Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Qupperneq 11

Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Qupperneq 11
dal. Þeim mun síður vissi ég, að Jón, móðurbróðir föður míns, sem hafði farið til Vesturheims, ásamt Ólafi, bróður sínum, hafði kallað sig Jón Hrafndal, þar sem afi hans var fæddur og uppalinn í Hrafnadal en hann bar hans nafn, sem og faðir han, Jón í Hvítuhlíð. Þau Bjarni og Sigríður höfðu átt sjö börn saman, er öll náðu fullorðinsaldri. En ekkert þeirra staðfestist í Hrafnadal. Þetta var mér barninu að sjálf- sögðu lokuð bók, þótt nú sé mér ættfræðin kært viðfangsefni. Brátt var göngunni yfir holtið lokið og við blasti torfbær í dimmgrænu túni. Þetta var Hrafnadalur. Þó sá ég enga hrafna við bæinn. Þegai ég kom að bænum í Hrafnadal, var mér vel tekið og bóðið í baðstofu. Þar sátu á rúmum sínum gömul hjón og tóku mig tali. Þetta voru Þorsteinn Helgason og Helga Sigurðar- dóttir. Þorsteinn var frá Gröf í Bitru, en Helga var dóttir Sigurðar kirkjusmiðs á Hólmavík, Sigurðs- sonar og Guðbjargar Helgadóttur. Var Helga hálf systir Stefáns frá Hvítadal, hins þekkta skálds, sam- feðra. Þessi gömlu hjón voru einkar hlýleg við mig. En ég tók eftir því þá strax, hve fastmælt þau voru og kváðu aídráttarlaust að hverju orði, sem þau sögðu. Spurðu þau mig frétta, og leysti ég úr því eftir' föngum, en fann vel, hve fátt ég vissi. Meðal annars spuvðu þau mig um bændur í Miðdölum, þar sem ég hafði átt heima til níu ára aldurs, en þau kunnu miklu betur skil á þeim en ég, því að þau þekktu nafn hvers manns, að mér fannst, þar vestra. Furð- aði ég mig á þessu og spurði, hvort þau hefðu búið þar, en þau sögðu það ekki vera. En Þorsteinn sagði, að handhægar væru markaskrárnar til þess að vita nöfn nærsýslunga. Fftir að ég hafði þegið góðgerðir og lokið erindi mínu, kvaddi ég þessi góðu hjón, en Sigurður, son- ur þeirra, bauðst til þess að fylgja mér áleiðis. Gerði hann það og hófst þar vinátta okkar, en Sigurður var einbver hinn stálminnugasti og greindasti maður, sem ég hef kynnzt og vinfastastur. Þetta varð í eina skiptið, sem ég kom í heimsókn til þeirra Þorsteins og Helgu, enda áttu þau þá skammt ólifað. Þorsteinn hafði, auk þess að vera góð- ur búhöldur, verið járnsmiður, og voru þau hjón bæði vel þekkt fyrir atorku og gestrisni. Þau bárust lítt á, en bjuggu vel að sínu og komu upp stórum og gervilegum barnahópi. Þau voru mjög samhent í líf- inu og fylgdust að til síðustu stundar. Þorsteinn and- aðist 19. október 1931 og stundaði Helga, kona hans, hann í banalegunni, en lagðist síðan í rúm sitt og and- aðist stuttu síðar,hinn 2. nóvember 1931. Urðu þau samferða í eina gröf og var fjölmennt við útför þeirra Stefán í Hvítadal, bróður Helgu, orti um þau kvæðið Fornar dyggðir, og vil ég gjarna setja hér þrjár vísur úr því kvæði. Með sólu dag hvern sífelld önn á sumri hverju mætti, og grasið féll sem gárótt hrönn, þau gengu tvö að slætti. Og húsfreyjunni hugþekkt var að heiman engjaveginn, um dagmál yngstu börnin bar að baki sér á teiginn. Þvi vegför manna iðju án er ævireik á söndum, en átak hvert er ævilán í iðjumanna höndum. Og þeim var starfið aldrei ok, en örðugt þó á stundum. Um heiðar frammi bylgjast brok á breiðun flóasundum. Þeim lýsti trú, unz lífi sléit, og landsins fornu dyggðir. Þau efndr. vel sín æskuheit um ævilangar tryggðir. Þau saman litu hinztu höf og háan veðurklakka — þau saman eina gistu gröf f garðinum á Bakka. Eftir fráfall þeirra Þorsteins og Helgu tóku fimm börn þeirra við búi, Guðrún, er gift var Jóhannesi Framhald á 46. síSu. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 35

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.