Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Qupperneq 15

Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Qupperneq 15
Hér dó eldurinn hjá Gretti, og síðan er þaS ís- lenzkum sundmanni mest frægð aS synda héðan upp á Reykjaströnd. V við leyndarþing Húnvetninga. Reisti hún því kröfu á hendur lækninum, að hann borgaði þrjú hundruð krónur á ári með sjúkl- ingi sínum á meðan báðir lifðu. Læknirinn mun aftur á móti hafa verið tregur að fallast á þá lög- skýringu, að það bakaði honum framfærsluskyldu, þótt læknisað- gerðir hans bæru sýnilegan ávöxt, og er skemmst af hans athöfnum að segja, að hann brá sér til Vínar til þess að kynnast þar ígræðslu- aðferðum Voranoffs prófessors, hvað sem sagt var í Kirkjuhvamms hreppi. En tíðindin af Norðurlandi komust í þýzk blöð, og þar var meðlagskrafan orðið þrjú þúsund krónur, og mun Þjóðverjum hafa Eundizt lítið kveða að þrótti karls- ins eftir hina saknæmu lækningu, ef fá hundruð voru nægar bætur. En það var um fleira rætt í land- inu en ævintýrin, sem gerðust á Hvammstanga. Ungu stúlkurnar bar líka á góma. Stuttklippt hár hafði til skamms tíma þótt jafn- ófýsilegt á kolli ungrar stúlku og tvíburar í kviði ógiftrar móður. En nú var það lenzka, og þar að auki voru komnir háhælaðir skór, hvít- ir silkisokkar og ermalausir kjólar, sem ekki tóku nema niður um hnjákollana. Margt frómt fólk fékk ekki orða bundizt: „Þeim er óhætt að trúa því, stúlkunum hér í Reykjavík, að það er spaugileg sjón að sjá gíraffa í girðingu, er þeir stíga stutt og tylla niður löngu löppunum. Ég er að segja stúlkunum þetta af því, að þær minna mig margar á þessa áðurnefndu skepnu, þegar þær T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ koma á háu hælunum stikandi steinkantinn stéttarinnar.“ Kostur stuttu pilsanna voru þeir, að þau „létu sjást í sólskini og logni það, sem áður ekki sást nema í háa, hífandi roki.“ Annars töldu áhugasamir höfundar nokkrum vafa undirorpið, hvað siðlegast væri að fela, enda lenzku háð og tízku. Var þar fært til dæmis, að Múham- meðstrúarstúlka, sem verður fyrir óvæntu ónæði, nýstigin úr baði, „bregður ekki handklæði fyrir hið sama og við í Þingholtunum, held- ur andlitið.“ Og 1 ávarpi einu um pilsin, sem Alþýðublaðið flutti ung um stúlkum, var látið við það sitja að vara við stuttu pilsunum, „ef lappirnar á ykkur eru nokkuð líkar rokkhjóli eða ef mjóaleggirn ir á ykkur eru eitthvað í ætt við símastaura.11 Þegar Guðmundur Finnbogason harmaði það, að skáldin myndu ekki framar minnast þess í ljóði, er þau greiddu unnustunni lokka við Galtará, kom jafnharðan fram annar, sem spurði, hver nennti eiginlega að greiða kerlingum við læk uppi í sveit, enda líklegast, að hárgreiðsludömurnar væru betur fallnar til slíkra verka en skóla- strákar að norðan. En ekki er því að leyna, að illa fór fyrir sumum þessum stutt- klipptu og stuttpilsuðu stúlkum eins og ráða má af kvæði, sem eitt dagblaðið birti. Þar í var þessi vísa: Og nú er brosið burtu, en blóðug, ólétt, marin hún grætur gengna tíma, því gyllingin er farin. Á ráði bænda var sá ljóður, að ekki draup hjá þeim smjör af hverju strái jafnríkulega og á dög- um Þórólfs smjörs. Þess vegna var smjörekla nokkur í kaupstöðum. En bót var ráðin á því með hagan- legu móti. í Danmörku var margt nautgripa af Kristófersættinni, er þá var rómuð í íslenzkum ritum umfram flestar ættir aðrar (þá var enn fátt rætt um Bergsætt og Hlíðarætt). Fyrir þessar sakir voru Danir aflögufærir um viðbit og létu sig ekki muna um að snara nokkrum smjörpinklum handa Reykvíkingum í lestina í Drottning unni. En þó að gott væri viðbitið, lögðu menn aðaláherzluna á and- ann. Þetta var árið, þegar Þórberg- ur Þórðarson skrifaði ritgerð sína, DRANGEYJARKAPPINN, sem lék sömu tist og Grettlr — Erlfngur Pálsson lögregluþjénn. 39

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.