Nýja dagblaðið - 02.06.1938, Síða 1
Drjúgur
lyktar-
lítUl,
léttur
r
l
notkun
DA&EUMDID
6. ár Reykjavík, flmmtudaginn 2. júní 1938. 124. blað
ANNÁLL
153. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 2.27. Sólarlag kl. 10.26.
Árdeglsháflæður í Rvlk kl. 8.10.
Næturlæknir
er 1 nótt Jón G. Nikulásson, Preyju-
götu 42, sími 3003. Næturvörður er í
Lyfjabúðinni Iðunn og Reykjavíkur
Apóteki.
Dagskrá útvarpsins.
10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfr. 19.10 Veðurfr. 19.20 Lesin
dagskrá næstu viku. 19.30 Hljómplötur:
Sungin danslög. 19.40 Auglýsingar. 19.50
Fréttir. 20.15 Frá Ferðafélagi íslands.
20.25 Frú útlöndum. 20.40 Einleikur á
píanó (Emil Thoroddsen). 21.00 Út-
varpshljómsveitin leikur. 21.30 Hljóm-
plötur: Andleg tónlist.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjósar-,
Kjalamess-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Þrastalundur. Laugarvatn. Fagra-
nes tll Akraness. Vestan-, Breiðafjarð-
ar-, Norðan-, Dala-, Barðastrandar- og
Austanpóstar.
Til Rvíkur: Mosfellssveitar-, Kjósar-,
Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Þrastalundur. Laugarvatn. Fagra-
nes frá Akranesi. Norðan-, Breiðaf jarð-
ar-, Stranda-, Barðastrandar- og
Þykkvabæj arpóstar. Kirkjubæj arklaust-
ur. Goðafoss frá Akureyrl.
Skipafréttir.
Gullfoss fór til Breiðafjarðar og
Vestfjarða í gær. Goðafoss kom til
Siglufjarðar í gærmorgun. Brúarfoss er
i Leith. Dettifoss var i gær á leið til
Hull frá Hamborg. Lagarfoss er á Aust-
fjörðum. Selfoss er í Grimsby. Drettn-
ingin fór frá Vestmannaeyjum i fyrra-
dag áleiðis til Kaupmannahafnar. Lyra
fer i kvöld áleiðis til Bergen. Esja er
í Rvík. Súðin fór frá Vestmannaeyjum
í gær áleiðis til Homafjarðar.
Skátafélagið Emir
biður skáta að minnast fundarins í
kvöld kl. 8. Verður þar rætt um hvíta-
sunnuferðina.
Hermann Hermannsson
trésmiðameistari, Freyjugötu 24, var
fimmtugur í gær.
Bæjarstjórnarfundur
verður haldinn í dag. Sjö mál eru á
dagskrá. Meðal þeirra er frv. til reglu-
gerðar fyrir Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur og frv. til reglugerðar fyrir Sogs-
verkjunina.
F j órðun gsþing
Alþýðusambands Vesturlands verður
haldið á Flateyri 4.-5. þ. m. Á að ræða
þar um ný viðhorf verklýðsfélaganna
til vinnulöggjafar,
í Siglufirði
er lokið undirstöðu nýs 2250 smálesta
lýslsgeymis ríkisverksmlðjanna. Efni
geymisins kom á Goðafossi síðast. Stál-
smiðjan annast smíðina. — FÚ.
Móeiður Skúladóttir
Thorarensen heitir kona Agústs í
Birtingaholti, en ekkl Málfríður, eins
og misprentast hafði hér í blaðinu í
gær. Biður blaðið afsökunar á þessari
leiðinlegu villu.
Póstur
var fluttur yfir Skeiðarársand á
þriðjudaginn var. Tók förin frá Núps-
stað að Skaptafelli 10 klst. Vatnsmagn
var ekki tU mikils trafala á leiðinni,
en mjög bar á sandbleytu.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
í Neskaupstað var bæjarstjóramálið
á dagskrá. Um starfið höfðu borizt
þrjár umsóknir, en þar eð enginn mn-
sækjanda náði meirihluta, samþykkti
fundurinn samhljóða að æskja nýrra
kosninga í bæjarstjórn í næstkomandi
nóvembermánuði og fól bæjarstjóra,
Eyþóri Þórðarsyni, að gegna starfinu
fram yfir kosningar. — FÚ.
Svifflugfélag Akureyrar
sem stofnað var fyrir ári síðan, efndi
Alvarlegur atburður Qí Ac1ir«/41 qii
við þýzku landa- kJj U O U.1 lLllCl U.
Lárus Salomonsson
vann Islandsglímuna
mærín
Tékkneskur liðsfor-
ingi særir tvo Sud-
við Reykjaskólann
Þýðíngarmíkíl framkvæmd fyrír skólann
Ágúst Kristjánsson
hlaut f Ggurðarverð-
launin
eta.
