Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 2

Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 2
ÚRSLIT ÍÞRÓTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Opna SUBWAY mótið Nesvöllur laugardaginn 26. júní Opna mótið 18 holu höggleikur, verðl. 1., 2., 3., 4. og 5. sæti m/án forgjafar. Nándarverðlaun á par 3 holum. Dregið úr skorkortum í mótslok. Skráning á golf.is og í síma 561 1930 • Þátttökugjald kr. 3.000 KNATTSPYRNA Efsta deild kvenna, Landsbankadeild KR – Breiðablik ........................................4:1 Guðlaug Jónsdóttir 17., Sif Atladóttir 42., Katrín Ómarsdóttir 63., Anna Berglind Jónsdóttir 78., - Ólína G. Viðarsdóttir 89. Fjölnir – Valur ..........................................0:3 Kristín Ýr Bjarnadóttir 30., 55., Dóra María Lárusdóttir 25. Stjarnan – FH............................................1:1 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 85. - Elín Svav- arsdóttir 31. Valur 5 5 0 0 21:1 15 ÍBV 5 3 2 0 29:3 11 KR 5 3 1 1 19:8 10 Breiðablik 5 3 0 2 8:14 9 Þór/KA/KS 5 1 2 2 5:9 5 Stjarnan 5 0 3 2 4:17 3 Fjölnir 5 0 1 4 2:9 1 FH 5 0 1 4 3:30 1 1. deild kvenna B ÍA – Hvöt/Tindastóll ...............................10:0 1. deild kvenna C Sindri – Höttur ..........................................4:0 Evrópukeppnin C-RIÐILL: Danmörk – Svíþjóð...................................2:2 Porto, Portúgal: Mörk Danmerkur: Jon D. Tomasson 28., 66. Mörk Svíþjóðar: Henrik Larsson 47., Mattias Jonson 88. Lið Danmerkur: Thomas Soerensen - Thomas Helveg, Martin Laursen, Rene Henriksen, Niclas Jensen (Kasper Boegel- und, 46.) - Jesper Groenkjaer, Daniel Jen- sen (Christian Paulson, 66.), Thomas Gravesen, Martin Joergensen (Dennis Rommedahl, 57.) - Jon Dahl Tomasson, Ebbe Sand. Lið Svíþjóðar: Andreas Isaksson - Mikael Nilsson, Olof Mellberg, Andreas Jakobs- son, Erik Edman - Fredrik Ljungberg, Kim Kallstrom (Christian Wilhelmsson, 72.), Anders Andersson, Mattias Jonsson - Zlatan Ibrahimovic, Henrik Larsson. Gul spjöld: Erik Edman og Kim Kallstrom, Svíþjóð. Dómari: Markus Merk, Þýskalandi. Áhorfendur: 29.000. Ítalía – Búlgaría........................................2:1 Guimaraes, Portúgal: Mörk Ítalíu: Simone Perrotta 47., Antonio Cassano 90. Mark Búlgaríu: Martin Petrov 45. Lið Ítalíu: Gianluigi Buffon - Christian Pa- nucci, Marco Materazzi (Marco Di Vaio 83.), Alessandro Nesta, Gianluca Zam- brotta - Stefano Fiore, Andrea Pirlo, Sim- one Perrotta (Massimo Oddo 68.) - Aless- andro Del Piero; Antonio Cassano, Bernardo Corradi (Christian Vieri 53.). Lið Búlgaríu: Zdravko Zdravkov - Ilian Stoyanov, Predrag Pazin (Kiril Kotev 64.), Zlatomir Zagortchitch, Daniel Borimirov, Marian Hristov (Velizar Dimitrov 79.), Zor- an Yankovich (Valeri Bozhinov 46.), Milen Petkov, Martin Petrov, Dimitar Berbatov, Zdravko Lazarov. Gul spjöld: Martin Petrov, Valeri Bozh- inov, Ilian Stoyanov, Zdravko Lazarov, Búlgaríu, Marco Materazzi, Ítalíu. Dómari: Valentin Ivanov, Rússlandi. Áhorfendur: 29.643. Staðan: Svíþjóð 3 1 2 0 8:3 5 Danmörk 3 1 2 0 4:2 5 Ítalía 3 1 2 0 3:2 5 Búlgaría 3 0 0 3 1:9 0 AMMA enska