Morgunblaðið - 17.05.2004, Síða 46
46 C MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Útsýnisíbúð á 1. hæð á Háa-
leitisbraut Góð uppgerð íbúð í húsi
sem hefur verið mikið endurnýjað. Gott út-
sýni til Esjunnar og Akrafjalls en einnig til
suðurs yfir Háaleitishverfið. Örstutt í Ár-
múlaskóla. Prýðisíbúð á prýðisstað. Verð
12,9 millj.
Breiðavík í Grafarvogi -
Glæsileg lúxus 3ja herb. 98,5
fm íbúð Sérlega áhugaverð íbúð fyrir þá
sem vilja búa við mikil þægindi. Öll þjónusta
fyrir sameign hússins er aðkeypt en hús-
gjöld samt mjög hagstæð (um 9 þús. kr).
Yfirbyggðar en opnanlegar svalir. Eikarpark-
et er á allri íbúðinni nema baði, þvottahúsi
og hluta af eldhúsi sem er með flísum. Afar
vandaðar innréttingar sem og allur frágang-
ur. Tvö stór svefnherbergi. Góðar stofur,
rúmgott bað, þvottahús í íbúðinni. Mjög
snyrtileg og rúmgóð sameign með fallegu
anddyri. Verð 14,9 millj.
Leigufélag óskar eftir
ÁTT ÞÚ 2ja, 3ja eða 4ra HERBERGJA
ÍBÚÐ Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU?
Okkur hefur verið falið að leita fyrir stórt leigufélag, eftir fjölda
íbúða til kaups. Íbúðirnar mega vera hvar sem er á höfuðborgar-
svæðinu. Staðgreiðsla í boði. Rúmur afhendingatími.
Frekari upplýsingar hjá sölufulltrúum XHÚSS.
Valdimar Tryggvason s: 897-9929
Bergur Þorkelsson s: 860-9906
Valdimar Jóhannesson s: 897-2514
Ásbúð - Garðabæ Rúmgóð 73 fm
íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi sem er á frá-
bærum stað í Garðabæ. Þvottahús innan
íbúðar. Gróið hverfi. Verð 9,9 millj.
Glæsileg 2ja herb. íbúð í Sól-
túni Stæði í bílageymslu. Suðurverönd
með skjólveggjum. Öryggi og lúxus í fyrir-
rúmi. Laus strax!
Sumarbústaðir
Grímsnes - Hestland Sérlega
glæsilegt nýtt sumarhús 65 fm + 31 fm
svefnloft á frábærum stað rétt við Hvítá.
Lóðin er 0,8 ha eignarlóð. Húsið er byggt á
staðnum og eru steyptir sökklar og golf-
plata. Húsið verður fullkárað að utan með
ca 80 fm verönd. Að innan verður húsið ein-
angrað og plastað, með öllum milliveggja-
grindum og millilofti klæddu að ofan. Raf-
lagnir verða komnar með nauðsynlegum
vinnuljósum ásamt rafmagnstöflu í geymslu.
Hitatúpa verður tengd og lokað frostlanga-
kerfi á geislahita í gólfum. Tilbúið um miðj-
an Júní 2004. Verð 11,5 millj.
Jón Magnússon
Hrl., löggiltur fast-
eigna og skipasali
Bergur Þorkelsson
Sölufulltrúi
gsm: 860 9906
Hilmar Viktorsson.
Viðskiptafræðingur
Valdimar R.
Tryggvason
Sölufulltrúi
gsm: 897 9929
Valdimar
Jóhannesson
Sölufulltrúi
gsm: 897 2514
Guðbjörg
Einarsdóttir
RitariFASTEIGNASALA
Í smíðum
Daggarvellir í Hafnarfirði Vorum
að fá til sölu fjórar 120 fm íbúðir í fjórbýlis-
húsi. Sérinngangur í allar íbúðir. Garður og
svalir snúa til suðurs. Mjög gott skipulag.
Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna. Lóð
og bílastæði skilast fullfrágengin. Teikningar
og frekari upplýsingar á skrifstofu Xhúss.
Verð aðeins 16,8 millj.
4ra til 7 herb.
Nónhæð - Garðabæ Mjög góð
4ra herbergja íbúð með miklu útsýni á 2.
hæð. Suðursvalir. Þvotthús innan íbúðar.
Þrjú góð svefnherbergi. Húsið er nýmálað,
snyrtileg sameign. Laus strax.
Nýlega uppgerð 108 fm íbúð í
Rjúpufelli á 2. hæð með yfir-
byggðum svölum Snyrtileg og
geðsleg íbúð í húsi sem hefur verið endur-
nýjað, klætt að utan og þak lagað. Verð
11,9 millj.
3ja herb.
Álftamýri - Góð 73,8 fm íbúð
á 4. hæð með útsýni Nýlegt park-
et á allri íbúðinni nema baði (flísar). Nýjar
innréttingar í eldhúsi. Bæði svefnherbergin
með skápum. Suðursvalir. Góð sameign.
