Tíminn Sunnudagsblað - 02.04.1967, Síða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 02.04.1967, Síða 21
4rg er fyrst og fremst hversdags- feona. Það var þegar tekið að svífa á Jiana. Hún drakk hratt af ásetningi. Það þurfti mikið magn af víni til þess að sætta þá, apríl og feitlagna manninn. Þó varð henni að takast það. Það var óhjákvæmilegt. Hún horfði á kræklóttar sauma- konuliendur sínar, sem héldu á Igjlasi og sígarettu. Ógeðfelldar hendur og ógeðfelld, vatnshlá augu, svo grunn að örðugt yrði að drekkja sér í þeim. — Með nógu miklu víni kannski. Apríl gefur engin grið. — Hvað sögðuð þér? Eitthvað um apríl? Æ, hún hafði hugsað upphátt. Hann lét fylla glösin, aftur og aftur. — Það eru aðeins mjög fáar kon ur, sem ég hef gaman af að tala við. Þér eruð ein þeirra. Þér minnt- ust á apríl. Æskuliryggð er eins og mjólk á apríldegi, sagði skáldið. Hafið þér gaman af Ijóðum? —Stundum. — Ég sá það strax á yður. Ég er góður mannþekkjari, sagði mað- urinn ísmeygilega, og horfði á hrukkótt andlit hennar og krækl- óttar hendur, sem héldu um glas- ið. — Sjálfur elska ég Ijóð. Á ljóða- bækur í tugatali, allar í skraut- bandi. Konan mín — ég veit að þér skiljið mig — hún hefur ekk- ert gaman af Ijóðum. Vill bara Gamait og gott Gæfa póstsins Bóndi í Stafholtstungum var ráð inn póstur, og var ekki örgrannt um, að sumir grannar hans öfund- uðu hann af þvi. Fundu þeir sitt- hvað að þessari ráðstöfun, og var það eitt með öðru, að hann væri tæpast^ svo heilsuhraust- ur, að hann þyldi póstferð- irnar. Var einn þessara manna staddur á Svarfhóli og hafði mjög uppi slíkar orðræður. Björn bóndi Ásmundsson var fámáll maður og fálátur af jafn- aði, en gat verið meinlegur í svör um, þegar honum þótti það henta. Nú greip hann fram í fyrir gest inum og sagði: „En hann á svo góða nágranna". dönsku blöðin, fastur áskrifandi að þeim. — Og hvar er konan yðar þessa stundina? —Fór á Sögu að borða með saumaklúbbnum. Svo ég hugsaði, að það væri bezt að fara út að anda, anda eins og frjáls maður, alveg prívat — ég veit, að þér skiljið mig. Hún var komin á það stig, að hún skildi næstum allt. Því miður. Og þá. í apríl er betra að geta tek- ið hverju sem er — eða breytt því eftir vild í eigin hugarheimi. Um það fær enginn að vita. Rétt fyrir lokun stakk hann upp á að ná í leigubíl. Það kom ekki annað til mála að aka henni heim. Eftir svona yndislegt kvöld. Hún vissi, að annað kom ekki til mála. Þegar hann hefði kysst hana fyrsta kossinn í bílnum, sagði hann: — Við tvö hefðum átt að hitt- ast fyrir löngu. — Já, hvíslaði hún, og fann, að hún þurfti meira vín til að sætta sig við manninn og apríl á þessu kvöldi. Ákavítisflaskan meira en hálf, stóð á stofuborðinu eins og hún hefði beðið eftir þeim. Hún hellti í glösin og út fyrir þau, á borðið. Þau settust að drykkju. Maðurinn fór með kvæði fyrir hana, það er ekki á hverjum degi sem maður hittir konu, sem elskar ljóð, nýt- ur þess að hlusta á þau. Hann fór með gömul hefðbundin kva’ði, um vorið og æskuna. Honum var heitt, fór úr jakkan- um og hengdi hann á stólbak. Þá varð honum litið á litlu bókahill- una hennar. Las titlana og höf- undanöfnin: Tennesy Williams, Cora Sandel, Caldwell — fáeinir yngri íslenzkir höfundar. Honum voru öll þessi nöfn framandi, nema ljóðabók Jónasar Hallgrímssonar. — Ég átti von á því, að það væru einmitt svona bækur, sem þú læsir, ég sagði þér, að ég væri mannþekkjari. Henni varð svolítið flökurt með- an hann handfjatlaði þessar fáu bækur, sem hún átti. Langaði að halda þeim hreinum handa sér einni. Hún drakk úr hálfu glasi í ein- um teyg og sat þögul meðan vín- ið var að verka. Maðurinn drakk líka, en ekki í löngum teygum eins og hún. Svo stóð hún upp og fór fram í baðherbergið. Eiturgrænt. Nýjasta tízka. Hún háttaði og smeygði sér í náttkjól og þunnan slopp. Hún gekk aftur fram í stofuna, og mað- urinn skildi hana strax án orða. Hún tók á móti honum af fjálg- leik, tókst að gleyma þessum grunnu augum og margþvældu gullhömrum. Apríl og hún. Jörð- in, dýrin og hún sjálf. Ein logandi kvika, óslökkvandi þorsti. Sauma- kona með hrukkur í kringum aug- un og kræklóttar hendur. Hvers vegna er manni ekki hlíft? Hann fór tiltölulega snemma, og það var gott. Hann hefði handleik- ið bækurnar hennar, líkama hennar og þegið allt, sem hann óskaði. Hún líka. Henni datt ekki í hug að þræta fyrir það. — Ó, apríl, ég elska þig, heyrði hún sjálfa sig muldra ofan í kodd- ann, líka þegar þú hefur mig að fífli, traðkar á mér. Þegar ég hætti að skynja þig, verður dauði minn fullkominn. Það var líka góð saumakona Svolátandi þula er höfð eftir oónda einum, er fór í annað hérað í heimsókn til frænda og vina: „Ég kojn á einn bóndabæ. Það var komið kvöld. Mér var boðið í baðstofu. Fólkið sat á rúmum sínum. Suniir að vinna og sumir ekki að vinna. Þar var ein aðkomustúlka. Það var saumakona. Hún var að sauma. Jlún var svona á fertugsaldri. Ég horfði á hana. Hún var skolli lagleg. Ég horfði meira á hana. Hún var rækalli þrýstin um mjaðmirnar. Svo fór hún að tala við mig. Þá fór ég að tala við hana. Svo um kvöldið fyrir hátta- íma, fór ég út til að kasta af mér vatni, eins og vanalega Þegar ég kom aftur inn í göngin, kom stúlka i fangið á mér. Það vai saumakonan. Það var gott að kyssa hana- Það var bara ágætt að kyssa hana. Eftir það svaf hún hjá mér allar nætur. En það voru nú aðeins þr jár nætur. Já, aðeins þrjár nætur. Það var góð saumakona." T t M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ 285

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.