knattspyrnumannsins Wayne Rooneys segist frekar ætla að fara á bingó eldri borgara í Liverpool en að fylgjast með dóttursyninum leika með enska landsliðinu gegn Portúgal í 8-liða úrslitum EM í knatt- spyrnu á fimmtudaginn. „Ef bingóið verður á sama tíma og leikurinn kemur ekki til greina að sleppa bingóinu,“ segir Pat Morrey, amma Rooneys sem lætur velgengni dóttursonarins á EM í Portúgal ekki raska ró sinni. „Ég vona að honum [Rooney] gangi vel í leiknum en það er alveg ljóst að það fer betur með taugar mínar að spila bingó en horfa á drenginn leika með enska landsliðinu,“ segir Morrey. Frú Morrey og eiginmaður hennar og afi Rooneys, Billy, gerðu sér dagamun á mánu- dagskvöldið þegar enska landsliðið lék við Króatíu. Fóru þau hjón á krá í nágrenni heimilis sína og fylgdust með leiknum. Sáu þau dóttursoninn skora tvö mörk og leggja upp eitt í 4:2 sigri enska landsliðsins þar sem Rooney var tvímælaust hetja dagsins. Segja þau ekki loku fyrir það skotið að þau fari til Portúgal komist enska landsliðið í undan- úrslit, þ.e. ef það leggur Portúgal á fimmtu- dag. Billy, afi Rooneys, segist hafa verið afar stoltur þegar hann hafi heyrt Sven Göran Er- iksson, landsliðsþjálfara Englendinga, líkja dóttursyninum við Pele eftir leikinn við Kró- atíu. Billy sá Pele leika á Goodison Park í Liv- erpool á HM í Englandi 1966. „Pele er ein- stakur knattspyrnumaður og í ljósi þess trúði ég því vart sem ég heyrði þegar Eriksson líkti honum Rooney okkar við Pele,“ segir Billy en engum sögum fer af því hvort hann hyggst sjá viðureign Englendinga og Portúgala á krá eða fylgja konu sinni á bingó. Amma Wayne Rooneys hyggst taka bingó fram yfir fótbolta Wayne Rooney Cristina Arguedas, lögmaðurMontgomerys, segir á fréttavef BBC að Montgomerys hafi ekkert gert af sér og hann muni verjast til- raunum til að koma í veg fyrir að hann keppi á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar. Lyfjapróf leiddi í ljós að Gaines hefði tekið modafinil, sem er örvandi efni, fyrir bandaríska meistaramótið á síðasta ári. Á þeim tíma var modafinil á lista yfir lyf, sem voru bönnuð en neysla þeirra varðaði þó ekki keppnisbanni. Nú hefur flokkun lyfsins verið breytt og viðurlög við neyslu þess eru 2 ára keppnisbann. Málið er einnig afar erfitt fyrir spretthlaupsdrottninguna Marion Jones en hún er sambýliskona og barnsmóðir Montgomerys. Þótt ekk- ert hafi sannast á hana í þessu máli beinast spjótin einnig gegn henni. Hefur forseti Alþjóðaólympíunefnd- arinnar, Jacques Rogge, m.a. sent Jones þau skilaboð að hún verði að gæta vel að því í hvaða félagsskap hún sé. Fyrrverandi eiginmaður Jones, kúluvarparinn CJ Hunter, féll fjórum sinnum á lyfjaprófi og undanfarna mánuði hefur núverandi sambýlismaður verið tengdur lyfja- málum. Þá æfðu þau skötuhjú um tíma hjá Charlie Francis sem þekkt- astur er fyrir að vera þjálfari Kan- adamannsins Bens Johnsons, þegar hann féll oftar en einu sinni og oftar en tvisvar á lyfjaprófi á níunda og tí- unda áratug síðustu aldar. Rogge segir að gæti Jones sín ekki á því við hvaða fólk hún blandi geði og búi með þá eigi