Tíminn Sunnudagsblað - 23.05.1971, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 23.05.1971, Blaðsíða 12
VS her að dyrum ir, er einmitt alinn upp á bökkum Fnjóskár. En ef einhver gerir sér vonir um, að hér verði fjallað ui heyskap og skepnuhöld í Fnjóska- dal, þá fer sá villur vegar. Það eru aðrir hlutir — og satt að segja margfalt óskemmtilegri — sem hér verða einkum til umræðu. Við Guðsteinn ætlum sem sagt að láta alla sveitarómantík lönd og leið, þótt sú sveit, sem fóstraði hann, eigi upp á að bjóða flesta, ef ekki alla, kosti norðlenzkra dala. — Fæddist þú ekki í Fnjóska- dal, Guðsteinn? verður mér fyrst fyrir að spyrja. — Nei, reyndar ekki. Ég fædd- ist á Akureyri, árið 1924, og þar átti ég heima fyrsta æviár mitt. Hér vil ég skjóta því að, áður en lengra er haldið, að foreldrar mín- er að segja árin frá 1932—1937. Þá fluttust þau að Hálsi í sömu sveit og bjuggu þar eitt ár, en síð- an fóru þau að Illugastöðum og bjuggu þar til 1949. Þá fluttust þau til Akureyrar og áttu þar heima eftir það. — Þú hefur þannig haldið tryggð við Fnjóskadalinn allan þinn uppvöxt? — Já, það má vel orða það svo. Ég fylgdi að sjálfsögðu móður minni og stjúpa öll þessi ár, utan hvað ég stundaði nám í mennta- skólanum á Akureyri, þegar ég hafði aldur til, og var auðvitað á Akureyri þann tíma. Ég tók stúd- entspróf vorið 1947, og var því í hópi síðustu nemendanna, sem Sigurður Guðmundsson kenndi og kvaddi. NMMNNSI „Það lœtur nærri, að áfengis- bðl í einhverri mynd sé í ðSru hverju húsi í Reykjavík" S| mmm Ekki hefur neitt vatnsfall, sem ég þekki, komið mér meir á óvart við fyrstu sýn en Fnjóská. Ég hafði í barnæsku minni hugsað mér hana sem forað, beljandi og illilegt, en þegar ég í fyrsta sinn varð svo frægur að aka gömlu brúna og horfa niður í vatnið, sá ég ekki betur en þar færi silfur- tær bergvatnsá, hæglát og vin- gjarnleg og alls ólíkleg til þess að granda nokkru, sem nálægt henni kæmi. Mér er þetta ríkt í huga núna vegna þess, að viðmqslandi okkar í dag, Guðsteinn Þengilsson lækn- ir voru ekki gift og bjuggu aldrei saman. Þegar ég var eins árs, flutt- ist móðir mín með mig að Þórðar- stöðum í Fnjóskadal, þar sem for- eldrar hennar bjuggu. Afi minn og amma í móðurætt voru Stefán Jónatansson og Friðrika Hannes- dóttir. Var hún frá Austari-Krók- um í Fnjóskadal. Á Þórðarstöðum átti ég svo heima til átta ára aldurs. Þá gift- ist móðir mín Hallgrími Sigfússyni í Grjótárgerði í Fnjóskadal. Er hann enn á lífi, en hún dó nú fyrir nokkrum árum. í Grjótár- gerði bjuggu þau í fimm ár, það Það varð því snemma ljóst, að ekki yrði mikið á mig að byggja til búskapar, og lá reyndar það orð á frá upphafi, að ég þekkti ekki kind frá hundi. Eftir því sem árin liðu, varð ljósara, að ég myndi ekki ílengjast heima i minni sveit. Strax að stúdentsprófi loknu inn- ritaðist ég í háskólann og hóf nám í norrænu. Ekki varð það þó til frambúðar. Ég hætti þar eftir tveggja vetra puð og innritaðist í læknadeild. — Hvernig stóð á því, aö þú hættir við norrænuna? — Því réði fleira en eitt. Mér 444 T I M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.