Nýja dagblaðið - 28.07.1938, Blaðsíða 1
rwjA
IÐ/^GfIBIL^íÐIHÐ
6. ár Reykjavík, fimmtudaginn 28. júlí 1938. 171. blað
LUDWIG BAUMANN SPRINGOB
Þýzkí Hugleíðangurínn
íer héðan í kvöld
26 nemendur hafa lokið svifflugprófi
ANNÁLL
209. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 3.23. Sólarlag kl.
9.43. Árdegisháflæður í Reykjavík kl.
6.10.
Næturlæknir
er í nótt Kjartan Ólafsson, Lækjarg.
6 B. Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni og Reykjavíkur Apóteki.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10.00 Veðurfregnir. 15.00 Veð-
urfregnir. 19.10 Veðurfregnir. 19.20
Lesin dagskrá næstu viku. 19.30 Hljóm-
plötur, létt lög. 19.40 Auglýsingar. 19.50
Fréttir. 20.15 Frá Ferðafélagi íslands.
20.25 Frá útlöndum. 20.40 Einleikur á
fiðlu (Þórir Jónsson). 21.05 Hljómplöt-
ur: a) Hljómsveitarlög eftir Poulenc og
Couperin. b) Andleg tónlist.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvik: Mosfellssv.-, Kjalarness-,
Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar.
Hafnarfjörður. Seltjarnames. Þrasta-
lundur. Laugarvatn. Bílpóstur að norð-
an. Fagranes til Akraness Laxfoss til
Borgarness. Þingvellir. Breiðafjarðar-
og Dalapóstur. Fljótshlíðarpóstur.
Austanpóstur. Goðafoss til Akureyrar.
Til Rvílcur: Mosfellssv.-, Kjalarness-,
Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar.
Hafnarfjörður. Seltjarnarnes. Þrasta-
lundur, Laugarvatn, Þingvellir, Fagra-
nes frá Akranesi, Laxfoss frá Borgar-
nesi. Norðanpóstur. Breiðafjarðarpóst-
ur. Þykkvabæjarpóstur. Strandasýslu-
póstur. Kirkjubæj arklausturspóstur.
Skipafréttir.
Guilfoss er á leið til Leith frá Khöfn.
Goðafoss er í Reykjavík. Brúarfoss er í
Rvík. Dettifoss er á leið til Hamborgar
frá. Grimsby. Lagarfoss er á Akureyri.
Selfoss er í Antwerpen. Súðin var við
Flatey á Skjálfanda í gær. Esja er í
Glasgow.
Ferðafélag íslands
ráðgerir 4 daga skemmtiför austur á
Síðu í næstu viku. Lagt á stað á mið-
vikudagsmorgun 3. ágúst og komið
heim aftur á laugardagskvöld. Farið
verður alla leið austur að Kálfafelli og
því að heita má um endilanga Vestur-
Skaftafellssýslu, en hún hefir að
geyma mikla fjölbreytni og sérkenni-
lega náttúrufegurð. Árbók F. í. 1935
fjallar um Vestur-Skaftafellssýslu og
er með fjölda af myndum. Hún er bezta
leiðarlýsing sem til er. Gist í Vík fyrstu
nóttina, aðra á Kirkjubæjarklaustri og
þriðju aftur í Vík. Ferðin veröur ódýr
og fararstjóri nákunnugur. Áskriftar-
listi á skrifstofu Kr. Ó. Skagfjörðs,
Túngötu 5, og séu farmiöar teknir fyrir
kl. 5 á þirðjudag.
Þórður Þórðarson læknir
er nýkominn heim eftir fimm mán-
aða dvöl erlendis. Dvaldi hann lengst
af í Þýzkalandi.
Ferðafélag íslands
biður þess getið, að yfir næstu helgi
fram á mánudagskvöld er ekki hægt að
fá gistingu í sæluhúsunum í Hvítárnesi
O" Kerlingarfjöllum, því að félagið
notar sjálft húsin.
Færeyjafarar.