Verð 11,4 millj.
Kiðárbotnar í Húsafelli 44 fm
sumarbústaður í Húsafelli sem stendur
innst í botnlanga. Tvö herbergi, annað með
fjórum kojum hitt með stóru rúmi, bað, eld-
hús og stofa. Bústaðnum hefur verið vel
viðhaldið. GOTT VERÐ: 3,4 millj.
Sumarbústaður til flutnings
Ca 35 fm bjálkabústaður sem skiptist í opið
eldhús, borðkrók, stofu, gott herbergi og
baðherbergi. Mikið endurnýjaður að innan -
nýlegt rafmagn - ofnar - eldhús - allt á baði
og gólfefni. Klæddur að innan með panel.
Er staðsettur rétt við Flúðir. Frekari uppl.
hjá skrifstofu.
Æsufell Mjög björt og vel skipulögð 92
fm 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftublokk
með miklu útsýni. Glæsilegt baðherbergi
nýlega tekið í gegn, með sambyggðu baði
og sturtu með nuddi, upphengt salerni og
standvaskur. Tvö góð herbergi. Gott útsýni
til suðurs. Áhvíl. 6,0 millj. húsb. 40 ára.
Verð 10,4 millj.
Engjasel - bílskýli Vorum að fá í
einkasölu mjög glæsilega 3ja herbergja íbúð
á 4. hæð ásamt bílskýli. Allar innréttingar og
gólfefni eru nýleg. Tvö góð herbergi. Sér-
þvottaherbergi innan íbúðar. Frábært út-
sýni. Laus fljótlega!
2ja herb.
Bræðraborgarstígur Mjög góð og
vel skipulögð íbúð á 2. hæð í góðu húsi.
Vestursvalir út frá borðkrók. Búið er að
skipta um þak, gera við húsið og mála,
skipta um gler, teppaleggja og mála sam-
eignina, endurnýja rafmagn í sameign. Verð
10,4 millj.
Eign vikunnar
Veghús
Mjög björt og góð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérgarði. Rúmgóð
stofa með plastparketi, útgangur út á hellulagða verönd til suðurs. Mjög
stórt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Verð 13,4 millj.
Skeifan 19 • 108 Reykjavík • Sími 533 1060
Fax 533 1069 • www.xhus.is • xhus@xhus.is
Opið mánudag-föstudags frá kl. 8.30-17
E
kki er til neitt eitt svar við
spurningunni um hvernig
er best að hita upp sum-
arbústaðinn, því bústað-
irnir eru ólíkir og þarfir fólks mis-
munandi.
Það fer t.d. eft-
ir staðsetningu
sumarhússins
hvaða orkugjafar
koma til greina til
hitunar og ljósa.
Raf- og hita-
veita eru algeng-
ustu orkugjafarn-
ir, en þar sem því
verður ekki við
komið er hægt að
nota aðra orkugjafar s.s. kol, olíu,
gas, vind- og sólarorku.
Væntingar
til sumarhússins
Fólk hefur mjög mismunandi
væntingar til sumarbústaðarlífsins,
en sama er hvort menn eru að sækj-
ast eftir þægilega lífinu eða því
frumstæða – sumarhúsið þarf að
uppfylla þær væntingar sem gerðar
eru til dvalarinnar í því.
Áður en ráðist er í að reisa sitt eig-
ið hús er ráðlegt að leigja hús fé-
lagasamtaka og reyna þar hvað er
nauðsynlegt að hafa í sínu eigin húsi
og hvað má missa sig. Þá er einnig
skynsamlegt að reyna að ímynda sér
hvernig þarfirnar til sumarhússins
gætu breyst með árunum.
Hitaþörf sumarhúsa
Hitaþörf sumarhúsa er mjög mis-
munandi eftir ástandi hússins. Ann-
að atriði sem hefur áhrif á orkuþörf-
ina er notkunartími hússins, þ.e.
hvort um er að ræða sumarnotkun
eða heilsárs bústað.
Viðmiðunarhitastig á Íslandi við
útreikninga á hitaþörf húsa er –15°C
útihitastig og 20°C herbergishitastig
og er þá miðað við heilsárshús. Ef
eingöngu á að halda húsinu frostfríu
má lækka herbergishitastigið niður í
10°C.
Hitaþörf nýrra heilsárshúsa er ná-
lægt 80–100 W á hvern fermetra
gólfflatar og má nota þá tölu til að
áætla hitaþörf hússins.
Hitaþörfin fer eftir einangrun og
þéttleika hússins, en einnig eftir
stærð glugga, fjölda útihurða, hlut-
falli útveggja á móti fermetrum gólf-
flatar og fleira.
Varmaorkan sem við setjum inn í
húsið með ofnum, hverfur út í gegn-
um skel hússins með varmaleiðni í
gegnum byggingarefnin og einnig út
með heitu lofti í gegnum glugga,
hurðir og óþétta byggingahluta.
