Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1968, Síða 1
'ÆT
VII. ÁR. — 28. TBL, SUNNUDAGilR 1. SEPT.
SUNNUDAOSBLAÐ
Stuttnefjan er svo hánorrænn fugl, a5
þa3 virðist vera með nokkrum semingi
að hún sættir sig við búskap hér
sunnan lands. Það er helzt í björg-
um Helliseyjar, að henni þykir hokr-
andi. Miklu betur falla henni hin
miklu björg á Hornströndum, Hæia-
víkurbjarg og Hornbjarg, og hún
kann líka dável víð sig í Látrabjargi,
Drangey og Grímsey. Mestu höfuðból
hennar eru samt kannski í Nóvaja
Semlja, Svalbarða, Bjarnarey og
Norður-Grænlandi og víðar þar hent-
ug björg eru við Ishafið.
Hitt setur hún ekki fyrir sig, þótt
þræðingarnir í björgum séu tæpir, og
á hreiðurgerð leggur hún litla stund.
Henni nægir, ef hún getur stöðvað
egg sitt við einhvei ja örðu í bjarqinu.
Ljósmynd: Jón Grétar Sigurðsson.