Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1972, Page 22
Milli jóla og nýárs hæfir
sæmilega aö minnast á veizlur.
Þær eru inargar haldnar um
hátiðarnar, og vel gert við menn
i mat og drykk, þótt ýmsir hefðu
við orð, að minna yrði um hina
sterku drykki á þessum jólum
vegna veruiegrar hækkunar á
þeim nokkrum dögum fyrir jól.
Eitthvað mun sii hækkun hafa
dregið úr áfengiskaupum, og er
varla um að sakast. Lögreglan
hefur skýrt frá óvenjulega frið-
sælum jólum og litilli her-
bergjanýtingu á hóteii sinu.
Einnig góðar fréttir.
En annars langaöi mig að
minnast örlitið á hinar opinberu
veizlur stórhöfðingjanna, svo
sem fyrirmanna höfuðborgar,
rikisstofnana, ríkisstjórnar og
forseta. Þeir halda ekki aðeins
vcizlu um jól, heldur við mörg
önnur merkileg tækifæri alian
ársins hring fyrir innlenda og
erlcnda gesti. Og á hinu nýja ári
riður forsetinn á vaðið og býður
heim i ráðherrabústaðinn á
fyrsta degi ársins. Af slikum
veizlum mættu einnig berast
nýjar og góðar fréttir.
Margar samþykktir hafa ver-
ið um það gerðar á mannþing-
um fyrr og siðar, að opinberum
aðilum bæri að hætta vin-
veitingum i veizlum. Nú siðast i
haust samþykkti sjálft Alþýðu-
samband íslands á fjölmennu
þingi sinu einróma að skora á
rikisstjórn og æðstu embættis-
menn aðra að afnema vin-
veitingar i gylliboðum sinum.
Það voru nokkur tiðindi — og
góð.
Gegn afnámi vinveitinga i
opinberum veizlum hafa menn
nefnt ýmis rök, svo sem þau, að
við yrðum að fylgja erlendri
venju, að minnsta kosti þar sem
um erlenda gesti væri að ræða.
Þetta væri orðin föst venja, og
illa hæfði að láta gesti annað
hvort standa tómhenta i orða-
stórhriðinni og geta ekki skálað,
eða þá ineð ropvatn eitt eða
kaffibolla. Mundi slikt illa hæfa
i ráðherraveizlu, hvað þá for-
setaboði. Mönnum mundi
bregða óþyrmilega, ef tárið
væri allt i cinu með öllu af þeim
tekið, og ef til vill yrði gesta-
nauðin minni, þegar slikt
vitnaðist.
Aldraður heiðursmaður, sem
vildi lita á málið frá fleiri en
einni lilið og er enginn ofstækis-
maður i áfengismálum, hafði á
oröi við mig tillögu, sem mér
mm
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þór-:
arinn Þórarinsson (ábm.). Jón Helgason, Tómas Karlsson;
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timans).|
Auglýsingastjóri: Steingrimur. Glslasoni. Ritstjórnarskrif-
stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306.1
Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýs :
: ingasimi 19523. Aörar skrifstofur:simi 18300. Askriftargjald
: 225 krónur á mánuði innan lands, i lausasölu 15 krónur ein-
lakið. Blaðaprent h.f.
fannst allrar athygli verð og ég
tel rétt að koma á framfæri.
Hann sagði: Rikisstjórnin og
aðrir opinberir fyrirmenn, sem
efna til boðs i nafni embættis
sins, ættu að taka upp eins glass
regluna. i opinberum veizlum
ætti aðeins að bera gestum eitt
glas, til að mynda vænt kampa-
vinsglas, sem þeir geta haft i
hendi, ineðan stundin varir,
skálað við aðra gesti og dreypt
á. Hins vegar ætti ekki að bera
mönnum ný glös eða bæta I.
Þetta er eins konar inillistig.
Mcð þvi héldu menn venjunni að
liafa glas i hendi, og þeir sem
orðnir eru venjunni samgrónir,
týndu ekki sjálfum sér — hvorki
vegna venjubrey tingar né
ölvunar — . Enginn drykki sér
til skaða, og allir héldu hof-
mannsbrag sínum, er brott væri
gengið.
Ég hygg, að þessi tillaga sé
þess verð, að henni sé gaumur
gefinn. Þungi almenningsálits,
sem telur hóflitlar vinveitingar i
opinberum veizlum sizt við
hæfi, fer nú vaxandi. En um
þetta eru auðvitað harla skiptar
skoðanir. Ramukvein yrði vafa-
laust rekið upp, ef brjóstbirt-
unni væri með öllu brottu kippt i
vetfangi. Þvi getur millileið,
sem ekki útskúfar með öllu gró-
inni umgengnisvenju en nær svo
að segja sama marki og algert
afnám, verið skynsamleg, að
minnsta kosti sem tilraun.
Opinberir aðilar ættu að taka
upp eins glass regluna.
—A.K.
Lausn á
40. krossgátu
fí FU
T'fl L
H A
A R
F
N 'fl
F) L
L fl
'/ G
T I
/ H
L U n
L £
^3 f
R & A S fl
! T 'A R
T fl L fl
F L fl AJ
fl-r a a
F I? U LA
5 flflfl K
fl R us
L J URT
'fl H fl
A T K fl
c. fl p R
/ £> / £ ú
Þ / L L
L Jb
J'02>
‘fl L fl
U fí
N F
UUfí
Iflfí
a £
a
fl /
U M
K fl K
R ’fl
r i
fí A
Lfl R
F r
£ u
R fí N
fí ML>
TUÍ?
Un 1
5 £
K'o L
fí 7? s
. ’oK
fí T H
t ru
fí c
t> A> I
/ 1
T ’fl
ft L
R 'o n
s S fl
ft N
fí N N
N N fí
Þ fí
fí t> /
982
Sunnudagsblað Tímans