Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.2003, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.2003, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. NÓVEMBER 2003 9 Þetta var auðnuleysið á mælikvarða þeirra drauma sem lagt var upp með. Allt varð að engu og enginn varð það sem hann vildi verða. Menn sátu uppi einir, fráskildir og vonlausir, í störfum sem þeir hefðu hlegið að þegar þeir voru yngri. En kannski voru þetta líka vitlausir mæli- kvarðar. Ég veit ekki hvort ég eigi að segja að Bill sé ritgerðarsmiður sem segir sögur eða sögumaður sem skrifar ritgerðir; hann tvinnar þessi form saman. Ritgerðin er skrifuð af ástríðu sögu- mannsins en sagan sögð af hárbeittri skarp- skyggni ritgerðarsmiðsins. Bill byggir ritsmíðar sínar oft á íslensku inn- flytjendunum, á örlögum þeirra í rás tímans. Margir komu og festu engar rætur á hrjóstr- ugum hæðum Lincolnsýslu. Örlög þeirra urðu að deyja barnlausir og hverfa nafnlausir. … Þannig er sagan af Pauline Bardal. Ég tek hana sem dæmi, af því að hún er dæmi- gerð. Pauline var dóttir fólks af fyrstu kynslóð innflytjenda. Hún annaðist fátæka og sjúka, lék á orgel fyrir sjálfa sig og Bill, og einu tónleikarn- ir sem hún hélt voru við jarðarfarir. Tónlistin gladdi hana, en á alla bandaríska mælikvarða var hún auðnuleysingi. Hún fór ekk- ert, átti ekkert og dó sem einstæðingur. Friðgeir, faðir hennar, kom til Minneota 1880, þar sem Bill Holm býr á veturna. Friðgeir var heillaður af áróðurspésunum sem bandaríska stjórnin lét dreifa um öll Norðurlönd. Þar voru landkostir vegsamaðir, smjör draup af hverju strái. Hann kvæntist konu frá Borgarfirði eystra og eignaðist með henni fimm börn, en lést af slysförum langt um aldur fram. Þrjú börn komust á legg, Gunnar, Rose og Pauline. Gunnar og Rose dóu á undan Pauline. Hún var ein eftir í húsinu og annaðist sjúka og dauðvona. „Pauline gaf mér ekki einungis tónlistina,“ segir Bill. „Hún annaðist báða foreldra mína í banalegu þeirra, og þegar móðir mín týndi niður enskukunnáttunni, viku fyrir dauða sinn, og mælti eingöngu á móðurmálinu, íslenskunni, sem ég skildi ekki, þá þýddi Pauline fyrir mig. Gjafir hinna óskólagengnu eru oft á tíðum þær sem við vissum ekki að við myndum þarfnast – réttu orðin, rétta hljómlistin.“ Í Auðnuleysishljómkviðunni lýsir Bill Holm heimili Bardalsfólksins: „Þau áttu enga fulla bauka af peningaseðlum, enga falda fjársjóði, ekkert sem hafði fjárhagslegt gildi í raun og veru; í þeim skilningi voru Bardalirnir vissulega fátækir. En ekki fátækir í huga og anda! Þau áttu bækur á þremur eða fjórum tungumálum: Platon, Hómer, Björnson á norsku, Snorra Sturluson á íslensku, Whitman, Darwin, Dick- ens, Ingersoll, Elbert Hubbard, haug af píanó- verkum eftir Händel, Bach, Mozart, George Beverly Shea og Björgvin Guðmundsson, gaml- ar upptökur með Caruso, Galla-Curci, Schu- mann-Heink og John McCormack, ódýrar bæk- ur með myndum af málverkum og höggmyndum merkustu listasafna í Evrópu, orgel, píanó, fiðlu, trompet, handbækur um garðyrkju, matargerð og húsráð, bestu tímaritin um pólitík og listrýni, auk Capper’s Farmer, Menneota Mascot og Plain Truth, orðabækur og málfræði þriggja eða fjögurra tungumála, bækur um furður vís- indanna, ævintýraferðir Richards Burton, gaml- ar kennslubækur í framburði og stærðfræði, Biblíur og sálmabækur á öllum Norðurlanda- tungunum, Fást, The Reader’s Digest og „Sweet Hour of Prayer“. Litla húsið var einsog geim- skip á förum frá jörðinni, fermt því besta sem við höfum gefið hvert öðru á síðustu 4000 árum í sögu mannlegrar vitundar. Og ekkert af því var tíu króna virði í hinum harða heimi frjálsrar samkeppni! Skiptastjórarnir hefðu allt eins get- að lagt eld að húsinu á þessu kófheita sumarsíð- degi og sparað þannig allt ómakið við flokk- unina, valið á minningargjöfum til vinanna og bílskúrssöluna á því sem þá var eftir. En