Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1972, Side 10
2. leikur
Blásið á boltann
Siðan er gefið merki um að nú
megi keppendurnir láta til skar-
ar skríða. Og þrautin er i þvi
fólgin að finna blöðru og hlassa
sér ofan á hana og sprengja
hana með þeim hætti en ekki
öðrum. Þetta verður sem sagt
að gera með sitjandanum. Sá,
sem fyrri verður að ljúka þessu
verki hefur unnið leikinn og á
hæfileg verðlaun skilið.
Þessi leikur er i þvi
fólginn, að tómum gos-
drykkjaflöskum er raðað
á borð eins og skýringar-
myndirnar hér til hliðar
og efst á næstu siðu sýna.
Síðan er borðtennisbolti
lagður þar sem X-merkið
er á skýringarmyndinni
til hliðar. Nú er það
„kúnstin” að blása
boltanum (sjá myndina
efst á næstu siðu) milii
flasknanna þá leið sem
þunktalinurnar sýna.
Falliboltinná gólfið, er sá
sem blés úr leik og fcr
aftast i röð þátttakenda,
ef margir taka þátt i
leiknum. Boltinn má
koma við flösku.
Sprengið
blöðruna
Vel hæfir að hafa nokkra
kátinu i frammi á gamlárs-
kvöld, og getur áramótaskaupið
ekki siður verið heimafengið en
i sjónvarpinu. Hér eru nokkrar
tillögur að leikjum, sem vakið
geta hlátur og skelli, og hefur
Gauti Hannesson tekið þetta
saman fyrir Sunnudagsblaðið.
Við byrjum á leik, sem heitir:
Sprengið blöðruna.
Bundið er fyrir augu tveggja
þátttakenda svo fast, að þeir
sjái ekki glóru, og skal vel um
búið. — Áður hafa tvær upp-
blásnar blöðrur verið lagað á
gólfið skammt frá þeim. Þegar
bundið hefur verið fyrir augu
keppenda, eru blöðrurnar færð-
ar litið eitt til á gólfinu, svo að
seinlegra sé fyrir þá að finna
-</
970
Sunnudagsblað Timans