hún á hættu að leggja feril sinn í rúst. Hafa ummæli hans í Sunday Times fyrir skömmu helgi vakið mikla athygli en framundan eru Ólympíuleikar og þar hyggst Jones freista þess að vinna a.m.k. fern gullverðlaun. Á síðustu leikum vann hún þrenn gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Fyrir helgi fékk Hunter síðan skipun um að mæta fyrir lyfjadómstól bandaríska frjálsíþróttasambandsins til að bera vitni vegna meintra tengsla Jones við fyrrgreint fyrirtæki, Balco. Alþjóða frjálsíþróttasambandið, IAAF, kraftist þess um helgina að mál Montgomerys verði til lykta fyr- ir ÓL í Aþenu. Ekki verði við það un- að að málið hangi yfir mönnum þeg- ar leikarnir hefjast. Takist bandaríska frjálsíþróttasambandinu ekki að ljúka því í tíma segist IAAF vera reiðubúið að grípa í taumana. Montgomery og Gaines kölluð inn á teppið BANDARÍSKU spretthlaupararnir Tim Montgomery og Chryste Gaines hafa bæði fengið bréf frá lyfjastofnun bandaríska íþrótta- sambandsins þar sem þeim er tilkynnt að þau séu talin hafa brotið gegn reglum um lyfjaneyslu. Montgomery á heimsmetið í 100 metra hlaupi karla og Gaines vann gullverðlaun í boðhlaupi á síð- ustu ólympíuleikum. Kæran tengist rannsókn á fyrirtækinu Balco, sem talið er hafa framleitt steralyfið THG en það lyf fannst ekki fyrr en nýlega í hefðbundnum lyfjaprófum. Málið er einnig afar óheppi- legt fyrir Marion Jones, sambýliskonu Montgomerys.  MARIAN Pahars, þekktasti og vinsælasti knattspyrnumaður Letta, hefur ekki verið í byrjunarliði þeirra í tveimur fyrstu leikjunum á EM í Portúgal, aðeins komið við sögu sem varamaður í báðum. Aleksandrs Starkovs, þjálfari, kvaðst ekki vilja láta hann byrja á að spila heilan leik þar sem Pahars er nýstiginn upp úr meiðslum.  PAHARS segir að stefnan hafi verið sú að hann ætti að vera í byrj- unarliðinu í leik númer tvö, gegn Þýskalandi. „En liðið spilaði mjög vel gegn Tékkum svo það var erfitt fyrir þjálfarann að breyta liðinu. Það er ekkert mál mín vegna, liðið hefur spilað frábærlega í tveimur fyrstu leikjunum og það kemur mér ekkert á óvart þótt ég verði á bekknum í þriðja leiknum líka,“ sagði Pahars, leikmaður Southampton. Lettar geta komist í 8-liða úrslit, vinni þeir Holland í lokaumferð D-riðilsins.  ÓLAFUR Örn Bjarnason, lands- liðsmaður í knattspyrnu, þótti með bestu mönnum Brann þegar lið hans tapaði, 4:2, fyrir Viking í norsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í fyrra- kvöld. Hannes Þ. Sigurðsson var varamaður hjá Viking og kom ekki við sögu í leiknum. Með tapinu missti Brann af tækifæri til að komast í annað sæti deildarinnar en liðið er í fimmta sæti, sex stigum á eftir topp- liðinu Tromsö.  TOTTENHAM og Juventus berj- ast nú um tékkneska landsliðsmann- inn Marek Jankulovski, sem leikur með Udinese á Ítalíu. Tottenham er tilbúið að borga fimm millj. punda fyrir miðvallarleikmanninn, en Ju- ventus er líklegt til að hækka þá upphæð.  