Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1968, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1968, Blaðsíða 12
BÓKASAFN HAFNARFJARDAk, GÖFGANDI TÓNUST OG FORNAR ÁSTARSÖGUR Rætt vlö önnu Guðmundsdóftur aðaibökavörð Mér var sagt, að bæjarbóka- safnið í Hafnarfirði væri i tölu þeirra almannastofnana ,í landm-u, sem hvað bezt væru reknar Gott ej-, e-f satt er, og mætti maður fá meira að heyra, hugsaði ég. Og einn daginn settist ég upp í stræt- isvagn með kóss á téðan stað. Á leiðinni minntist é| kátle-gra sagna um gamla bóka\ferði. Mig minnir helzt, að þeir væí'u í Kaup- mannahöfn, að minnsta kosti var það Hafnarstúdent, sem sagði mér sögurnar. Nú eru þeir s-jálfsagt komnir undir græna torf-u, hafi þeir nokkurn tíma verið til. En sem sagt — þeir voru swlítið drykkfelldir, kannski hefur láka uppihitunin í sölum safnsins verið slæm, og stundum áttu þeir Hösku á afviknum stað, geymda bak við þykkan doðrant í ein-hverri bóka- hillunni. Þegar annan fór að þyrsta, spurði hann hinn með há- tíð-legum sakleysissvip: „Er það Tolstoj?“ Hinn, sem hafði falið veigina, svara-ði enn al-varlegri: „Nei, það er Dostójefsky.“ Ein-hvern daginn var mér sa-gt, að þeir hefðu verið venju frem-ur illa fyrirkallaðir. Vísarnir á stóru klukkunni i lestrarsalnum drött- uðust æ hægar áfram. Um þrjú- leytið stóðst annar ekki mátið. Hann dró stól að veggnum, þar sem k-lukkan hékk, opnaði hana og færði á s-jö. Siðan bentj hann gestunum vinsamlega á þá stað- reynd, að tími v-æri kominn tit þe-ss að loka. Þeir urðu að sætta kig við það og hverfa brott. Ökumaðurinn í strætisvagninum var af a-llt öðru sauðahúsi en þess- ir heiðursmenn. Áður en varir er vagninn stanzaður við rétta götu í Hafnarfjarðarkaupstað. Nýlegt bóka-safnshúsið stendur uppi á brekkubrún, hátt yfir hö-fn- inni, sem kaupstaðurinn um-lykur. Framhliðin er máluð aðlaðandi, heiðbláum lit. Tii vinstri við úti- hurðina er op, sem yfir stendur skýru letri' „Hér má skila bókum,“ og er þeim væntanlega smeygt í hana á öllum tímum sólarhrings. Áður en ég geng inn, lít ég um öxl. Það er ka-ldur frostdag- ur. Sn-jóifölið tindrar á húsþökun- u-m í hliðinni fyrir neðan, og á 228 T I M I N N - SONNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.