Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Blaðsíða 3
SíSK&I'K'kJííííSsí
fUljSjlM NhYT-
í náttúrugripasöfnum ýmsum eru til mestu kynjadýr, og mega
íslendingar minnast lamba með sex eða átta fætur og kálfa
með tvö höfuð. í safninu í Sundsvall er frægt dýr af þessu
tagi — héri að framan en fugl að aftan. Einu sinni var því
trúað, að það væri afsprengi héra og þiðurs. En svo óskyld
dýr geta samt ekki eignazt afkvæmi.
undarleg afkvæmi.
Þiðrar og orrar eru einhverjir nafntoguðustu biðlar
meðal fugla. Ástarsöngvar þiðursins eru alkunnir í
Svíþjóð og Noregi, og orrinn gerist harla ófriðlátur
og heyr marga orrustuna. í hita slíkra daga getur
það komið fyrir, að karlfuglar af þessu kyni gefi sig
að óskyldum hænum, og spretta stundum af þyí
Orrarnir tryllast bókstaflega um það
leyti, sem fuglarnir para sig. Þeir
berjast upp á líf og dauða, og það er
jafnvel unnt að ginna þá til þess að
maka sig með stoppuðum hænum.
Flækist þiðurhæna á þær slóðir, þar
sem orrarnir heyja ástarleiki sína, get-
ur af þvi hlotizt slys. Þiður og orri eru
svo náskyldir fuglar, að þeir geta átt
afkvæmi saman. Ávöxturinn verður af-
brigðilegur fugl.
í Rumskulia í Smálandi er varð-
veittur einn undarlegasti fugl Syí-
þjóðar. Að jafnaði eru kynblending-
arnir ófrjóir — þó ekki ævinlega.
Fuglinn í Rumskulla er afkvæmi
orrablendings og þiðurhænu.
í ríkissafninu í Stokkhólmi er fugi,
sem er sérlega dapurlegur álitum. Hann
líkist hænu, en stélið á honum lafir.
Þetta er afkvæmi orra og venjulegrar
varphænu, sem villtist inn í skóg, á
fund kynóðra orra.
Það er óþekkt, að skjór og kráka
eða svölutegundir fæði af sér slík
afkvæmi. En hænsfuglarnir eru ná-
skyldir. Það hefur komið fyrir, að
orrar hafi átt afkvæmi með rjúpum
af fleiri en einni tegund.
Kynhvöt dýra í búrum brenglast oft.
Páfugl, sem ólst upp í dýragarði inn
an um skjaldbökur, steig alla ævi
í vænginn við skjaldbökur, en hirti
hvorki um dýr né fugla af öðru
kyni.
T t M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ
27