INAKI Saez, landsliðsþjálfari Spánverja í knattspyrnu, ætlar alls ekki að segja af sér þó illa hafi farið hjá liði hans í Evrópukeppninni í Portúgal. Saez skrifaði undir nýjan samning til tveggja ára áður en keppnin hófst en á Spáni hafa verið háværar raddir um að nauðsynlegt sé að skipta um þjálfara. Saez er 61 árs gamall og tók við spænska lands- liðinu árið 2002. Ósigurinn gegn Portúgal var aðeins annað tap liðs- ins í 23 leikjum undir hans stjórn.  OLIVER Kahn, fyrirliði og mark- vörður Þjóðverja, segir að fréttir um að Tékkar muni hvíla lykilmenn gegn þeim í kvöld hafi engin áhrif á sitt lið. „Það væru mikil mistök að halda að B-lið Tékka yrði auðvelt viðureignar. Ég held að þessar fregnir séu bara blekking, en þó ein- hverjir af bestu mönnum Tékka yrðu ekki með, myndu hinir leggja sig enn meira fram, eins og allir gera á móti Þýskalandi,“ sagði Kahn, en þess má geta að margir leikmenn Tékka vilja ná hefndum frá EM 1996 í Englandi, þar sem Þjóðverjar lögðu Tékka í úrslitaleik. FÓLK TVEIR leikmenn í Landsbankadeild karla í knattspyrnu voru úrskurðaðir í eins leik bann á fundi aganefndar KSÍ í gær vegna fjögurra áminninga. Það voru þeir Kjart- an Henry Finnbogason, KR, og Atli Jó- hannsson, ÍBV, sem voru dæmdir í leik- bann. Jakob Már Jónharðsson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, var úrskurð- aður í eins leiks bann vegna brottvísunar leik ÍBV og Keflavíkur í Landsbankadeild inni 15. júní. Aganefndin úrskurðaði einn ig að Keflavík skyldi borga 10.000 íslensk ar krónur í sekt fyrir að Jakob Már fékk að líta rauða spjaldið gegn ÍBV. Kjartan Henry og Atli Jóhannsson í leikbann Sif Atladóttir og Embla Grétarsdóttir liðsins á Breiðabliki í gærkvöl ÓLÖF María Jónsdóttir, kylfingur úr Keili, komst ekki í gegnum nið- urskurðinn á Futures-mótaröðinni sem fram fór í Illinois í Bandaríkj- unum um síðustu helgi. Hún lék fyrri hringinn á 76 höggum og hinn síðari á 78, en 70 bestu komust áfram í þriðja hringinn. Þetta var annað mótið á Futures- mótaröðinni sem Ólöf María tekur þátt í á þessu ári, en í fyrra mótinu hafnaði hún í 73. sæti. Ólöf María er úr leik MEIÐSL Margrétar Láru Viðarsdóttur, sem hún hlaut í leiknum gegn Þór/KA/K á sunnudaginn var, eru ekki eins slæm og þau litu út fyrir að vera. Margrét Lára var borin af leikvelli í fyrri hálfleik eftir að hafa fengið slæmt högg á ökkla. Að sögn Heimis Hall- grímssonar, þjálfara ÍBV, ættu ekki að líða nema í mesta lagi tvær vikur þangað til hún verður aftur klár í slaginn. Þetta eru góð tíðindi fyrir Eyjastúlkur því hún hefur verið aðalmarkaskorari liðsins og skorað 10 mörk í 4 leikjum það sem af er Íslandsmótinu. Einnig eru þetta góðar fréttir fyrir íslenska kvennalandsliðið sem leikur við Rússa á Laugardalsvelli þann 22. ágúst næstkomandi. Margrét Lára ekki lengi frá Margrét Lára KNATTSPYRNA Efsta deild karla, Landsbankadeild: Akureyri: KA – Fylkir ..........................19.15 Keflavík: Keflavík – ÍA .........................19.15 Kaplakriki: FH – Grindavík .................19.15 Víkin: Víkingur R. – ÍBV ......................19.15 2. deild karla: Sauðárkrókur: Tindastóll – Afturelding ..20 3. deild karla, B-riðill: Þorlákshöfn: Ægir – Drangur...................20 Í KVÖLD

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.