Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1973, Page 4

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1973, Page 4
fljótari. Var hugur hennar svo sterkur, að hann gat hringt bjöllu við dyr son- arins, sem hún ætlaði til. Þvi verður ekki mótmælt af þeim, er hér ritar þessa frásögn eftir syninum, sem látna konan ætlaði til. (Reykvisk saga.) Skrifað í vindinn Vængjalaús fer vindurinn yfir við- áttu hafs og lands og á sér hvergi samastað. Fáum er hann nú aufúsu- gestur. Þvi var áður á annan veg farið, þegar hann fyllti segl farmanna og sneri vængjum vindmyllna. Vélaöldin þarf hans ekki við. þvi er afl hans óbeizlað og hann fer án vonar og vin- hlýju leiðir sínar. En vindurinn ber með sér þau kvæði sem enginn hefur skrifað og enginn hefur séð, en gleymd skáld hafa mælt af munni fram og ef ti! vill ekki átt sér ritföng eða pappir til að festa þau á blöð. Þess vegna hafa þau farið með vindinum yfir höf og lönd, unz þau háfa týnzt að fullu, en önnur komið i\ þeirra stað. Þvi að alltaf eru til menn, sem eiga sér kvæðisvon, þó svo, að þau séu aðeins til fyrir vindinn og engan annan. Hver veit nema þau séu bezt allra kvæða. Brol Auðn Dauft er nú i dalnum drúpa álfár þöglir, þar sem áður ljósin lifðu i hverjum glugga lokuð hús. Hrimi þaktar þekjur þögul gömul býli. Þar sem afar, ömmur, ástar fyrrum nutu, þar sem feður fundu fögnuð yfir smáu þar sem laufabrauðið, ljúft i munni lyfti jólagleði. Þar löngum litlu barni ljúfar jólasögur móðir fram af munni, mælti á vetrarkvöldi. Fegurð enn þá fyllir fönnum þaktan dalinn, mánans mildir geislar merla álfaborgir. Guðmundur Þórðarson frá Jónseyri IL W. Emersson: Dægur dætur timans hræsnisfullu dagar dasaðar og þöglir eins og behfætt förufólk rásandi ein i endalausri röð færið djásnin og dýrgripina i fang þeirra öllum bjóða þau tækifæri eftir óskum brauð tign tungl og stjörnur allt tilheyrir þeim málflutningur minn varð orðskrúð ég gleymdi staðreyndunum fljótlega og skildi litið I orsökum afleiðinganna en dægrin horfðu unj öxl — ég sá of seirít að undir fágaðri alvöru þeirra bjó fyrirlitning Jónas E Svafár gerði mynd og sneri úr ensku. i ----------------------rZ-L._ ...J 12 Sunnudagsblað Timans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.