Tíminn Sunnudagsblað - 05.02.1967, Qupperneq 7
Tíberíus keisari með sigurkrans um
hárlð.
vakti skelfingu og sorg í Róm.
Ágústus keisari var svo yfirkom-
inn af harmi, að hann lét hvorki
skera hár sitt né skegg í marga
mánuði eftir atburðinn og sló stund
um höfðinu í örvinglan við hurð
salar síns og hrópaði:
„Varus! Varus!, Skilaðu aftur
hersveitunum mínum.“
En kveinstafir hans máttu sín
einskis.
Tíberíus hélt brátt með her sinn
til Germaníu, kom á friði og stöðv-
aði sókn Germana vestur á bóginn
En niðurstaðan varð sú eftir nokk-
urt þóf, að keisarinn ákvað, að
landamærin skyldu færð til Rínar
á ný og hætt við að gera Germaníu
að rómversku skattlandi.
Hinn 27 ára fullhugi, Arminíus,
sem lagt hafði á ráðin og stjórnað
aðförinni í Teftóborgarskógi, hlaut
ekki verðuga viðurkenningu fyrir
afrek sitt. Hann lifði eftir þetta i
nokkur ár og átti í margvíslegum
erjum heima fyrir. Að síðustu var
hann myrtur á laun af eigin mönn-
um.
Atburðirnir árið 9 urðu þess vald
andi, að Germanir fengu áfram að
lifa sínu lífi, frjálsir og óháðir,
meðan Rómverjar réðu öllum lönd
um Evrópu vestan Rínar og sunn-
an Dónár. Þess vegna hélt líka þýzk
og norræn tunga og menning velli.
En enginn veit, hvort svo hefði far-
ið, ef rómversk yfirráð og latnesk
tunga hefðu orðið ríkjandi allt að
suðurlandamærum Danmerkur.
Orrustan 1 Teftóborgarskógi mark-
ar því þáttaskil sem einn hinna ör-
Syrgjandi kona af þjóðflokki Germana.
Styftu þessari hefur verlð gefið nafn
konu hlns germanska kappa, Arminf-
pusar.
lagaríkustu atburra í sögu Norður-
álfu.
Richard
Beck;
FERÐA-
VÍSUR
FLOGIÐ VESTUR
Vestur hafblátt himindjúp
hraðfleyg þota svífur,
ofar skýja hvítum hjúp
hrannir loftsins klýfur.
FJALLASÝN Á
VETRARMORGNI
(í Denver, Kóloradó)
Klædd í mjúkrar mjalla pell,
morgunroða glituð,
tigin gnæfa fjöll og fell,
furðumyndum rituð.
í KALIFORNÍU
Gróðurfagrir glitra lundir,
gullin aldin skógur ber.
En alltaf brosa gamlar
grundir
grænar djúpt í huga mér.
Á HEIMLEIÐ
Austur loftin há og heið
heim er gott að snúa,
hálfrar álfu langa leið
léttum vængjum brúa.
TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ
1C3