Meðal þeirra, er fara utan með Lyra
í kvöld, er úrvalsflokkur knattspyrnu-
manna úr K. R., sem fer í heimsókn
til Föroya Boltfelag í Trangisvági.
Mun hann heyja að minnsta kosti tvo
kappleiki í Trangisvági og Þórshöfn.
Sékn Japana til
Hankow
LONDON:
Það er nú ekki lengur neinum vafa
bundið, að Japanir hafa algerlega náð
Kiu-Kiang á sitt vald, enda þótt Kín-
verjar segist enn verjast í borginni.
Ber erlendum fréttariturum saman um,
að Japanir hafi hertekið borgina og
haldi áfram sókninni í áttina til Han-
kow. Kiu-Kiang er um 150 enskar míl-
ur frá Hankow. — FÚ.
Norðuríör
krónpnnshjónanna
Dronning Alexandrine kom til Siglu-
fjarðar kl. 9y2 í gærmorgun í góðu
veðri en sólskinslausu.
Bæjarstjórnin efndi til opinberrar
móttöku til heiðurs krónprinshjónun-
um og flutti Guðmundur Hannesson
bæjarfógeti ræðu. Mikill mannfjöldi
var samankominn á bryggjunni og
hyllti krónprinshjónin með margföldu
húrrahrópi.
Frá skipshlið var haldið að Hótel
Hvanneyri, þar sem boðið var upp á
hressingu og karlakórinn Vísir söng
fimm lög, undir stjórn Þormóðs Eyj-
ólfssonar. Báru krónprinshjónin mikið
lof á söng kórsins.
Áður en skipið lét úr höfn kl. 11%,
og hélt af stað áleiðis til Akureyrar,
voru kirkjan og sildarverksmiðjurnar
skoðaðar.
Krónprinshjónin komu til Akureyrar
kl. 15.45 í gær. Mikill mannfjöldi var
saman kominn á bryggjunni og fagn-
aði hann krónprinshjónunum með
húrrahrópum. Kantötukór Akureyrar
söng Ó, guð vors lands, undir stjórn
Björgvins Guðmundssonar. Bæjarfó-
geti, bæjarstjóri og bæjarstjórn fögn-
uðu hinum tignu gestum. Bæjarstjóri
ávarpaði þá, en bæjarfógetafrúin færði
krónprinsessunni blómsveig. Að mót-
tökuathöfninni lokinni var ekið inn
að Laugalandi. Forstöðukona kvenna-
skólans þar, Valgerður Halldórsdóttir,
sýndi krónprinshjónunum skólann. —
Síðan var drukkið te. Að því búnu var
ekið aftur til Akureyrar og krónprins-
hjónunum sýndur skemmtigarðurinn,
en síðan fóru þau um borg í Dr. Alex-
andrine. Kl. 20 í gær var krónprins-
hjónunum haldin veizla í Menntaskóla
Akureyrar, og stóð hún yfir er blaðið
hafði síðast fregnir frá Akureyri.
Kveðjusöngur
Stefáns
Guðmundssonar
óperusöngvara
Stefán Guðmundsson söng í
Gamla Bíó í gærkvöldi fyrir fullu
húsi og við stórkostlegan fögnuð
áheyrenda, eins og jafnan áður.
Var þetta síðasti söngur hans í
'þessari dvöl héijlenúis. Hann
söng að þessu sinni óperuaríur
eingöngu, 16 alls um það, er
söngnum lauk. Haraldur Sig-
urðsson lék á hljóðfærið af víð-
frægri snilld þess manns, sem er
listamaður af guðs náð.
Það mun vera samhljóða álit
þeirra manna, sem hafa fylgzt
með raddþroskun og söngþrosk-
un Stefáns, að hann hafi aldrei
í heimsóknum sinum til íslands
sungið eins vel og að þessu sinni.
í fyrra var rödd hans í greinileg-
um vexti, en hafði tapað nokkru
af sinni upprunalegu fegurð.
