Nýja dagblaðið - 25.06.1938, Page 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Enskri verksmiðju, sem fram-
leiöir ýmis gerfiefni, hefir ný-
lega heppnast að framleiða hart,
gegnsœtt efni, sem er mjög
sterkt. Síðan á að gera tilraunir
til að smlða flugvélar úr þessu
efni. Slíkar flugvélar myndu
verða nálega ósýnUegar á flugi.
*
/ Morgunblaðinu l vetur var
einu sinni auglýst BÆNDA-
SMJÖR. Ef marka má Morgun-
blaðið, gefa þvl bœndur af sér
smjör og kvenfólk ull.
*
„Blóðsugur“ er manntegund,
sem ósjaldan er getið — og ekki
að góðu. Hinsvegar er þeirra,
sem nefna mœtti blóðgefendur,
sjaldan getið. — Frönsk kona,
madame Ménager, var þó sér-
staklega heiðruð fyrir að hafa
fórnað sínu eigin blóði í hvorki
meira né minna en 175 skipti
á niu árum, til þess að bjarga
lífi meðbrœðra sinna og systra.
Eiginmaður madame Ménager
var þessu mjög mótfallinn í
fyrstu, þvi að hann taldi, að með
þessu myndi heilsu frúarinnar
stefnt í hœttu. Sú hefir þó ekki
orðíð raunin. Nú, þegar madame
Ménager er 51 árs að áldri, lœt-
ur hún af þessu starfi, í þágu
mannúðarinnar, eftir að hafa
hlotið heiðurspening og árleg
eftírlaun i viðurkenningarskyni.
*
Prófessorinn var vanur að
láta hundinn sinn sitja á stól við
hliðina á sér þegar hann mat-
aðist.
Kvöld nokkurt var hann boð-
inn til kveldverðar. Stúlkan,
sem sat við hlið hans vildi vekja
athygli hans á sér og snart við
handlegg hans.
Prófessorinn, sem var annars-
hugar, tók bein af diski sínum
og rétti að stúlkunni, án þess að
lita við og sagði:
„Ó, láttu nú ekki svona grey-
ið mitt. Taktu þetta og liggðu
svo undir borðinu meðan þú
nagar það“.
*
fbúarnir i Moskva hafa nýlega
fundið upp örugga aðferð til þess
að geta fylgzt með þvi frá degi
til dags, hverjir af leiðandi
mönnum kommúnista séu í
„náðinni" hjá Stalin og hverjir
ekki. — / gluggum bókabúða
rlkisforlagsins er venja að sýna
myndir af helztu leiðtogum
kommúnista. Þeir, menn, sem
myndir eru sýndar af, eru i
„náðinni", og „stjama“ þeirra
er þvi hœrrt sem mynd þeirra er
nœr mynd einvaldans sjálfs.
Hverfi hinsvegar mynd úr glugg
anum og neitað sé að selja hana
i verzluninni, þá má óhœtt full-
yrða, að viðkomandi hefir ann-
aðhvort verið handtekinn eða
liflátinn.
*
TIL ATHUOUNAR:
Sjaldgœfast álls er að sam-
an fari skynsemi og hrifning.
Voltaire.
|IsJafnAr||
||blautsápa||
LÆKKAÐ VERÐ
Útsvör 1938.
Fyrsti gjalddagí útsvara 1988 (Vs
hluti) til bæjarsjóðs Reykjavíkur
var 1. júní. Gjaldendur eru viu-
samlega beðnir að greíða pað,
sem áfallið er NÚ ÞEGAR, en bíða
ekki þess» að dráttarvextir falli
á útsvörin.
Samband ísl.
samvinnuf élaga
Simi 1080.
Reykjavik, 22. júní 1938.
Borgarritarinn.
ZKápuLtau.
IDiragtarefni
Klarlmannafataefni
nýkomin
Verksmíðjuútsalan GEFJUN - IÐUNN
ADALSTRÆTI.
Kjarnar — (Essensar)
Höfnm birgðir af ýmiskon-
ar kjörnum til iðnaðar. —
ÁFENGISVERZLUN
RÍKISINS
Reykjavík - Akureyri
Næsía hraðferð nm Akranes íil Akur-
eyrar er á mánudag. jj
Bifreiðastöð Steindórs.
Sími 1580.
Fyrsta filokks síldartunnur
og kjöttunnur
Stærðir: 1/1, 1/2 og 1/4.
Cr bezta efni og við lægsta verði.
Tunnuverksmiðjan O. STORHEIM, Bergen.
Símnefni „Heimstor“.
Flugvélin 35 ára
sssss««sssss5ís$«$«$$í$«$$«$$$$${$}$$ss$$í$$5$$««$««í«$*í$í$«$$$$4$$$$í$$««$$$ss5
■i: Það hefir oft verið að því spurt, hvar, hvenær og af |
hverjum flugrvélin hafi verið funðin upp, en við þeim «
| spurningrum verffa raunverulega engin fulinægjandi svör |
;j: gefin. Þ6 er engin fjarstæða að tala um 35 ára afmæli |
;i: flugvélarinnar á þessu ári, því að 17. des. 1903 lyfti sér |
til flugs fyrsta vélknúna flugvélin. |
Um aldaraðir heíir mannkyn-
ið dreymt um að geta flogið,
eins og fuglarnir. Margir hafa
leitast við að gera þann draum
að veruleika. Frá síðari hluta 19.
aldarinnar kannast fólk við
nöfn þeirra, Lilienthal, Chanute
og Langley I því sambandi, en
engum þessara manna tókst að
leysa þrautina. Heiðurinn af því
féll i hlut amerísku bræðranna
Orvílle og Wilbur Wright.