LONDON:
Atburður, sem getur haft víðtækar
afleiðingar, gerðist í fyrrinótt í Sudeta-
héruðunum skammt frá landamærum
Þýzkalands, eða á sama stað, þar sem
tékkneskur landamæravörður skaut tvo
Sudeta fyrir skömmu.
Tékkneskur liðsforingi kom kl. 3 um
nóttina, ásamt öðrum manni, sem var
jafnaðarmaður, inn á veitingahús og
bað hljómsveitina að leika tékkneskt
lag. Þrjátíu og fimm þýzkumælandi Su-
detar, sem voru staddir í kaffihúsinu,
mótmæltu þessu þegar í stað og varð
af deila, en meðan á henni stóð, skaut
undirforinginn tveimur skotum og
særði tvo Sudeta.
Tékkneska frásagan segir, að for-
inginn hafi skotið í gólfið, en kúlan
kastast til baka, en þýzka frásagan
segir að skotinu hafi verið miðað á
mennina.
Stjórn Tékkoslóvakíu hefir fyrirskip-
að stranga rannsókn á þessu máli og
liðsforingi sá, er hlut á að máli, hefir
verið tekinn höndum og er í varð-
haldl. — FÚ.
Derby-veðreid-
unum sjónvarpað
Þær sáust greiuilega
í 60 mílna f jarlægð.
LONDON:
í gær fóru fram Derbyveðreiðarnar í
Englandi, en það eru fjölsóttustu og
merkilegustu veðreiðar, sem þar eru
haldnar allt * árið. Veðreiðunum var
sjónvarpað og er sagt að þær hafi sézt
prýðisvel á sjónvarpstæki í 60 mílna
fjarlægð frá Alexandrahöllinni, þar sem
sjónvarpsstöðin er nú. Miklu meira var
veðjað en nokkru sinni áður, eða alls
53 milljónum sterlingspunda. — FÚ.
Togaramálið
í Noregi.
EINKASKEYTI frá KHÖFN:
Norska stórþingið hefir ákveðið að
fresta togaramálinu til næsta þings,
en frumvarp það er lá fyrir þinginu
fjallaði um það, að banna skyldi tog-
araveiðar um fram það sem þegar er
orðið. Fjöldi breytingartillagna var
kominn fram og flokkarnir mjög ósam-
mála um hverja leið skyldi fara. — FÚ.
til skemmtisamkomu til ágóða starfi
sínu. Fór skemmtunin fram 23. f. m.
að viðstöddu fjölmenni. Flugstjóri Agn-
ar Kofoed-Hansen flutti erindi um
svifflug. Þá voru sýndar myndir frá
Svifflugfélagi íslands i Reykjavík og
Söngfélagið Geysir, undir stjórn Ingi-
mundar Árnasonar, skemmti með söng.
Virkir félagar Svifflugfélagsins eru 20.
Eggert Stefánsson
heldur tónskáldakvöld sitt i Gamla
Bíó í kvöld. Syngur hann þar lög eftir
Sigvalda Kaldalóns, Þórarinn Jónsson,
Sv. Sveinbjömsson, Karl Runólfsson,
Pál ísólfsson, Markús Kristjánsson og
Jón Leifs.
Reykjaskóli í Hrútafirði efnir
nú til happdrættis fyrir sjó-
sundlaug við skólann. Skólinn
stendur á eyri, sem liggur út í
Hrútafjörð austanverðan rétt
við þjóðveginn. Er þar nú þegar
mikill húsakostur og tekið á
móti 60 nemendum vetrarlangt.
Á vorin eru þar margháttuð
námskeið fyrir unglinga og full-
orðið fólk, bæði í margskonar í-
þróttum og iðnaði karla og
kvenna. Aðalbyggingin er reist
ofarlega á eyrinni og snýr móti
suðri. Bak við hana er leik-
fimissalur stór og veglegur.
Þaðan er nú innangengt í yfir-
byggða sundlaug inn í skólan-
um, en takmarkið er að gera
mikla, opna, hitaða sjólaug við
vesturenda leikfimishússins.
Geta nemendur og sumargestir
æft sig í leikskálanum og siðan
synt til skiftis 1 hveravatni eða
hlýjum sjó.
Þessi nýja sundlaug kostar
20 þús. kr. og happdrættið á að
afla nægilegs fjár til hennar.
Vinningar eru um 100 og verð
þeirra samanlagt um 4000 kr.
Gjafir til þessa happdrættis
hafa verið gefnar- úr öllum
byggðum við Húnaflóa, bæði
Ströndum og Húnaþingi og
mikið utan þess svæðis, sem
beinlínis stendur að skólanum.
