Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Side 16

Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Side 16
Hér í höfuðstað Norðurlands hófst skeiðiS mikla, er eigi iauk fyrr en f Saurbæ fyrir kirkjudurum séra Gunnars. Lifandi kristindómur og ég, og kvæSi Davíðs Stefánssonar um Hallfreð vandræðaskáld og Kol- finnu í selinu birtist í Vöku. Hin fræga ritdeila Sigurðar Nordals og Einars H. Kvar- ans stóð sem hæst, og nor-ð- ur á Akureyri kom trúboðinn Gook upp útvarpsstöð með hundrað og fjórtán feta háar stengur. í almanaki Þjóðvinafélagsins birtist hin skilmerkilegasta grein um Lev erhulme lávarð — manninn, sem bjó til sólskinssápuna, er freyddi á þvottabretti sérhverrar húsfreyju í landinu. Þannig lögðust margir á eitt að víkka sjóndeildarhring lands ins bárna. Sýslunefndin í Vestur-Skaftafells sýslu lét sig ekki muna um að fá Sigurð Nordal í fyrirlestraríerð um byggðarlögin austur þar, og hjá kvenfélaginu Öldunni í Önguls- staðahreppi voru fjölbreytileg sam- kvæmi nær því jafnviss og tungl- koman. Þar flutti Theódóra hús- freyja á Kambsmýrum það, sem hún hafði ósjálfrátt skrifað — stól- ræðu, sem talin var kynjuð frá séra Páli Sigurðssyni, sálma, sem Hallgrímur Pétursson, Jónas Hall- grímsson, Matthías Jochumsson og Þorsteinn Erlingsson áttu ókveðna, er þeir ióru í viðivallavistina fyrir handan, og harla veraldlegt kvæði eftir Hannes Hafstein, er auðheyr- anlegt fannst lítið til um alþingi. Á þessum kvenfélagssamkomum sungu líka Benedikt Elfar og Lizzý Þórarinsson á Halldórsstöð- um. Og þá erum við að því komin, að þetta var eitt hið mesta söngár, ekki síður en lækningaár og upp- yngingar. Einar Hjaltesteð, sem fegurst hefur sungið á stakkstæð- um fyrir fiskburðarstelpur, kom heim frá Kaupmannahöfn og söng Sidste smerter fyrir Reykvíkinga. í kjölfar hans kom Pétur Jónsson, sem var niðji Mensaldurs í Papey, er söng svo fagurlega fyrir haf- gúur í Hrómundarbót, að það hef- ur aldrei síðan gleymzt. Samtímis voru Eggert Stefánsson og Hreinn Pálsson á ferð um landið og þar að auki Kristján Kristjánsson og Markansbræður. Og ipeðan söngur- inn hljómaði allt norðan úr Eyja- firði og suður á fiskreitina hjá Haga, synti Erlingur Pálsson úr Drangey við tilsjón Bjarna Jónsson ar Drangeyjarformanns og tók land á Hrossvíkurnefi, þar sem griðkon- ur allar á Reykjaströnd biðu þess að sjá, hversu líkt þeim væri farið, Erlingi og Gretti. Á leiksviðinu túlkuðu Reinhold Richter, Ólafur Þoi’grímsson og Jón Auðuns mannleg fyrirbæri, Ágúst Kvaran leiddi okkur fyrir sjónir príor munkanna á Möðru- völlum og Guðmundur Kamban stökk sjálfur upp á fjalirnar í Iðnó í gervi sendiherrans frá Júpí- ter. Þeim sendiherra þótti það sið- laust, hvernig jarðarbúar hópuðust saman til snæðings — afhafnar, sem sæmilegt fólk á Júpíter kaus að fiæmja í einrúmi. Tæknin hafði ekki gleymzt með öllu við leik, söng og íþróttir. Kolahegri gnæfði við Reykjavíkur- höfn, splunkunýr, en ekki að sama skapi vinsæll meðal hafnarverka- manna, sem kviðu því, að stálfugl þessi myndi reynast hinn versti rán fugl á vinnumarkaðnum. Varð því ekki öllum hlýlega hugsað til Eld- eyjar-Hjalta, sem látið hafði reisa kolakranann: Bregðist þér, maður, brauð og féð bæta það mun vandann, hafirðu aðeins heyrt og séð Hjaltastaðarfjandann. í Flóanum dafnaði gulstörin bet- ur en nokkru sinni fyrr síðan á dögum Þorgríms errubeins, svo Framhald á 46. síðu. 40 ÓJIINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.