Tíminn Sunnudagsblað - 02.04.1967, Blaðsíða 5
DANÍLÓ DOLSÍ
OG MAFÍAN
Daníló Dolsí fæddist í Sesana,
í grennd við Trieste árið 1924 —
móðirin slóvensk, en faðirinn
ítalskur. Hann var settur til
mennta og varð húsameistari, en
þegar til kom, festi hann ekki
yndi við að teikna hús handa efn
uðum ítölum á neyðarárunum að
heimsstyrjöldinni lokinni. Um
nokkur ár var hann samstarfsmað
ur kaþólsks prests, sem hafði tekið
sér fyrir hendur að liðsinna um-
komulausum drengjum. Þetta líkn
arstarf fullnægði honum ekki held
ur, þegar til lengdar lét. Upp úr
þessu barst hann til Trappetó, lít-
ils fiskimannabæjar á Sikiley,
þar sem faðir hans hafði einn sinn
starfað um skeið. Þar hitti hann
bernskufélaga sína og kynntist
eymdarkjörum þeirra.
Þetta gerðist árið 1952. Glæpa-
mannaflokkar höfðust við í fjöll
um Sikileyjar, og mafían var ein
ráð meðal fólks, sem hvorki þorði
•að æmta né skræmta, hvað sem
því var boðið. Vélknúnir togarar
frá Palermó notuðu sprengiefni
við veiðar uppi við iandsteina,
þar sem lögum samkvæmt voru
friðlýst mið fiskimannanna í smá-
þorpunum. Fátækir 'Slhábátaeig-
endur í Trappetó komu að landi
með afla, sem rúmaðist í fótu.
Daníló skrifaði yfirvöldinum
og kvartaði. En þau héldu að sér
höndum og svöruðu honum ekki
einu sinni. Strandgæzluliðið lézt
ekkert vita. Þegar eitt kornbarn-
anna í þorpinu var að dauða kom
ið af hungri á þurrum brjóstum
móður sinnar, hóf Daníló fyrstu
föstu sína. Hún bar nokkurn árang
ur. Ekkert varð að sönnu gert
til þess að stöðve ránfiskið, en ein
hvers staðar frá komu peningar
í skolpleiðslu í þorpinu, og all-
margt manna fékk vinnu.
— Ég fastaði ekki af neinni
trú á meinlætalifnað, segir Daníló,
sem raunar er maður, er metur
mikils margvísleg lífsgæði — sólg
inn í góðan mat og gott vín, unn
andi tónlistar og bókmennta og
áfjáður náttúruskoðari. — En mér
var nóg boðið, þegar ég sá, að
barnið var að deyja úr hungri í
fangi hjálparvana móður. Og af
einhverjum dularfullum orsökum
vekur það meiri athygli, ef maður
með gleraugu og háskólapróf svelt
ir sig dálítinn tíma, heldur þó að
börn fátæklinga deyi sökum nær-
ingarskorts. Ég held, að ég hefði
ekki getað fundið betri aðferð til
þess að ýta við samvizku manna.
Þess vegna held ég áfram að svelta
mig annað veifið.
Indverskur blaðamaður, Kúsum
Nair, fór eitt sinn í fótspor hjálpar
sveita, sem starfað höfðu meðal
fátækra og frumstæðra manna í
ýmsum löndum. Hann komst að
raun um, að hjálparsveitirnar voru
yfirleitt of stuttan tíma á sama
stað. Nýjungarnar náðu ekki að
festa rætur, og þegar hjálparsveit
irnar voru á brott, sótti aftur í
sama farið.
Daníló hefur dvalizt á vestur-
Sikiley í hálfan annan áratug.
Hann kvæntist þar ekkju, sem
Þjáð af næringarskortl og illa til reika höfðust börnin við á þröngum og daunillum
götunum, þegar Daníló hóf starf sitt. Þetta er húsasund í Palma di Montecíaró.
Viðlíka er umhorfs í öðrum fjallabæjum á Sikiley. Rannsókn hefur leitt í Ijós, að
meira en helmingur barna þjáist af Innyflaormum.
TÍMINN - SUNNUDAGSBLAfi
269