Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1973, Side 2

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1973, Side 2
r N Bezt er að tengja saman árin með þvi, að vikja að visum, sem mjög voru til umræðu hér i þættinum á gamla árinu Þætt- inum hefur borizt bréf frá Erlendi Konráðssyni, lækni á Akureyri, syni Konráðs Erlendssonar kennara á Laugum. Bréfið er skrifað 26. nóv. og segir þar m.a. ,,Ég var að lesa i visnaþætti Sunnudagsblaðs Timans boila- leggingar um visu föður mins „Ræningjanna brutu bein”. .o.s.frv. Ekkert þori ég að segja um, hvernig hún hafi verið i upphafi, en hún mun snemma hafa breytzt i meðförum. Faðir minn skrifaði aldrei niður tæki- færisvisursinarog hélt þeim.litt á loft sjálfur. Vel má vera, að Þórir Baldvinsson hafi rétt fyrir sér með þessa visu, en ekki er hann betur að sér um kveðskap sinna gömlu sveitunga, en svo að honum fipast um faðerni „Fúsa-visnanna”. Frá til- drögum þeirra er rétt greint i þættinum, en það var Kári Arn- grimsson, móðurbróðir minn, sem orti visuna: „Fúsi listir lék á mar”, og mun hún rétt tilfærð. Þegar hún komst á flot, hafði einhver orð á þvi, að Fúsi hefði reyndar gert betur en Kristur, þvi að Fúsi hefði haft b y r ð i að bera. Þá var það að faðir minn orti hina visuna, og lærði ég hana þannig: Fúsi sina frægð ei missti, fleytti hann sér á vatninu. Labbaði á eftir lausum Kristi með liðuga vætt á bakinu..” Þátturinn þakkar Erlendi bréfið og kemur leiðréttingunni á framfæri. Um höfund þessarar siðastnefndu visu var ekki fullyrt hér i þættinum, en sú ranga tilgáta, sem þar kom fram, var ekki frá Þóri, þó að hann hafi misminnt um höfund fyrri Fúsa-visunnar. Aldinn og merkur Húsvikingur, Óli Vil- hjálmsson, hefur og bent þætt- inum á, að sú tilgáta væri ekki rétt, og höfundurinn sé Konráð. Látum við svo útrætt um þetta "að sinni. Hér er ein nýársvisa eftir Indriða Þórkelsson á Fjalli, ort á nýársdaginn 1927: Duftkorn yndis. Dropi társ. Dagstund fyrst hins nýja árs. Vmsum glóbjört, öðrum dimm. Ein af 365. Asgrimur Kristinsson á As- brekku skaut þessari visu að giftri konu á mannamóti fjarri heimili sinu: Þú skalt láta ástaryl úr augum þinum streyma, ef það gerir ekki til eldinum þinum heima. Þessi visa er eftir Jónas Tryggvason frá Finnstungu: Þó mér vinnist seint að sjá salarkynnin listar há, fæ ég inni enn þá hjá æsku minnar söngvaþrá. Óskar Magnússon frá Tungu- nesi kveður þessar vetrarnótta- visur: Vetrarvindurinn gnauðar, vá er i þungum niði. Stormhviður steypast yfir stynjandi máttarviði. \ Dregur að dægramótum, dettur af húsi bylur. Yfir er andvaka máni undir er stjörnuhylur. Þessi sléttubandavisa um miðsvetrarnótt og jólamjöll er eftir Þormóð Pálsson: Dvelur njóla, fellur fjúk, fölskvar sólarvanga. Felur jólamjöllin mjúk móa, hóla, dranga. Og svo eru hér að lokum tvær áramótavisur eftir Einar Þórðarson, hin fyrri kveðin á nýarsdag 1945: Ósk fram knýja eina má óðs við hlýja leiki: Amaskýjum öllum frá árið nýja feyki. Og hin um einhver önnur ára- mót: Um eyðisanda og úfiö grjót ævi blandast kjörin. Eftir vanda um áramót opin standa förin. Gnúpur. 10 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.