Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Page 19

Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Page 19
; . ■ ■■ , • .*•• •.........*•:. .•:•'•:•*•. •: 6©m það er borið á mig, að hrossa- Íykt sé af méir, og ég þvæ mér bæði fcvölds og morgna og skipti ævinlega um föt, ef ég fer eittnvað. Herra démarinsn verður að gera svo vel og biðja mig forláts og það 1 vina og votta viðurvist, svo framarlega sem hann vill eiga þess kost oftar að slá í slag við mitt fátæklega borð í þessu iífi. Sælir! Og hurðin skall svo hart aftur, að ljósahjálmurinn hristist. — Murphy, æpti ómarinn, og beindi orðum sínum til lögreglu- þjónsins við dyrnar. — Fáið hann til að koma inn aftur. Ég ætla að biðja hann afsöbunar. í næstu andrá, stóð Murphy aftur í dyrunum, og Murphy númer tvö, lögregluþjónninn, tók sér stöðu eins og áður, óhagganlegur með hendur fyrir aftan bak. — Murphy, vinur minn, sagði dóm- arinn öldungis rólegur. Ég bið þig hér með afsöbunar, fyrst þú tókst þetta svona illa upp. Ég átti alis ekki við það, að hrossalykt væri af þér. — Yðar hágöfgi, herra dómari, svaraði Murphy og var nú einnig rólegur, þó að hann væri nokkuð hávær. Ég tek afsökun yður gilda. Þessu næst gekk hann til sætis síns, stór og fyrirferðarmikiil. — Eg býst nú við, að við séum loksins lausir við þennan bannsetta brúna klár, sagði dómarinn og var nú ísmeygilegur, en um leið hæífcu- legur, hættulegur . . . Að öðrum kosti ... — Hann er ekki brúnn, sagði stúlk- an. Hann er brúnn með mörgum hvítum blettum Hann er fallegasti folinn, sem til er í öllu héraðinu. Það skuluð þið vita — og líka sá vitrasti. Hún leit snöggt í ákveðna átt •— til fimmta bekkjar. En honum geðj- ast ekki að hverjum sem vera skal, nei og aftur nei! Nú vax hamrinum slegið í borðið af iniklu afli. — Halldið áfram með skýrslu yð- ar, ungfrú góð. Að öðrum kosti dæmi ég yður í þyngstu sekt, sem leyfilegt er, fyrir ónauðsynlega sóaín á hinum dýrmæta tíma réttvisinniar. — Jæja þá. Frá hverju á ég að skýra? — Svarið og segið eins og er, þeg- ar ég spyr yður: Voruð þér í þing- um við herra Bóas? — Nei, nei. Það verð ég að segja honum til hróss, að hann snerti mig aldrei, reyndi aldrei að nálgast mig. Nokkrum sinnum tók hann í hand- iegginn á mér, þegar ég vildi ekld fara upp í herbergið. Og nokkrum sinnum bar hann mig upp. Hann er svo sterkur. Hún rétti fram hendurnar og sneri lófunum upp: — Svona bar hann mig eins og ég væri smákrakki. Og síðan tautaði hún fyrir munni sér: — Haun gerði ekki einu sinni svo mikið, að hann kysstí mig. Ég bjóst við, að hann færi að kyssa mig. En nei, það gerði hann ekki. Aheyrendur á bekkjunum ókyrrð- ust. Dómarinn brosti. Sækjandinn setti hönd fyrir munn sér til þess að leyna því, að hann hló. Verjandi brosti breitt og opinskátt, búlduleit- ur og stórskorinn. Sakbomingurinn sat óbifanlegur og þungbúinn. Hann bafði ekki augun af stúlkunni, sem stóð þama skammt frá honum, dökk- hærð og grannvaxin í svörtum föt- um. — Kaupið yðar var látið í spari- sjóð smátt og smátt? — Já, það er rétt. Sækjandi stóð á fætur og sagði fremur kæruleysislega og eins og út í bláinn: — Nei, eiginlega hef ég ekki um neitt að spyrja. Málið er alveg aug- ljóst. Sannanirnar lagðar fram. Stúlk an var lokuð inni í þrjú ár. Það er ekki leyfilegt að loka fólk inni í einkafangelsi hér á landi. Þetta var reglulegt þrælahald eins og stúlk- an segir. Dómarinn sló í borðið. — Segið mér, ungfrú . . . Þekkt- uð þór sakbominginn nokkuð, áður en hann hitti yður og talaði við yður á þjóðveginum? — Mjög lítið. Hann kom til bæjar- ins í verksmiðjuna einu sinni á miss- iri. Ég aðgreindi ull í birgðaskemm- unni. Hann talaði þá við mig um veðrið og þess háttar. Ég mætti hon- um nokkrum sinnum, þegar óg var T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 859

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.