Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Page 20

Tíminn Sunnudagsblað - 15.01.1967, Page 20
Þessa brekku höfðu bifreiSar ekki fyrr sporaö hjólum sínum, og iengra ekki heldur komizt. Ljósm. Sigursfeinn Melsteð. allar myndavélar á lofti. Ég ætlaði mér að komast yfir ána, því að þeim megin frá var betri aðstaða til myndatöku. En ég rann á hál- um steinum og datt í ána. Hún var ekki mjög djúp, en dálítið köld. En maður lætur ekki slík óhöpp á sig fá, og ég öslaði yfir. Bergið, sem fossinn fellur fram af, er stuðlaberg. Stuðlarnir eru rnjög formfastir og sannkölluð lista- smíð. Ég vildi nefna þennan stað Stuðlaborg og fossinn Borgarfoss. Klukkan var orðin hálftíu, þegar við lögðum á brattann frá foss- inum. Sumir höfðu þó haldið fyrr af stað upp langa og bratta brekku upp úr dalnum. Þeir voru komnir þar upp undir klettabelti og horfðu kampakátir á okkur hina. Þegar ég var kominn langleiðina upp undir klettana, uppgötvaði ég, að ég hafði týnt kortinu. Ég hafði stungið því í flýti í rassvasann, og nú var það horfið. Ég bölvaði hressilega. En við þessu var ekk- ert hægt að gera, enginn tími til að snúa við og leita. Ég hélt því áfram upp á brúnina. Þar settist ég niður við hlið Óskars fylgdar- manns. Við þögðum báðir og köst- uðum mæðinni og horfðum á hvít an og bungumyndaðan Þrándarjök ulinn, sem sást vel, þótt kvöldsett væri orðið. Síðan • tókum 'dð tal saman, meðan við biðum eftir fé- lögum okkar. Og þá hafði ég það upp úr þessum dula og hógværa manni, að hann hafði lent í iífs- háska á þessum slóðum fyrir nokkrum árum. Það var um vetr- artíma. Hann hafði farið ásamt bróð ur sínum, Gunnari að nafni, 1 Víði- dal. Þar fundu þeir sex lömb, sem þeir komu eftir mikla 'örðugleika að rústunum í dalnum. Þar ætluðu þeir að láta fyrirberast um nótt- ina og leita víðar daginn eftir. En skyndilega skall á blindhríð af norðri, og var þá ekki til setu boð- ið. Þeir lögðu á Háásinn, en sáu tæpast handa sinna skil og vissu varla, hvert þeir fóru. En loks rof aði til, og þá voru þeir staddir í brúnunum sunnan Geithellnadals. Og heim komust þeir eftir liðlega tveggja sólarhringa göngu. Matar- litlir og ekki of vel klæddir brut- ust þeir áfram í byl, frosti og nátt- myrkri með sex lömb. Og ekki datt þeim í hug að skilja þau eftir. —Þá hefðu þau aldrei fundizt aftur, sagði Óskar og sló með hægð úr pípunni sinni. Ég horfði með aðdáun á þenn- an mann. Þetta var hetja, ein af þeim hetjum, sem ekki hljóta gyllta heiðurspeninga fyrir afrek sín. Annars geta þeir, sem vilja fræðast betur um þessa svaðilför þeirra bræðra, lesið um hana í 27. tölublaði Sunnudagsbiaðs Tímans 1965, en þar hefur Óskar, eftir margítrekaða beiðni, skrifað skemmtilega grein um þetta kulda- lega ferðalag. Loks voru allir komnir upp, og förinni var haldið áfram eftir gróð urlitlum blautum aurum. Það var farið að skyggja, og sóttist ferðin orðið hægar en áður. Við og við var numíð staðar, og nartað í suðu- súkkulaði. Hæst á Háásnum geng- um við eftir nokkrum snjófönnum. Við vorum heldur ekki langt frá jökli, því að Hofsjökull var fast á vinstri hönd, en á hægri hónd var fjall, sem Hnúta heitir, um 900 metra hátt. Sjálfur er Háásinn 740 metra yfir sjó og ekki furða, þótt þar sæjust fannir. Brátt sáum við glampa á dálítið vatn fram undan. Óskar sagði það heita Hvitavatn, og úr því fellur á, sem Innri-Þverá heitir. Rennur hún í Víðidalsá. Við fórum sunnan við vatnið, en þar er fremur ógreið- fært sökum þess, að stórgrýtisurð teygir sig út í það á löngu svæði. Betra er að fara norðan vatnsins, en það er heldur lengri leið. Sann- aðist því hér „að betri er krókur en kelda.“ Þegar vatnið var að baki, hafði tognað talsvert úr lest- inni og komið svartamyrkur. Ferð- in sóttist nú hægt yfir móa og dýja yeisur. Milli sex og sjö kílómetrar eru frá vatninu út að eyðibýlinu Grund í Víðidal. Það varð því úr, Fyrri tjaldstaðurinn. Mennirnir eru, talið frá vinstri: Arnþór, Óskar, Sig- ursteinn og Árni. Ljósmynd: Guðjón Sveinsson. 44 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.