Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1968, Síða 22

Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1968, Síða 22
an óvana niður seinni hluta ævinn- ar. Skyggn virtist Skúmur vera og ekki koma á óvart sumar gesta- komur. Mátti oft á honum sjá og heyra löngu fyrirfram, þegar hann átti vissra gesta von. Ennfremur virtist hann dreyma fyrir komu hunda, sem honum var í nöp við. Reisti hann kamb og urr- aði í svefni nokkru áður en þá bar að garði. Mjög gaman hafði Skúmur af því, áð fara með mér í ferðalög og fylgdist með því kátur og eft- irvæntingarfullur, þegar ég bjó mig til ferðar. Hinsvegar skipaði ég honum venjulega að vera heima, þegar ég ætlaði á mann- fundi því hundasafn er leiðinlegt á samkomum. Hlýddi hann mér ætíð, en hryggðist auðsæilega yfir því að mega ekki létta sér upp. Margvísleg og mikilsverð var sú þjónusta, sem Skúmur veitti heim- ili mínu um sína daga, en hann lifði i sextán ár. Seinustu árin var ellin farin að verða honum til ó- þæginda, því blómaár hundsævinn- ar eru svo fá. Þannig fór, —' eins og máske hafði bitið á Skúm í grun, — að hann féll fyrir skoti. En þess var fullkomlega gætt að það gerðist án þess að hann yrði nokkurs að- draganda var. Ég hafði átt samtímis Skúm — seinni ár hans — hund, sem kall- aður var Brúsi. Var sá hundur afar ólíkur Skúm að upplagi og ekki nándar nærrj eins'skynsamur. En af því að Brúsi var hvolpurinn með Skúm, laerði hann ýmislegt af honum og tók hann um margt í háttum og vinnubrögðum til fyrir- myndar, og gat þessvegna talizt góður fjárhundu.r Nú orðið eiga sumir sauðfjár- bændur engan hund og enga for- ustukind. Hvernig fara þeir að því að temja hjörð sína? Ég skil ekki að þeim geti tekizt það, svo vel sé. Þegar ég er að skrifa þessar lin- ur, berst mér fréttablað. sem segir frá því, að.bóndi einn, sem beitir fé sínu á vetrum, hafi dag einn í byrjun þessa mánaðar (febrúar 1968), farið með það í haga. Hafi hann þann sið að ganga á undan þvi, og láta það elta sig. Er það að vísu hjarðmannlegt og tamning á hjörðinni að vissu marki. Seinni hluta umrædds dags gerði stórhríð með mikilli fann- komu. Fór þá bóndi að leita kinda sinna, fann þær allar og lagði á stað með þær heimleiðis, „og gekk að venju á undan. Fylgdi féð hon- um fyrst, en svo slitnaði hópur- inn“. „Fór svo að hann varð að fara einn til bæjar“. Sumt féð fannst sama kvöld, þegar veðrið lægði, en nokkrar kindur hafði hrakið svo afleiðis, að þær komu ekki -til skila fyrr en daginn eftir, segir blaðið. Það er gaman að geta kallað til sín hjörðina og látið hana elta sig. En sú aðferð heldur ekki, þegar í hart er komið. Á þeim stundum þarf féð að hafa verið tamið til rekstrar, og til þeirrar tamningar dugar aðeins góður hundur. Við þá tamningu þarf engin ill með- ferð á fénu að eiga sér stað. Ef bóndinn, sem blaðið sagði frá, hefði haft hund t.d. eins og Skúm, til þess að reka á eftir fjárhópn- um, sem hann vildi láta elta sig, þá er ólíklegt að hópurinn hefði ekki náð húsum. Búnaðarfélag íslands ætti að gera ráðstafanir til að tekin verði upp ræktun fjárhundakyns. Góður fjárhúndur, valin forustu- kind og liðugur reiðhestur ættu að vera sjálfsagðir gripir á hverju fjárbúi' í sveit. Ef þetta skortir, vantar þar bæði öryggi og þá miklu og fjölbreyttu Inægju, sem þessi skemmtilegu dýr veita mannlegri sál í samstarfi. Sízt lætur þó ráðdeildarsamur sauðfjárbóndi hundinn vanta, hafi hann kynnzt því, hvað hægt er að láta vitran f járhund gera. Rætt við Önnu - Framhald af 231. siðu. drukku kampavín úr fangamerkt- um krystalsglösum, sem aðeins voru tekin fram þennan eina dag ársins. Það munaði heldur ekki nema hársbreidd, að þau færust á mis á sínum tíma. Afi var trúlofaður Ilalldóru nokkurri á Akranesi, en amma gömlum presti, ekkli með Lausn 9. krossgátu fjögur börn. Bæði brúðkaupin áttu að fara fram um jólin. Amma beið í festum hjá föður sínum, séra Magnúsi hómópata á Grenjaðar- stað, og þaíigað kom afi til að hjálpa hómópatanum í nokkra mánuði, þangað til hann kvæntist sjálfur og tæki við læknisembætti í Húnavatnssýslu. Viku fyrir jól kveður hann alla á bænum og ríð- ur vestur. En í Húnavatnssýslu bíður hans uppsagnarbréf, undirritað: „Þín ekki lengur Halldóra.“ Afi hefur ekki fyrr lesið bréfið en hann læt- ur söðla fráustu hestana, sem kost- ur var á, og flengríður síðan dag- fari og náttfari austur yfir allar ár og léttir ekki fyrr en hann kem- ur í hlaðið á Grenjaðarstað á að- fangadag jóla. Þar er slegið upp fjölskylduráðstefnu, sem endar með því, að maður er sendur á móti prestinum út á Húsavík til að snúa honum aftur heim. Því eins og amma sagði, um leið og hún lagði hendurnar um háls föður sinum til að telja hon- um hughvarf: „Þú verður að skilja það, pabbi minn, að ég get ekki gifzt ekklinum, þegar ég á kost á Júlíusi!“ Brúðkaupið var síðan tafarlaust haldið, enda allt til reiðu, aðeins skipt um brúðguma, og síðan drukku afi og amma ævinlega kampavín á þriðja í jólum, eins og áður er iýst. „Eins og þú sérð“, segir Anna um leið og við kveðjumst, „hefur ástarguðinn ekki svikizt um að brugga konum ættarinnar seið, jafnt sætan sem beiskan“. Inga. z B z z [Z [Z (Z [Z z z V I K u K fíj u p I V y ] D i E N n Z 0 N N 3 K 1 P / E R N a 7 fi fí z (1 N z £ T z fí R FÍZ ciGiíaiaaoBiianmBiía R N E 3 / 5 fl u M z G R á fí / R R Ll L Z M fí L L I s E I K z L I T I Ð z fl K z P T F fl z N r N u z R Ifl Z R V ó G i z R s Œ K L Æ K N U V U J V 0 z z D 7 fl Z z s V I a fl / s z Z )L I N s n H L E G1 z F z V i K i z £ T T Z I I Z s T L ] r fl N D I Z fí L z r L 6 R z K K. L Tl / [R z Fj K i F fl L L I A u K fl ET 1 R f E H z S R / L fi z s P L K S I R z fll K z / n z o s z 6 Kl z S i L I N i N E K s U 0 D L V K L N N 238 TllttiMN - SUNNXhDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.