarkaup ríkis-
verksmiðjanna
í sumar
Útgerðarmönnum
frjálst að velja
nm tvær leiðir.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins hefir
haldið fundi á Siglufirði undanfarna
daga og rætt um fyrirkomulag á síldar-
kaupum verksmiðjanna í sumar.
Hefir meirihluti stjórnarinnar sam-
þykkt að gefa útgerðarmönnum kost á
ákveðnu verði fyrir síldina eða útborg-
un á 85% af áætluðu verði og síðar þá
uppbót, sem rekstur verksmiðjanna
leyfir.
Áður hafði verið felld tillaga frá
fulltrúum Framsóknarflokksins um að
kaupa slldina ekki ákveðnu verði, en
borga út 85% af áætluðu verði og veita
uppbót síðar.
Erlendur Þorsteinsson, varamaður
Finns Jónssonar, var einn á móti því
að gefa útgerðarmönnum og sjómönn-
um kost á sannvirði.
Verksmiðjustjórnin hefir enn ekki
ákveðið fasta verðið.
Hinn þjóðkunni rithöfundur
Einar H. Kvaran, lézt að heim-
ili sínu, Sólvallagötu 3, í gær-
morgun. Hafði hann legið rúm-
fastur síðan á páskum.
Hann var rúmlega 78 ára
gamall.
Þessa merkilega manns verð-
ur nánar getið síðar.
Mæðradagurínn
Styrkið gott málefni!
í dag efnir Mæðrastyrksnefndin til
sérstakrar fjársöfnunar í því skyni að
styrkja fátækar mæður til sumardvalar
i sveit. Hefir nefndin efnt til slíkrar
fjársöfnunar á undanfömum árum,
einhvern dag í maímánuði og jafnan
fengið góðar undirtektir. Ættu þær
heldur ekki að bregðast nú.
Síðastl. sumar styrkti nefndin 40
konúr til vikudvalar á Laugarvatni.
Ennfremur hafði hún barnaskólann í
Ölfusinu á leigu og tjöld til viðbótar,
þegar flest var. Dvöldu þar mæður með
börnum sínum í 2—5 vikur. Var þar
stundum um 160 manns í einu.
Það er áreiðanlegt, að miklu fleiri
fátækar konur vilja og þurfa að kom-
ast úr bænum og eina von þeirra er
aðstoð Mæðrastyrksnefndarinnar. Þess
vegna styðja Reykvíkingar verulega
gott málefni með því að kaupa blóm
og sækja skemmtanir Mæðradagsins.
Hæztu útsvörin
| Útsvarsskráin kom út í gær. Sam-
kvæmt henni eru hæstu útsvarsgreið-
endurnir þessir:
50.000: Jóhann Ólafsson & Co., Olíu-
verzlun íslands. 45.000: Völundur.
40.000: Sliell, Höjgaard & Schultze.
34.000: Johnson & Kaaber. 30.000 Sam-
band ísl. samvinnufélaga. 29.000: Geys-
ir, Edda, heildverzlun. 28.000 Egill
Skallagrímsson. 25.000: Lárus G. Lúð-
vígsson. 24.000: Jón Bjömsson kaupm.
23.000: Haraldur Ámason. 20.000: P.
Petersen (Gamla Bíó), ísafoldarprent-
smiðja, Steindór Einarsson. 19.500:
Eggert Kristjánsson. 17.500: Slippfélag-
ið. 17.000: Nýja Bíó. 16.000 Andrés An-
drésson. 15.000 Á. Einarsson & Funk,
Helgi Magnússon & Co., Sjóklæðagerð-
in, J. Þorláksson & Norðmann, Sveinn
M. Sveinsson, Smjörlíkisgerðin. 14.800
Þorst. Sch. Thorsteinsson.