Wilbur og Orville Wright eru
fæddir í borginni Dayton í Ohio.
Árið 1896, þegar þeir voru 29 og
25 ára að aldri, hófu þeir fyrstu
athuganir sínar á sviði flugmál-
anna. í fyrstu sneru þeir sér að
sviíflugi.
Tilraunir Lllienthal og Chan-
ute, til flugs, höfðu verið gerðar
á sama grundvelli, en árangur-
inn hafði verið næsta lítill. Þeir
höfðu haldið flugunni i jafnvægi
með því að láta flugmanninn
færa sig til í ílugunni, en bræð-
umlr Wright höfðu hreyfanlega
vængi á sínum flugum, og náðu
með því stórum betri árangri
í september og októbermánuðl
1902 ílugu þeir bræður alloft
yfir 180 m. vegalengd, sem var
óvenju góður árangur á þeim
timum.
Næsta viðfangsefni þeirra var
að smiða vélknúna flugvél. Til
þess þurftu þeir að fá 8 hestafla
hreyfil, sem ekkl mátti vega
meira en 90 kg. Þegar ógerning-
ur reyndist að fá hreyfil, sem
uppfyllti þessi skilyrði, hófust
bræðurnir sjálfir handa um að
leysa þetta verkefni. Nutu þeir
til þess ágætrar aðstoðar mr.
C. E. Taylor, sem leystl af hendi
alla vélsmíðl fyrir þá. Sex vikum
eftir að þeir hófu smiði hreyf-
ilsins, gátu þelr farið i fyrsta
reynsluflugið.
Það fór fram við Kltty Hawk
17. des. 1903 1 viðurvist flmm
manna, auk bræðranna sjálfra.
Að visu hafði öllu fólkl 1 8—9
km. fjarlægð verið boffið að vera
viðstatt, en fleiri kærðu sig ekki
um að sjá ennþá einu slnni flug-
vél, sem ekki gæti flogið.
Fyrsta flugtilraunin stóð yfir
í 12 sek. Lengur heppnaðist ekki
að halda flugvélinni á lofti. —
Þetta var að sjálfsögðu ekki
glæsllegur árangur, enda var
það i fyrsta sinn í sögu mann-
kynsins, sem tilraun var gerð
með vélknúna flugvél. — Við
fjórðu flugtilraunina sama dag,
heppnaðlst að halda flugvélinni
uppi i 59 sek. og fljúga 260 m.
gegn vindi.
Bræðurnir héldu tilraunum
sinum óslitlð áfram og náðu æ
betri árangri. 28. sept. 1905 tókst
þeim að fljúga 1 19 mín. 55 sek.
og 5. okt. s. á. 38 mín.
En þessar merkilegu tilraunir
virtust ekki vekja teljandi eftir-
tekt. Blöðin létu sér yfirleitt fátt
um þær finnast og almenningur
mun ekki hafa álitið að þessar
tilraunir væru merkari en marg-
ar aðrar, sem áður höfðu verið
gerðar á sviði flugmálanna.
Næstu þrjú ár unnu Wilbur og
Orville Wright að því að endur-
bæta flugvélina og athuga
mögulelka fyrir sölu á hugmynd
sinni. En svo er að sjá, sem eng-
inn Amerlkubúi hafi haft opin
augu fyrir hvílíka framtíð flug-
vélln myndi eiga. Þessvegna á-
kváðu þeir bræður að fara yfir
til Evrópu og sýna gamla heim-
inum hvað þeir gætu.
Þeir héldu til Frakklands og
tóku sér bækistöðu í grennd við
smábæinn Le Mans, sem liggur
um 20 mílur suðvestur af París.
21. sept. 1908 tókst Wilbur að
halda sér á flugi í 1 klst. 31 mín.
og 25 sek., og fljúga 66y2 km.
vegalengd.
Þetta flugafrek vakti óhemju
athygli og fögnuð. Þurfti ekki
hér eftir að kvarta um fálætl
gagnvart flugmálunum. Wilbur
hélt flugtilraunum sínum nú á-
fram og með sífellt betri og betri
árangri. Á gamalársdag 1908
setti hann glæsilegt met, hélt
sér á flugi í 2 klst. 20 min. 23
sek. og flaug 125 km. vegalengd.
Fyrir þetta flug hlaut hann Mi-
chelin-verðlaunin, sem námu
20.000 frönkum. Þessi verðlaun
voru veitt á ári hverju þeim
manni, sem beztum flugárangrl
hafði náð á árinu.
Næsta ár hélt Wilbur að mestu
kyrru fyrir í Frakklandi og
kenndi mönnum flug. Bróðir
hans kenndi flug í Berlin og
setti nýtt hæðarmet í flugi 2.
október 1909. Metið var 400 m.
Eftir að hafa selt franskt
einkaleyfi á framleiðslu þessara
flugvélategunda fyrir 500 þús.
franka, héldu þeir bræður aftur
til Ameríku og hófu flugvéla-
framleiðslu. Wilbur hætti þó
innan skamms öllum afskiptum
(Framhald á 4. síðu.)