Dráttur fer fram 4. september
næstkomandi.
Reykjaskóli er nú orðinn stór
og ágætur skóli. Hann er auk
þess aðalgistihúsið á sumar-
leiðinni milli Reykjavíkur og
Akureyrar, og getur hann í
þeim efnum varla fengið neinn
keppinaut nema hinn væntan-
lega héraðsskóla Skagfirðinga
í Varmahlíð, sem getur því mið-
ur aldrei haft þau gæði sem hér
á að skapa með þessu happ-
drætti, en það er sjósundlaug.
Hér er á leiðinni glæsileg nýj-
ung. Hér er verið að vinna að
umbótamáli fyrir tvær sýslur,
sem mun hafa áhrif til góðs
fyrir þúsundir æskumanna á
komandi árum. J. J.
Síldarsala
tíl Ameríku
30 þúsund tiinnur
rnat jessíldar scldar
fyrirfram.
Samið hefir verið um sölu á 30 þús.
tunnum af matjessíld til Ameríku. Vil-
hjálmur Þór sá um samningana fyrir
hönd Síldarútvegsnefndar. Samdi hann
við annað firma en áður hefir verið
samið við. Eru samtningar þessir taldir
hagstæðir eftir atvikvun, mun hagstæð-
ari en eldri samningar, og verð er einn-
ig hærra. ,
Matjessíldarsala til Ameríku hefir
átt sér stað allt frá 1934. Mest var selt
I fyrra, eða um 16 þúsund tunnur. Er
þessi sala því um helmingi moiri en
áður hefir orðið.
Samningarnir voru bomir undir síld-
arsaltendur á Akureyri og Siglufirði
og tjáðu þeir sig eindregið fylgjandi
þeim.
Skipulagsuppdráttur af sjósundlaug, leikfimishúsi og
skólahúsi Reykjaskóla.
Íslandsglíman var háð á íþrótta-
vellinum í gær að viðstöddu miklu
fjölmenni. Fór hún mjög vel fram og
var tvímælalaust bezta Íslandsglíman
um langt skeið.
Keppendur voru 13, en einn þeirra,
Sigurður Hallbjörnsson, gekk úr leik,
eftir að hafa hlotið nokkrar byltur og
meiðsl litilsháttar. Alls voru glímdar
66 glímur.
Úrslitin urðu þau, að Lárus Saló-
monsson hlaut íslandsbeltið. Lagði
hann alla keppinauta sína og hlaut því
11 vinninga. Var Lárus vel að þessum
sigri kominn. Hefir hann sennilega al-
drei glímt eins vel í kappglímu. Hefir
hann þó um nokkurt skeið orðið að
draga úr æfingum sínum, sökum las-
leika.
Ágúst Kristjánsson hlaut fegurðar-
verðlaunin, enda glímdi hann vel og
drengilega að vanda. Margir töldu þó
að erfitt hefði verið að gera upp á
milli hans og Lárusar að þessu sinni.
Ágúst gekk næst Lárusi að vinningum.
Hlaut hann 10 vinninga, féll fyrir Lár-
usl einum.
Næstir voru Skúli Þorleifsson og Sig-
urður Guðjónsson, með 8 vinninga og
Húnbogi Þorkelsson með vinninga.
Skúli féll fyrir Lárusi, Ágústi og Vagni
Jóhannssyni, en Sigurður fyrir Lárusi,
Ágústi og Skúla.
Aðkomumennirnir, sem voru 7 Vest-
mannaeyingar og 1 Skeiðamaður,
glímdu allir liðlega og sumir vel. Eink-
um vöktu þeir Sigurður Guðjónsson og
Húnbogi Þorkelsson athygli. Er Vest-
mannaeyingum mikill sómi að komu
sinni, þar sem þátttaka þeirra átti ekki
sizt þátt í að gera glímuna fjölbreytt-
ari og skemmtilegri en hún hefir verið
undanfarin ár.
f s 1
a n
d s I ö r
Ingríðar prinsessu
og Friðriks ríkis-
erfingja
Friðrik krónprins og Ing-
rid krónprinsessa munu að
öllum líkindum koma hing-
að með Dronning Alexan-
drine 20. júlí næstk.
Hafði verið talað um að
þau kæmu hingað næsta
sumar, en fyrir nokkru
barst forsætisráðherra sú
fyrirspurn frá konungsrit-
ara, hvort heppilegra væri
að þau kæmu hingað í júlí
eða ágúst, ef úr ferð þeirra
yrði á þessu sumri.
Svaraði forsætisráðherra
því, að heppilegra væri að
þau kæmu hingað í júlí-
mánuði.
Krónprinsinn hefir kom-
ið hingað áður, eins og
kunnugt er, en krónprins-
essan ekki.