Morgunblaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 2
2 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 14|5|2004 MORGUNBLAÐIÐ
The Spectator: Blað sem bregður alltaf upp nýju sjónarhorni á tilveruna.
Meira að segja í poppdálkinum, sem Marcus Berkmann segist hafa skrifað
í 273 ár – í endalausri leit að hinni fullkomnu plötu, sem maður veit að
kemst á toppinn við fyrstu hlustun og við aðra hlustun að maður á enn eftir
að elska tónlistina eftir tuttugu ár. Sú leit er alltaf í gangi í …Eurovision:
Gaman að sjá norrænu spekingana spá Jónsa velgengni í Eurovision. Verð
að segja að ég hreifst af tyrkneska laginu, þó að skiptar skoðanir væru
meðal spekinganna um það. Við Eiríkur
Hauksson vorum á sama máli. Það sker sig
úr og nær vonandi langt. Sænska söng-
konan Lena Philipsson er líka ansi tápmikil
og skemmtileg, enda spá flestir norrænu
spekinganna henni sigri. Einn spáði Eng-
lendingum sigri með heldur bragðdaufa
popprullu …Eurovision: Verð í einu af
mörgum Eurovision-partíum borgarinnar, þar
sem öllum gestum er úthlutað lagi úr keppn-
inni. Samkvæmið er vel skipulagt, enda
skipulagt af manni sem er skrifstofustjóri í frístundum …Euro-
vision: Mér var úthlutað Albaníu. Fyrst varð ég lítt hrifinn, en
gerði mér síðan grein fyrir því hversu stór stund þetta er fyrir
albönsku þjóðina. Þetta er í fyrsta skipti sem hún tekur þátt,
þrátt fyrir að hafa horft á keppnina í tíu ár. „The Image of You“
er þeirra Gleðibanki og ef til vill syngur söngkonan sigurlagið:
„I’m queen of the world, of make-believe“. | pebl@mbl.is
Áfram Albanía
FRÁ FYRSTU HENDI
FÓLKIÐ Umsjón Pétur Blöndal pebl@mbl.is |Blaðamenn Ívar Páll Jónsson ivarpall@mbl.is | Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is | Bryndís Sveinsdóttir bryndis@mbl.is |Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is | Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Sigurvegarinn í myndatextakeppni Fólksins þessa vikuna er Ingibjörg Marteinsdóttir með
tillöguna: „Nú hlýt ég að meika það.“ Einnig eru verðlaunaðar uppástungur Guðmundar
Karls Sigurdórssonar: „Helvíti var hann fljótur að smella, ég var ekki tilbúinn“ og Fanneyjar
Stefánsdóttur: „Hvað ætli ég þurfi að selja margar plötur til að kaupa svona bíl?“ Vinnings-
hafarnir þrír fá eintök af Besta úr 70 mínútum 2. Vinninganna má vitja í afgreiðslu Morg-
unblaðsins. Næstu mynd er að finna á Fólkinu á Mbl.is.
Við vissum ekki fyrir viku…
… að ástralski tennisleikarinn
Lleyton Hewitt yrði svona
einbeittur í viðureign við
Svíann Jonas Björkman.
Hewitt bar sigurorð af þeim
sænska, 6–0 og 7–6.
… að Peter gamli O’Toole væri
hress sem aldrei fyrr, en
það kom í ljós þegar hann
hitti Brad Pitt og Eric Bana
á forsýningu myndarinnar
Troy í New York.
… að japanska farsímafyr-
irtækið NTT DoCoMo myndi
sýna þennan framtíð-
arsíma, sem byggist á
þriðju-kynslóðar-tækni og
getur tekið við sjónvarps-
myndum.
… að indverska „Bollywood“-
leikkonan Shilpa Shetty
myndi sýna svona góð tilþrif
við tökur á nýjustu mynd
sinni, Khamosh, eða Þögn.
… að Barry og Robin Gibb,
sem eru einir bræðranna
eftir í hljómsveitinni Bee
Gees, myndu taka við heið-
ursdoktorsnafnbót í Man-
chester-háskóla. Bróðir
þeirra, Maurice, lést úr
hjartaáfalli í janúar 2003,
en þeir veittu sömu nafnbót
móttöku fyrir hans hönd við
þetta tækifæri.
