Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.2003, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.2003, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. NÓVEMBER 2003 3 LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 4 8 . T Ö L U B L A Ð - 7 8 . Á R G A N G U R | U M S J Ó N Þ R Ö S T U R H E L G A S O N EFNI Sjón hefur sent frá sér nýja skáldsögu er nefnist Skugga-Baldur. Í samtali við Þröst Helga- son segist hann hafa verið að dunda við að setja sér dogma-reglur um skáldsöguskrif. „Niðurstaðan er sú að aðeins eina reglu þurfi; að skrifa söguna þannig að ekki sé hægt að kvikmynda hana.“ Hvernig á að skrifa sögu? er spurt í viðtali Gunnars Hersveins við nýja ritstjóra tímaritsins Sögu, Hrefnu Ró- bertsdóttur og Pál Björnsson, en Saga stendur á nokkrum tímamótum um þessar mundir. Sjálfstætt fólk nefnist grein Einars Más Guðmundssonar þar sem segir frá heimsókn hans á heima- slóðir vestur-íslenska rithöfundarins Bills Holms í Minneota. Fjallað er um skáldskap Holms og birt ljóð eftir hann úr vænt- anlegri bók. Hálf- bróðirinn eftir norska rithöfundinn Lars Saabye Christensen er mögnuð skáldsaga að mati Soffíu Auðar Birgisdóttur sem skrifar ýt- arlegan ritdóm um bókina. FORSÍÐUMYNDIN er ljósmynd Ólafs Magnússonar (1889–1954) af lögregluþjónunum Kristjáni Jónssyni og Ólafi Stefánssyni, tekin árið 1916. Yfirlitssýning á verkum Ólafs er nú í Hafnarhúsinu. Þ egar Maastrichtsáttmálinn frá 1992 gekk í gildi breyttist Efnahagsbandalag Evrópu í Evrópusamband. Áratugina á undan, eða frá 1970, var aukn- ing landsframleiðslu á mann í ríkjunum fimmtán sem mynda Evrópusambandið vel yfir 2% á ári. Þau drógu ört á Bandaríkin þar sem meðaltal fyrir árin 1970 til 1990 var milli 1,6% og 1,7%. Eftir stofnun Evr- ópusambandsins hægði á hagþróun í ríkj- um þess og aukning landsframleiðslu á mann dróst töluvert aftur úr Bandaríkj- unum. Á árunum 1990 til 1997 var hún áfram um 1,6% á ári í Bandaríkjunum en í Evrópusambandsríkjum fór hún niður í 1,2%. Til samanburðar má geta þess að meðaltal fyrir allan heiminn frá 1950 til loka tuttugustu aldar er rúm 2% á ári.* Með dýpri samruna Evrópusambands- ríkja og upptöku sameiginlegs gjaldmiðils seig enn á ógæfuhliðina. Joseph E. Stiglitz, sem fékk Nóbelsverðlaunin í hagfræði 2001, segir í grein sem birtist í Morg- unblaðinu 6. september 2003: „Hagvöxt- urinn í Evrulandi frá því að gjaldmiðillinn var tekinn upp fyrir hálfu fimmta ári hefur verið sáralítill og skammtímahorfurnar eru litlu betri. Samt var evrunni ætlað að örva hagvöxtinn með því að stuðla að lægri vöxt- um og auknum fjárfestingum. Þótt þetta kunni að hafa gerst í nokkrum löndum hef- ur það ekki orðið raunin á evru-svæðinu í heild.