Morgunblaðið - 14.05.2004, Qupperneq 10
Nafn: Indíana Auðunsdóttir
Aldur: 24 ára
Braut: Myndlist
Lokaverkefni: Ég er að fjalla um töffaraskap. Ég fékk nýlegan jeppa, rándýran Landcruiser sem er í láni frá
Toyota-umboðinu. Ég er að breyta honum í rosalegan sportbíl. Ég er búin að setja á hann fjórfalt púst og
spoiler og ljós og ýmislegt. Ég er aðeins að ganga út í öfgar í töffaraskapnum. Það er ákveðið vald sem
fylgir jeppanum og ég er að gera það ennþá sýnilegra með að bæta þessum aukahlutum á. Hann lítur ekki
út eins og venjulegur bíll, hann er of ýktur til þess. Honum verður stillt upp úti í portinu og það verður eins
og einhver hafi bara keyrt inn á sýninguna á honum.
Skólinn: Þetta nám hefur gerbreytt allri myndlistarsýn minni. Maður fór í þetta nám með hálfbrenglaðar
hugmyndir um myndlist. Ég ætlaði upphaflega að sækja um grafík. Ég fór eiginlega alveg á hinn endann á
því sem ég byrjaði á.
Hvað næst?: Ég stefni á að fara í meistaranám, ekki strax að vísu. Ég ætla aðeins að vinna til að rétta fjár-
haginn af því maður nær aldrei endum saman á námslánum. Maður hefur líka gott af því að
taka sér pásu og þroskast í myndlistinni. Svo er bara um að
gera að vera opinn fyrir tækifærum og efna til sýninga.
10 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 14|5|2004 MORGUNBLAÐIÐ
Árleg útskriftarsýning Listaháskóla Ís-
lands verður opnuð á laugardaginn kl.
15 í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu. Tæplega 60 manns eru að útskrif-
ast, um 25 úr myndlistardeild og 33 úr
hönnun (þar með talið í fata- og text-
íldeild).
Útskriftarsýning fata- og textílhönn-
unarnema verður aðeins fyrir boðsgesti
fyrir opnun en verður sýnd áfram á skjá
í safninu. Fyrsta og annars árs nemar
verða hins vegar með sýningu kl. 18 á
laugardaginn.
Listasafnið er búið að vera lokað síð-
an í síðustu viku og hafa nemendur lagt
nótt við dag að setja upp verkin sín og
lítið farið fyrir góðum nætursvefni.
Af þessu tilefni ræddi Fólkið við tvo
útskriftarnema til að fá nasaþef af því
fjölmarga sem verður í boði á sýning-
unni. Viðfangsefni þeirra beggja tengist
hugmyndum um kynferði, þó á ólíkan
hátt. Annað sem er til umfjöllunar á
sýningunni er m.a. siðferði í auglýs-
ingum, mannbætandi herferðir eiga sér
stað, kústur sem er líka gítar og gerir
heimilisstörfin skemmtilegri er þarna
sem og fótbolti úr glæru plasti og
teiknimynd með frumsaminni tónlist.
Ennfremur er hafin röð útskrift-
artónleika, sem standa til 29. maí.
Þetta er í fyrsta sinn sem útskrifaðir eru
nemendur með háskólapróf í tónlist á
Íslandi.
Þeir sem komast ekki á opnunina
þurfa ekki að örvænta því sýningin verð-
ur opin daglega eftir opnunina frá 10 til
17 og stendur til 31. maí. Ennfremur
verður boðið upp á leiðsögn fyrir hópa
alla virka daga milli 9 og 14 en þá
munu nemendur veita gestum innsýn í
verkin.
|ingarun@mbl.is
T
ís
ka
, m
y
n
d
li
st
, h
ö
n
n
u
n
T
ís
ka
, m
y
n
d
li
st
, h
ö
n
n
u
n og tónlist
15. maí
Útskriftarsýning
LHÍ opnuð í
Hafnarhúsinu
Nafn: Helga Valdís Árnadóttir
Aldur: 25 ára
Braut: Hönnun
Lokaverkefni: Ég er að hanna skilaboð til stelpna. Með
þessu er ég að hugsa um allar þessar hefðir og venjur sam-
félagsins sem beinast aðallega að stelpum en strákar fara
ekkert eftir. Þegar við förum á unglingsaldurinn hættum við
oft að hugsa hvað við viljum vera og hvað við viljum gera og
förum að hugsa – hvað get ég gert til að öðrum líki við mig.
Skilaboðin verða í formi spjalda og líka á vefsíðunni
www.this.is/stelpur þar sem hægt er að lesa allt um verk-
efnið. Þar verður m.a. hægt að senda myndskilaboð áfram
til að koma hugleiðingunum á framfæri. Verkið heitir Þæg
eða óþæg? Þessi umræða kemur upp af og til en fólk er
ekki sammála um hvaða stelpur eru hvað. Ég er ekki að
reyna að segja stelpum hvernig þær eigi að vera heldur
vekja til umhugsunar. Hver er þín hlið? Hver er þín skoðun?
Skólinn: Hugur manns hefur opnast og maður er orðinn
meðvitaðri um samfélagið. Maður er búinn að vera að
skoða margar hliðar samfélagsins því auglýsingabransinn
er þannig. Þú verður að skilja svo margar hliðar. Þetta er
ótrúlega skemmtilegt nám og er búinn að vera ofboðslega
skemmtilegur tími. Maður opnast og er meðvitaðari um það
sem er að gerast í kringum mann.
Hvað næst?: Ég er svo heppin, ég er búin að fá vinnu sem
grafískur hönnuður á auglýsingastofunni Expo markaðs-
stofu. Ég er bara að fara að vinna á mánudaginn, get varla
hvílt mig eftir þessa törn en það kemur!
Þæg eða óþæg?
Morgunblaðið/Árni Torfason
Töffaraskapur
Morgunblaðið/Árni Torfason