Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Side 15

Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Side 15
'Færeysk hjón í þjóðbúningi með unga dóttur sfna. vogsins, fast við þjóðveginn, eru ein hverjar hinar elztu húsatættur, sem fundizt hafa í jörðu í Færeyjum. Hef ur garður verið steyptur framan við þessar fornminjar, svo að sjór spilli þeim ekki. Þarna hefur verið skáli mikill og önnur bæjarhús með risnu brag og langeldar miklir. á gólfí, veggir traustlega hlaðnir og allt flór að af vandvirkni. En ekki hefur forn aldarbóndi sá, sem þarna kaus sér bólstað, haft sérlega margt í fjósi, nema verið hafi útigöngugripir, sem legið hafi við skýli fjarri bæ. Mér virtust básarnir ekki hafa verið nema átta, og er það lítið miðað þar, sem sýnilega hefur tíðkazt hérlendis og á Grænlandi á býlum, sem viðlíka voru hýst og rausnarbær Kvívíkurbóndans. Þegar þórftir þessar voru grafn ar upp, fannst aragrúi fornminja, en það var sérkennilegt við margt, sem þarna fannst, að það var úr eínum, sem ekki fást í Færeyjum. Benti yf irleitt flest til þess, að þessar rúst ir væru frá elztu tímum mannabyggð ar í Færeyjum og fólkið, sem þar átti heima, hefði haft náin tengsl við önnur lönd. Við vorum ekki fyrr komnir yfir lækinn en út á veginn snaraðist aldr- aður maður, tæplega meðalmaður á vöxt, en allþrekinn og hvatlegur í öllum hreyfingum, ekki sízt ef þess er gætt, að hann er hálfníræður. Þetta var Grækaris Madsen, þekktur Kvívík ingur, viðræðugóður og fróður í bezta lagi, enda hefur hann með höndum umsjón með fornminjunum. Hann var auðvitað boðinn og búinn að sýna okkur hinar fornu tóftir og gera okk ur grein fyrir hverju einu, sem þar var að sjá. Það kom líka upp úr kafinu, að hann var ekki alls ókunn ugur íslendingum. Fyrr á árum var hann sumar hvert við sjóróðra á Norðfirði, maður gagnkunnugur mörgum Austfirðingum, sem voru að hefja manndómsskeið sitt í byrj un þessarar aldar. Og fleira var það en bönd minninganna, sem tengdu hann íslandi: Sonur hans, Leifur, er búsettur í Reykjavík, einn af forvíg ismönnum Færeyingafélagsins. Þó að Kvívík sé lítil byggð, hafa margir merkilegir menn alið þar ald ur sinn, sumir frá vöggu til grafar. Þar var Hammershaimb — maðurinn, sem mótaði færeyskt ritmál — prest ur upp úr miðri nítjándu öld. Hið fyrsta nýárskvöld, sem hann messaði í Kvívíkurkirkju, bar það til tíðinda, að hann las guðspjallið á færeyska tungu. Slíkt og annað eins hafði þá aldrei heyrzt í færeyskri kirkju, og Kvjvíkingum þótti sem helgispjöll hefðu verið framin. Danska var í vitund fólks tunga guðs, og það var furðuleg bíræfni af manni, sem vigzt hafði til þjónustu við helga trú og kirkju, að snúa guðspjöllunum á fær eysku. Fólk tók þessa svo óstinnt upp, að Hammershaimb dirfðist ekki að gera slíkt framar. Ur því að vikið hefur verið að prestum í Kvívík, má drepa hér á atvik, sem-kom fyrir annan Kvívík urprest, þótt óskylt sé það þessu. Hann fór til messugerðar á annexíu sína í Hvalvík, sem er handan fjalla við sundið milli Straumeyjar og Aust ureyjar. Tvö börn voru færð til kirkju til skírnar þennan dag, og var annað dóttir kóngsbóndans í Ólafsstofu, en hitt sonur þurrabúðarmanns eins í grannbyggð, sem Straumnes heitir. Kóngsbóndinn krafðist þess, að dótt ir sín væri skírð á undan syni þurra búðarmannsins, en fékk því ekki framgengt. Strandaði þar á hinu S3ma og olli hneykslun Kvívikinga, er guðspjallinu var snúið á færeysku: Rótgrónum kirkjusiðum, sem ekki mátti hnika. Það var sem sé ófrá víkjanleg venja, að sveinbörn væru skírð á undan meybörnum, jafnvel þótt munur væri á aldri barnanna og efnum og áliti foreldranna. Fyrir þessu varð kóngsbóndinn að beygja sig, þótt honum líkaði það stórilla. En hann var ekki á þeim buxun um að láta skíra bæði börn úr sama vatninu. Jafnskjótt og presturinn hafði ausið drenginn þurrabúðar mannsins vatni, hljóp kóngsbóndinn til og þreif skírnarskálina fyrir aug- unum á prestinum og snaraðist með hana út. Steypti hann þar úr henni vatninu og sótti síðan nýtt vatn í ána, sem rann meðfram kirkjugarðs veggnum, Þetta tiltæki mun hafa mælzt misjafnlega fyrir, enda þótt kóngsbóndi ætti í hlut. En þegar fram liðu stundir, gátu menn brosað að þessu atviki: Tuttugu eða þrjátíu ár um síðar rann sú stund upp, að son ur þurrabúðarmannsins á Straum- nesi festi sér konu og brúður hans var engin önnur en dóttir kóngs bóndans í Ólafsstofu. Þegar Hammershaimb las guðspjall ið á færeysku í Kvívíkurkirkju, var þar í byggðinni ungur, bókhneigður drengur. Hann drakk í sig ást prests ins á móðurmálinu og tók að leggja við það mikla rækt. Einhvern tíma þegar hann var nálægt tvitugu barst hann til íslands í hópi þeirra Fær- eyinga, er einna fyrstir leituðu á íslandsmið. Bar svo við, að hann kom að Bessastöðum og var þar við guðsþjónustu. Undraðist hann, að þar fór allt fram á íslenzku, og gat < t M I N N - SGNNUDAGSBIAÐ 855

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.