Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Qupperneq 12

Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Qupperneq 12
HALLDÓR KILJAN LAXNESS — slapp óbarinn frá sögulestri sínum I samkomuhúsinu í Riverton vlð íslend- Ingafljót. SJANG KÆ-SÉK — fastlega grunaður um að vera blóð- rauður bolsi. Grafskrift sett heiðursárinu 1927 Það er upphaf þessa máls, að mér hefur lengi verið til efs, að draumar séu að miklu hafandi. Þó er ekki fyrir það að synja, að méi hefur fyrir augu og eyru borið, að merka menn hafi bæði fyrr og síðar dreymt sitthvað, er eftirminni lega þótti koma fram. Fljúga méi þá fyrst í hug tveir héraðshöfðingj- ar á stormasömum tímum, Sturla Sighvatsson og Jón á Akri. Svo hafa menn af Sturlu sagt að hann stryki sér um sveitta kinn, er hann vaknaði i lokrekkj unni í Miklabæjarskála hjá llluga presti laugardagsmorguninn sæla árið 1238, styndi við heldur mæðu lega og segði: „Ekki er mark að draumum.11 Gekk að svo mæltu til salernis, söng síðan .Ágústínusar- bæn af rollu einni og féil þai næst fyrir smádjöflum v;ð Örlygs- staðagerði — hafði enda eigi vel stinnt málaspjót sér til varnar. Hér er þess raunar ekki getið, hvað Sturlu heitnum bar í drauma, og er það afsakanlegt, þar eð morg- unverkin kölluðu að og maðurinn ekki til frásagnar, þegar degi hall- aði.-En sá skilst mér, að sé grun- ur manna, að draumurinn hafi rætzt svikalaust. Um Jón á Akri gegnir öðru máli þar eð hann átti langt líf fyrir höndum, og hefur hann sjáífur frá því sagt er hann dreymdi fyrir þingmennsku sinni útmánað- arnótt 1929, staddur í gistihúsinu í Borgarnesi á leið á flokksþing Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ilef- ur það og aldrei verið á bækur skráð, að vopn þau, sem hann beitti í höggorrustum í Húna- þingi, reyndust klökk sem mála- spjótið Sturlu á Örlygsstöðum. Nú víkur sögunni að sjálfum mér, sem aldrei hef þyngra vopni beitt né hvassara en lökum penna (axarpennar, sem þóttu hin mestu þing í æsku minni, þekkjast ekki lengur). Samt sem áður bar svo við, að ég leiddist eitt sinn til þess að setja löngu liðnu ári nokkurs konar grafskrift. Þóttist ég þar allt segja, er ég vissi sannast og rétt- ast, svo sem prestarnir gera, þeg- ar þeir kasta rekum á náinn, og urðu þetta lofsamleg eftirmæii að verðugu. Það var sem sé árið 1926, sem hér átti hlut að máli. Kunn- ugt var mér, að til er árátta sú, sem kallast afbrýðisemi, og hún ekki með öllu ný af nálinni, því að það hef ég séð í fornuin ritum, að Herborg Húnadrottning kunni af henni að segja á dögum Guð- rúnar Gjúkadóttur. Hitt hefði mig aldrei grunað, að eljurígur ætti sér stað með árum, sem gengu um garð í æsku minni. En nú hefur mér það í drauma borið, er sýnist engu ómarkverðari en svefnfarir þeirra manna tveggja ,er til hefur verið vitnað, á gististöðum þeirra 36 1 I M I N N SBNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.