Tíminn Sunnudagsblað - 05.07.1970, Side 5

Tíminn Sunnudagsblað - 05.07.1970, Side 5
Jóns, og á honum miklð að hakka. Það var hann, sem fyrst og fremst eggjaði mig á að stinga niður panna og að fara með huglelðlng ar mínar í útvarp. — Já, vel á minnzt, Ólafurt Veiztu, hvað j>ú hefur flutt marga fyrirlestra í útvarp? —• Ekki nákvæmlega, en mér telst svo til, að þeir séu einhvers staðar á milli þrjátíu og fjðrutíu. — Að Jóni Sigurðssyni látnum tók við skrifstofustjórninni Friðjón Sig urðsson lögfræðingur, sem búinn var að vera fulltrúi Jóns um langt árabil. Friðjón er mjög öruggnr og nákvæmur maður í öllum sín um verkum, og með okkur tókst hin bezta sanvinna. Þegar ljósrit- unarvélarnar komu til sögunnar, var ég settur þangað, og við þau verk var ég eingöngu, allt þar til ég hætti í alþingi, áttatiu og tveggja ára gamall. — Það er hár starfsaldur. Var þig ekkert farið að Ianga til að hætta? — Nei. Ekki nú aldeilis! Líklega væri ég þar enn, ef löppin á mér hefði ekki tekið upp á því að bila. Ég kemst varla um þvert hús, eins og þú sérð. — Og hvernig endurminningar átt þú svo frá aldarfjórðungslangri veru þinni í alþingi, þeim ófrið sæla stað — að því að talið er? — Þær eru nú bara allar sam- an góðar — hvorki meira né minna. Ég lærði ákaflega margt á því að vera þarna. Þar eru alveg óþrjótandi tækifæri til þess að kynnast mönnum, og margir þing menn urðu miklir vinir mínir, og allir góðkunningjar, jafnvel þeir, sem óþjálastir þykja og erfiðastlr f samvinnu. — Þú sagðir snemma í spjalll okkar, Ólafur, að þú gætir skipt ævistarfi þínu í þrjá nokkuð jafna hluta: Landbúnað, verzlunar- og skrifstofustörf og svo þingvörzl una. Ég var hálfóánægður með þessa skilgreiningu þína, þvi ég veit — og öll þjóðin veit það — að þú ert rithöfundur. Á þann þátt starfsemi þinnar höfum við ekki enn minnzt. Hvenær kom þín fyrsta bók út? — Fyrsta bók mín heitir Harð sporar og kom út árið 1951. — Um hvað fjallar hún? — Þetta eru ýmsir þættir frá gömlum tíma, einkum frá Hafnar- firði og nágrenni hans. En bókin er í tveim hlutum, og síðari hlut inn heitir „Só ég eftir sauðunum,‘. — Þar mun fjárbðndinn í þér vera á ferðinni? — 0 — ekki ber ég á móti því. Þetta er um útigöngujarðir og 'gömlu fjármennina, sem stóðu yf ir fé sínu allan daginn, alla daga, þegar fært var út úr húsi. — Sú stétt á það nú fullkom- lega skilið, að hennar sé minnzt. — Já. Það finnst mér. — Hver var svo þín næsta bók? — Næsta bók mín er Hreindýr á fslandi, og kom út árið 1960. Þar er sögð saga hreindýra á ís landi, allt frá því þau voru fyrst flutt til landsins árið 1771, og til ársins 1960, þegar bókin kom út. — Það hefur verið mikið verk, að tína saman allar þessar heim- ildir? — Já. Það var geysimikið verk. — Hvað kom þér til þess að ráðast í þetta verk? — Til þess lágu nú ýmsar ástæð ur. Þegar ég var að alast upp í nágrenni Hafnarfjarðar, voru enn eftir nokkur hreindýr á Reykja nesskaganum. Ég sá þau í æsku minni, og það meira að segja oft- ar en einu sinni. Faðir minn var hreindýraskytta á sinni tið, en aldrei man ég þó eftir því að hafa séð hreindýr, sem hann hafði fellt, þvi ég var svo ungur, þegar pabbi dó. En svo ég haldi áfram að svara spurningu þinni, þá var það Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri, sem manna mest eggjaði mig á að skrifa sögu hreindýranna. — Ég man ekki betur, e» þá haldir þvl fram í þessari bók, s® hreindýrin hafi horfið af Reykja- nesskaganum fyrir ofveiði og rán- skap manna. Ertu enn þeirrar skoð umar? — Já. Ég fullyrði hiklaust, að svo hafi verið. — Ef til vill er það af einskærri flónsku og ókunnugleika, en ég hef aldrei getað séð neinn gróður, að heitið geti á Reykjanesskagan um ykkar. — Já. Það er eintómur misskiin íngur. Þar er mörg matarholan, og einmitt ágætt hreindýraland. Það eru alls engar líkur til þess, að til- viljun ein eða handahóf hafi ráð ið því, að öðrum hreindýrahópum, sem hingað kom árið 1777, var seppt á Reykjanesskagann. Þar hafa áreiðanlega komið til ábend ingar kunnugra manna. Athuganir síðari tíma fræðiinanna staðfesta líka þessa skoðun. Árið 1932 skrif- aði Guðmundur Bárðarson grein í Náttúrufræðinginn, sem hann nefndi „Hreindýr á Reykjanes skaga“. Þar kemst hann meðal annars svo að orði: „Austurfjöllin á Reykjanesskaga virðast ágætlega fallin fyrir hreindýr. Á Lönguhlíð- arfjöllum, Heiðinni há og hálend- inu þar í grennd er gnægð af fléttugróðri (skófir, hreindýramosi og fleira) og allmikið af öðrum kjarnagróðri, sem góður ætti að vera til beitar handa hreindýrum". Og hafi Reykjanesskaginn venð góður hreindýrum, þegar þau T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 533

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.