Í öllum þessum tölum hér að ofan
er miðað við –10°C útihita og 20°C
herbergishita.
Varmatap við eðlileg loftskipti í
gegnum óþétta glugga, hurðir og
byggingahluta er um 30–40 W á fer-
metra gólfflatar, þannig að ef við at-
hugum að heildar varmaþörf sumar-
húss er um 80–100W á fermetra þá
sjáum við að hátt í helmingur hita-
þarfarinnar er vegna eðlilegrar loft-
unar hússins. Það er því ljóst að þétt-
ing hússins er mjög mikilvæg,
þannig að við getum stjórnað loft-
skiptunum í húsinu með opnanlegum
gluggum. Gæta verður þó að því að
sú þétting sé rétt staðsett gagnvart
byggingarhluta þannig að ekki sé
hætta á rakaskemmdum í húsinu.
Þar sem hitaþörfin fer eftir bygg-
ingarlagi, frágangi og gluggastærð-
um er nauðsynlegt að láta fagmann
reikna hitaþörf hússins áður en
gengið er frá hitamiðlum í því.
Val á orkugjafa
Þegar búið er að ákveða hvert
hlutverk hússins á að vera og hvern-
ig á það að vera útbúið, þá komum
við að næstu spurningu, sem er val á
orku.
Eins og fram hefur komið hér að
framan þá er framboð af orkugjöfum
háð staðsetningu sumarhússins. Ef
fólk er í vafa hvort því býðst rafmagn
frá orkuveitu í grenndinni er eðlileg-
ast að hafa samband við viðkomandi
veitu og fá uppgefið hvaða mögu-
leikar eru til tenginga við veituna og
hvað slík tenging kostar. Olía, kol og
viður eru óháð tengingum við veitur
og er undir eiganda hússins að koma
á staðinn.
Algengustu orkugjafarnir
Þeir orkugjafar sem algengastir
eru til upphitunar sumarhússins eru
eftirfarandi:
Rafmagn:
Rafmagn frá orkuveitu er algeng-
asta formið á upphitun sumarhúsa,
þ.e. 220 volta spenna.
Til að breyta raforkunni í varma-
orku eru þrjár aðferðir algengastar
þ.e.
– Þilofnar.
– Olíufylltir rafmagnsofnar
– Rafhitaketill og vatnsofnar
Ef við lítum fyrst á þilofnana þá er
helsti kostur þeirra að stofnkostnað-
ur við þá er lágur. Ofnarnir eru
þunnir og fyrirferðarlitlir og eru
fljótir að hitna. Nýtni á raforkunni er
mjög góð.
Gallar þilofnanna eru að þeir
verða mjög heitir og því hætta á að
fólk brenni sig á þeim, einkum börn
að leik á gólfinu. Vegna þess hvað
þeir hitna mikið vilja rykagnir í loft-
inu brenna og mynda óþægilegt
þurrt loft í húsinu. Einnig er nokkur
brunahætta ef pokar eða eldfim efni
liggja utan í ofnunum, og ekki er
hægt að þurrka flíkur með því að
leggja þær á ofninn.
Olíufylltu ofnarnir eru töluvert
dýrari en þilofnarnir og eru fyrir-
ferðarmeiri, en nýtni þeirra er sú
sama og þilofnanna. Hiti frá þeim er
mun mildari en frá þilofnunum og
hægt er að umgangast þá svipað og
vatnsofna. Ekki er meiri eldhætta
frá þessum ofnum en öðrum raf-
magnstækjum og olíuleki á ekki að
eiga sér stað nema ofninn verði fyrir
meiriháttar skemmdum.
Rafhitaketill með lokuðu vatns-
kerfi er dýrasta lausnin á hitun sum-
arhúsa með rafmagni. Reikna má
með að efniskostnaður við þessa hit-
un sé 100–150 þús. króna hærri en
við þilofnana. Þennan kost er þó rétt
að hugleiða alvarlega ef reikna má
með að hitaveita komi í húsið seinna,
því að þá þarf aðeins að skipta út raf-
hitakatlinum og setja millihitara í
staðinn og þá er komið lokað hita-
veitukerfi í húsið án þess að nokkru
þurfi að breyta inni í húsinu.
Hitaveita:
Á síðustu árum er að verða æ al-
gengara að boðið sé upp á hitaveitu í
sumarhúsabyggðum.
Ekki er hægt að mæla með því að
taka hitaveituna beint inn á ofnana,
eins og gert er í flestum hitaveitum í
bæjum, nema rekstraröryggi veit-
unnar sé því betra. Ekki þarf annað
Hitun sumarhúsa og hagnýt ráð
Sigurgeir
Þórarinsson
Nauðsynlegt er að fólk greini þarfir sínar og vænt-
ingar til sumarhússins áður en ráðist er í bygg-
inguna. Sigurgeir Þórarinsson bendir á ýmsar
leiðir í sambandi við hitun sumarhúsa.