Auk þess hafði hann þá ekki um
alllangt skeið hlotið nauðsynlega
endurskólun. Síðan hefir hann,
við dvöl sína á Ítalíu, bætt úr
því með mjög glæsilegum ár-
Bezti veíðí'
dagurixm
í gær
Síldveiðin er nú að glæðast
verulega og veiðiútlit langt um
betra en verið hefir fyrr í sumar.
Veiðiveður er ágætt, lygnt en
skýjað og sólskinslaust.
Á Siglufirði voru saltaðar frá því
um nónbil í fyrradag til nóns í gær
3771 tunna, á Ingólfsfirði 2157 tunnur,
á Akureyri 394 tunnur, á Sauðárkróki
250 tunnur (tvo síðustu sólarhringa),
á Skagaströnd 857 tunnur, á Ólafsfirði
rúmar 1000 tunnur og á Dalvík 375
tunnur.
Síldarverksmiðjurnar á Siglufirði
tóku á móti 5000 málum í gær.
Síldin veiðist einkum í Þistilfirði og
Skjálfandaflóa, en einnig er nokkur
veiði við Skaga, í Eyjafjarðarmynni og
út af Ingólfsfirði. Síld er einnig talin
mikil úti fyrir Austfjörðum, allt frá
Langanesi til Glettinganess og nokkur
sunnar.
Vélbáturinn Skarphéðinn var í
fyrradag um kl. 14 á ferð til Stein-
grímsfjarðar. Sáu bátverjar 4 stórar
síldartorfur suðvestur af Stóraboða.
Bátur, sem kom í gær frá Skaga til
Sauðárkróks sagði síld alla leið frá
Skagatá að Ingveldarstaðahólma á
Reykjaströnd.
Ríkisverksmiðjurnar á Siglufirði
höfðu í gærkvöldi alls tekið á móti 76
þús. málum til bræðslu. Verksmiðjunni
á Raufarhöfn höfðu borizt 4 þús. mál,
og Húsavíkurverksmiðjunni 2 þús. mál.
Verksmiðjan á Húsavík hefir ekki get-
að starfað í sumar, nema að litlu leyti,
sökum galla á vélunum og er búizt við
að hún komist ekki i lag í sumar.
Lýsisverðið er mjög lágt, en verðlag
á síldarmjöli er stígandi. Fyrir síldar-
mjölið sem selt er, hafa fengizt 10
sterlingspund og 15 shillingar, afhent
í erlendri höfn, en útlit er fyrir að hag-
stæðara verð náist, er næsta sala fer
fram.
í Seyðisfirði hefir eitt nótalag verið
að síldveiðum undanfarið. Hefir beitu-
síld aflazt í vor og sumar fyrir 14 þús-
und krónur.
St jói narherinn í sókn
4000 npprelstar-
menn teknir tll
fanga.
LONDON:
Sókn sú, sem stjórnarherinn spánski
höf síðastliðinn sunnudag, miðja vegu
milli Barcelona og Valencia, heldur á-
fram. Hafa hersveitir stjórnarinnar,
samkvæmt tilkynningu hennar í gær,
sótt fram 12 enskar mílur, og eru nú
komnar fram hjá bænum Gandesa.
Hafa þær tekið um 4000 fanga af liði
uppreistarmanna. Uppreistarmenn við-
urkenna, að stjórnarherinn hafi sótt
fram, en segja að sóknin sé stöðvuð og
hersveitir stjórnarinnar í hættu stadd-
ar. — FÚ.
angri. Rödd Stefáns hefir nú
j aftur hlotið aukna fegurð, um
lelð og hún hefir stórum vaxið.
Hann syngur nú af auknu valdi,
með eigin stíl og túlkun sérhvers
viðfangsefnis.
Stefán Guðmundsson er nú
j um rödd og söngsnilli vaxinn til
(Framh. á 4. síðu.)
Þýzku svifflugmennirnir
fara héðan í kvöld með Brú-
arfossi. Munu þeir á heim-
leiðinni koma við í Dan-
mörku og hafa þar flugsýn-
ingu.