“ Eins og Stiglitz bendir á hefur efna- hagur sumra landa í Evrópusambandinu batnað nokkuð eins og t.d. Írlands. Batn- andi kjör þar í landi má að nokkru rekja til mikilla skattalækkana. (Tekjuskattur á Ír- landi var milli 35% og 40% á flestar tekjur árið 1989 og var kominn niður í 22% til 24% árið 2000.) En þegar á heildina er litið hef- ur aukinn pólitískur samruni ekki orðið til að bæta kjör almennings í sambandslönd- unum, öðru nær. Ekki er nóg með að hægt hafi á hagþróun í flestum ríkjum Evrópu- sambandsins. Þeim gengur líka illa að vinna á atvinnuleysi og fleiri félagslegum vandamálum. Í fjölmennustu ríkjum sambandsins hef- ur atvinnuleysið lengi verið nálægt 10% og um 40% þeirra sem eru atvinnulausir í þessum löndum hafa verið án vinnu í meira en ár. Sambærilegar tölur fyrir Bandaríkin eru um 5% atvinnuleysi og um 6% atvinnu- lausra þar hafa verið án vinnu í ár eða leng- ur. Síðan 1970 hafa orðið til um 57 milljónir nýrra starfa á almennum vinnumarkaði í Bandaríkjunum. Á sama tíma hefur fjöldi starfsmanna hjá einkafyrirtækjum í Evr- ópusambandslöndum nánast staðið í stað. Sú litla fjölgun starfa sem orðið hefur er að mestu hjá því opinbera.** Talsmenn Evrópusambandsins tala gjarna fjálglega um allar þær miklu efna- hagslegu framfarir sem fylgja pólitískum samruna, landamæralausum innri markaði, sameiginlegum gjaldmiðli og samræmdum reglum um viðskipti. En þótt þeir slái ný og ný met í sjálfshóli dragast ríki sam- bandsins æ lengra aftur úr Bandaríkjunum og fleiri iðnríkjum í efnahagslegu tilliti. Þegar hagur sambandsríkja er borinn sam- an við hag annarra Evrópuríkja sem ekki voru á áhrifasvæði Sovétríkjanna eins og t.d. Íslands, Noregs og Sviss hljóta menn að efast um að aðild að sambandinu stuðli að mikilli hagsæld. Fjölmennustu ríkin í Evrópusambandinu bjuggu við ýmislegan hagstjórnarvanda fyrir stofnun þess. Póli- tískur og efnahagslegur samruni sem fylgdi stofnun sambandsins átti að leysa þennan vanda. En hann hefur ekki minnk- að heldur þvert á móti aukist. Þarna er eitthvað meira en lítið að. Þeir sem staldra við og reyna að átta sig á ástæðum þessa eru ekki sammála um neina eina skýringu. Sumir skella skuldinni á umfangsmikil vel- ferðarkerfi. Aðrir benda á ósveigjanlegan vinnumarkað og reglugerðafargan og enn aðrir á að mennta- og rannsóknarstofnanir búi við fjársvelti og þröngan hag. Meðan sérfræðinga um efnahagsmál greinir á ættu leikmenn ef til vill að full- yrða sem minnst. Ég ætla samt að leyfa mér að giska á hvers vegna þetta basl er á efnahag Evrópusambandsins. Tilgáta mín er sú að þeir sem þar ráða ferðinni séu það sem heitir á vondu máli „kontrólfrík“, þ.e. menn sem mega hvergi sjá óreiðu, eða hömlulausa sköpun án þess að reyna strax að koma böndum á hana. Hvar sem fólk gerir eitthvað öðru vísi, víkur frá stöðlum eða fer inn á eitthvert svið sem engar regl- ur ná yfir finnst þeim að hið opinbera verði að gera eitthvað í málinu. Fyrir vikið fitnar regluverkið sem heyrir undir acquis communautaire eins og púkinn á fjósbit- anum og er nú um hundrað þúsund blaðsíð- ur. (Já, án gamans, löggjöf sambandsins fyllir um það bil eitt hundrað þúsund blað- síður.) Sumar þessar reglur eru nógu vit- lausar til að vera þokkalegt spaugstofuefni, t.d. bananareglugerðin sem hvað mest hef- ur verið skopast að. Hún er númer 2257 frá árinu 1994 og hægt að finna á vef sam- bandsins á http://europa.eu.int/eur-lex/en/ search/search_lif.html. (Þegar síðan kemur upp þarf að slá ártalið 1994 og númerið 2257 inn í reitina sem merktir eru „Year“ og „Number“.) Texti reglugerðarinnar