… að portúgalska fótbolta-
stjarnan Luis Figo, sem
leikur með Real Madrid,
myndi mæta ásamt konu
sinni til afhendingar Laur-
eus-íþróttaverðlaunanna í
Lissabon. Og þaðan af síður
að þau hjón myndu taka sig
svona skrambi vel út við
það tækifæri.
Fyrsti hluti | eftir Ólaf Ofnfjörð
Hann hélt kúlunum á lofti eins og færasti fjöllistamaður, fjórum í einu.
Allt í einu rakst einhver harkalega utan í hann, þannig að hann datt
fram fyrir sig og skall með höfuðið í marmaralagt gólfið í Kringlunni.
Boltarnir skoppuðu í allar áttir, fjórar nánar tiltekið, og hann rak upp
örvæntingarfullt öskur, eins og maður sem hefði nýtýnt glórunni og
væri dæmdur til að lifa að eilífu í Ópinu eftir Munch. Þegar hann hafði
aðeins náð áttum leit hann við, ennþá liggjandi á gólfinu, og sá þá að
sökudólgurinn var sá sem hann hefði síst grunað að myndi fremja
svona verknað. Já, þetta var Felix Bergsson.
Annar hluti | eftir Úlfalda Finnbogason
Þar sem hann lá þarna á gólfinu, ennþá svolítið vankaður og utan við
sig, sá hann að Felix Bergsson var æfur af bræði. „Hvað er í gangi?“
hugsaði hann. „Er maðurinn genginn af göflunum?“ Andlitið á Felixi
Bergssyni var eldrautt af æsingi og æðarnar við gagnaugun útblásnar,
eins og á kúluvarpara með fimm í útvíkkun. Felix hljóp að honum og lét
höggin dynja á fórnarlambi sínu, að því er virtist í heila eilífð, þangað til
kona á fimmtugsaldri skarst í leikinn, henti sér á Felix og sneri hann
svo leikandi létt niður. Hún hafði kverkatak á Felixi Bergssyni, sem
gat sig hvergi hrært. „Þetta er allt í lagi,“ æpti hún, „hringið á lögregluna, ég er Íslands-
meistari í öllum sjálfsvarnaríþróttum nema glímu.“
Þriðji og síðasti hluti | eftir Langsokk Ómarsson
En Felix var ekki af baki dottinn. Hann öskraði af öllum lífs og sálar
kröftum og beit konuna af öllu afli í vinstri handlegginn. Þá öskraði
hún líka og saman hljómuðu þau eins og kór frá helvíti. Hún missti tak-
ið á Felixi Bergssyni, sem óð í fórnarlamb sitt aftur. Fórnarlambið, sem
hét Hjálmar, fann hvernig rifbeinin, nefið og hægri handleggurinn
brotnuðu eins og súkkulaðikex í kaffiboði. En allt í einu hættu bar-
smíðarnar, jafnsnöggt og þær hófust. Tveir karlmenn komu og rifu
Hjálmar á fætur. Hann var á mörkum meðvitundar, farinn að sjá ljósið
við enda ganganna, en heyrði rödd Felix Bergssonar í fjarska: „Falin myndavél!“ og hrossa-
hlátur allra viðstaddra. Þvílíkur léttir, hugsaði Hjálmar með sér á meðan ljósið nálgaðist.
Keðj
usag
an VITLEYSINGAR
Árið 1990 var matvöruverslunin Mikligarð-
ur, ásamt rafbúð Sambandsins, við Holta-
veg. Þar eru núna verslanir ÁTVR, IKEA,
Rúmfatalagersins og Bónuss, eins og flest-
ir vita. Mikligarður var hluti af veldi Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga, sem lið-
aðist í sundur 2–3 árum eftir að þessi
mynd var tekin.
Úr safn inu | 1990
Mikligarður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„NÚ HLÝT ÉG AÐ
MEIKA ÞAÐ.“