í gærkvöldi héldu meölimir
Svifflugfélagsins þeim samsæti
í Oddfellow-húsinu. Var mót-
tökunefnd leiðangursins þar
stödd, stjórn Flugmálafélagsins
og ýmsir áhugamenn um flug-
mál. Voru þar afhent prófmerki
þau, er unnizt hafa meðan svif-
flugkennsla fór fram á vegum
leiðangursmanna. Hr. Baumann
afhenti Flugmálafélagi íslands
að gjöf sjálfvirkan hæðarmæli,
dýran grip og góðan, en nokkrir
einstakir menn hlutu minni
gjafir af sérstökum tilefnum.
Agnar Kofoed-Hansen flutti
fallega þakkarræðu til leiðang-
ursmanna, en hr. Baumann
foringi leiðangursins flutti ræðu
þá, er hér er birt í ágripi:
Háttvirtu gestir! Kæru vinir!
Hinn þýzki svifflug-leiðangur
til íslands 1938 dvelur nú síðasta
kvöldið í ykkar gestrisna landi.
Þar með lýkur dvalarstundum
okkar hér, er okkur munu verða
ógleymanlegar.
Ef við nú, að lokum, lítum yfir
árangur starfs okkar, getum við
glaðir og ánægðir, skýrt frá eft-
irfarandi: Við höfum flogið 331
mótorflug og mótorflug með
svifflugu í eftirdragi, 163 vindu-
svifflug og 156 renniflug. Þið
gátuð lokið prófum eins og hér
segir: 1 fimm-tíma svifflug, 14
C-flug, 4 C-próf og 7 A-próf. Þrír
af ykkur gátu þegar flogið á
svifflugu, dreginni af mótorvél.
Þar að alki var fundið hentugt
svæði, fyrir hinar ýmsu tegundir
brekku- og svifflugs og staðir
þessir reyndir.
Þið hafið, með flugum ykkar
sýnt og sannað, að staðhættir
og flugskilyrði hér á landi full-
nægja algjörlega öllum kröfum
í þessum efnum. Hvar í veröld-
inni finnst t. d. rétt fyrir utan
höfuðborg landsins flugvöllur,
sem er jafn hentugur fyrir byrj-
endakennslu, renniflug, vindu-
flug, brekkuflugog uppstreymis-
flug, og hér?
Þið megið einnig í framtíðinni
vera glaðir og þakklátir fyrir
það, að stjórnarvöld landsins og
Flugmálafélag íslands veita
starfsemi ykkar góðan stuðning,
af velvild og skilningi.
Allt þetta hlýtur að leggja á
ykkur þá skuldbindingu að beita
öllum kröftum líkama og sálar í
þágu flugmálanna, þessa glæsi-
legasta fyrirbrigðis vorrar aldar.
Þess vegna bið ég ykkur um að
verða og vera flugmenn sem lifa
í anda allra þeirra manna, sem
opnuðu fyrir okkur, börnum 20.
aldarinnar, leiðina upp í loftið,
með geysimiklum fórnum blóðs
og fjár. Sjáið um það, að „flug-
manna-drenglyndi“, sem er
hrósað svo mikið með orðum,
ritum og kvikmyndum, verði hér
á íslandi ekki að innantómu
hugtaki. Minnist einnig, sem
góðir drengir og þakklátir félag-
ar, fyrsta svifflugkennara ykkar,
Carl Reichstein. Haldið saman,
ákveðnir og tryggir, og hugsið
aldrei um sjálfa ykkur, einstak-
linginn. Látið orðin: „Flug-
mennskan fyrst!“, verða eink-
unnarorð ykkar. f þeirri von
kveðjum við ísland og væntum
þess af ykkur, að þið þegar á
næsta ári verðið orðnir svo góðir
flugmenn, að við getum mætt
ykkur aftur á lands- eða jafn-
vel millilandakeppni flugmanna.