er rúmar 5 blaðsíður og þar er meðal annars kveðið á um að bananar sem seldir eru ferskir í verslunum skuli ekki vera óhóf- lega bognir (í enskum texta reglugerð- arinnar er notað orðalagið „free from … abnormal curvature“). Bananar sem not- aðir eru til iðnaðarframleiðslu, svo sem í aldinmauk, munu undanþegnir ákvæðinu. Nú kann mönnum að virðast sem reglu- gerð, um að bananar skuli ekki vera óhóf- lega bognir, sé harla léttvæg og ólíkleg til að hafa mikil áhrif til eða frá á efnahag heilla þjóða. En hvað ef bananabóndi kemst að því að ein plantan hjá honum ber bragðbetri og hollari banana en hinar en jafnframt töluvert bognari? Ætli hann reyni að nota hana til að kynbæta plöntu- stofninn hjá sér? Líklega ekki ef hann veit af reglugerðinni og sér ekki fram á að geta selt þessa bragðgóðu og hollu banana nema til iðnaðarframleiðslu. Ef bóndinn býr hins vegar í landi þar sem ekki hafa verið settar neinar bananareglugerðir er mun líklegra að hann fái líffræðinga og búvísindamenn í lið með sér og reyni að hafa sem mest gagn af plöntunni góðu. Ef til vill er ósennilegt að nákvæmlega þetta gerist. En þegar komnar eru hundr- að þúsund blaðsíður af reglum um alla skapaða hluti er næstum öruggt að eitt- hvað þessu líkt gerist og það dögum oftar. Drifkraftur efnahagslegra framfara er hjá fólki sem hefur augun opin og grípur ófyr- irsjáanleg og óvænt tækifæri. Þéttriðið net reglugerða og smásmugulegs eftirlits dregur kjark og dug úr slíku fólki og veld- ur stöðnun, deyfð og drunga þar sem ann- ars væri skapandi og fjörugt atvinnulíf. Hvort sem þessi tilgáta dugar til að skýra hversu illa gengur að bæta efnahag Evrópusambandslanda er ljóst að þýskir og franskir sósíaldemókratar og mið- flokkar ráða að verulegu leyti ferðinni í sambandinu, og munu fá enn meiri ítök ef þau drög að stjórnarskrá sem liggja fyrir verða samþykkt. Það er einnig ljóst að þeim hefur gengið illa að leysa efnahagsleg vandamál í heimalöndum sínum. Mér finnst því fyrirkvíðanlegt í meira lagi ef þeir fara í enn auknum mæli að troða sinni mislukkuðu hagstjórn upp á restina af álf- unni. Heimild: „Economic Development in OECD Count- ries during the 20th Century“ eftir G.M. Carmen og C.M. Teresa við háskólann í Santiago de Compostela á Spáni. Liggur frammi á www.usc.es/economet/eaa.htm. ** Heimild: „EU Enlargement – Costs, Benefits, and Strategies for Central and Eastern European Count- ries“ eftir M.L. Tupy. Liggur frammi á www.cato.org. REGLUVERKIÐ FITNAR RABB A T L I H A R Ð A R S O N atli@ismennt.is KRISTJÁN KARLSSON III Kjarni lífsins er ef til vill jafn óljós, ég man bjartari jaðra en grásprengd rithönd vindsins leggst oní miðjar hlíðar eins og krot eftir alþjóðleg guðlaus börn: einungis trúaðar þjóðir og smáþjóðir skrifa vel? úti í nesi handan vogar stendur leirljós hestur og hófar hans snúa rétt sem er góðs viti, eitt er víst að sjái ég hann ekki hvenær sem er verður mér órótt nú, um leið og þekking mín fer minnkandi. Kristján Karlsson (f. 1922) á að baki níu ljóðabækur. Ljóðið hér að ofan er úr nýjustu ljóðabókinni hans Kvæði 03 (2003).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.