það sem manni var ljóst og vakti ósvikna furðu var að Bardalirnir höfðu ekki einungis troðfyllt hús sitt af þessu fáránlega dóti, heldur var húsið í rauninni táknmynd af þeirra innra lífi er þeir prýddu hinni mestu fegurð og viti sem þeir skilið gátu. Þeir lásu bækurnar, léku á hljóðfærin, báru merkingu hússins með sér hið innra og tóku hana að lokum með sér ofan í röðina beinu í kirkjugarðinum í Lincolnsýslu. Og þó ekki alveg … Hver sá, sem ber með sér heila siðmenningu hið innra, gefur öllum af henni í samræðum og daglegri breytni … Ekk- ert af þeim hafði próf úr gagnfræðaskóla, hvað þá meira. Þau gáfu það sem launuðum kenn- urum mistekst svo tíðum að gera.“ Þessi ívitnun er mjög einkennandi fyrir ritstíl Bills Holms og viðhorf. Hann ber síðan Pauline saman við valdhafa Bandaríkjanna, þá sjálfum- glöðu hrokagikki, sem ekki virðast einu sinni vera skemmtilegir. Ég vona bara menn kynni sér bækur Bills Holms af eigin rammleik, en fyrir utan þær sem þegar eru nefndar má nefna Landscape of Ghosts, (1993) The Heart can be filled anywhere on Earth, Minneota, Minnesota, (1996) Eccentric Islands, (2000) og einnig má nefna ljóðabækurnar Boxelder Bug Variations, (1985) og The dead get by with everything, (1990). Ljóðin sem hér eru þýdd eru úr væntanlegri ljóðabók. FÓLK Morgunblaðið/Einar Falur ar Már um Holm. Darren við staflann af Sjálfstæðu fólki. Höfundur er rithöfundur. rða reiður eða öllu heldur neykslast mest á þeim sem sagðir n skammast sín fyrir valdhaf- annarri plánetu en þeir, jafnvel Á hverju kvöldi í þrjá tíma í heila viku veiðir Valdís litla, sem býr hinu megin við götuna, ein við fjörðinn. Aftur og aftur kastar hún færinu í ölduna sem nálgast þar til faðir hennar kemur að sækja hana tómhenta um miðnætti. Hvað er hún gömul? Þrettán? Svört gúmmístígvél, dökkt hár í tagli. Blá úlpa, poki fyrir aflann. Til hvers kastar hún færi á hverju kvöldi í þessari skjannabirtu sem varir fram í ágúst? Bleikja? Ást? Framtíðin? Eða er hún að æfa sig í þolinmæði? Hún snýr baki í bæinn, heiminn, gluggann minn – Starir alein á ekkert nema sjóinn. ANDI WANG WEIS HORFIR Á SKAGAFJÖRÐINN Mikið hefðu gömlu skáldin frá Kína dáðst að Íslandi! Allt birtist eitt í einu, í órafjarska: eitt gult villiblóm, einn brúnn fugl, einn hvítur hestur, einn gamall bær að hruni kominn, sem virðist lítill og langt í burtu, flekkótt kind og hátt svart fjallið sem minnkar á bak við hana. Bóndi á stærð við eldspýtu gengur út úr fingurbjörg hlöðunnar að frímerkjareit akursins á meðan áin fellur fram af klöppinni yfir höfði hans, silfurprjónn sem hverfur inn í fingurinn. Enn sérðu bóndann, jafnvel héðan úr þessari fjarlægð, svörtu stígvélin hans, brúna frakkann hans, bláa hattinn hans, yfirvar- arskeggið og örlítið blóðhlaupin augun, þar sem þú sérð Atlantshafið speglast og allan himininn. TIL KRISTJÁNS ÁRNASONAR „Ég yrki í orð og við,“ segir Kristján Árnason sem er meira en sjötugur þegar hann sýnir mér viðarskál sem hann hefur búið til heima hjá sér á Skálá, á býli nálægt heimskautsbaug. Ef þú segir við félaga þína í ljóði eða lagi árið tvöþúsund og eitt: „Þetta er falleg skál,“ þá hlæja þeir og segja: „Það er aðeins þín skoðun, afneitun þín á þjáningu trjánna, að ein skál sé endilega fallegri en önnur.“ Þeir vilja kaldhæðna skál, ekki viðarskál fulla af ljóðlist, en Kristján sem er smiður lærði aldrei slíkt tískuhjal, heldur skapar fegurð úr öllu sem á vegi hans verður. Hann yrkir ljóð á þeirri tungu sem hann lystir, býr til orðaskálar úr ensku, dönsku, hans eigin ástkæru íslensku sem fyllt hefur skálar af fegurð í þúsund ár. Hér er skál úr veðri, hér er skál úr þrá, fjallaskál, ljósaskál. hugsunarskál, hlátursskál. Menn læra ekki að búa til skálar eða fá leyfi eða prófskírteini. Hann býr til eina af annarri þar til sú rétta er fædd. Einnig orðin finna sinn farveg ef unnið er með þau á hverjum degi í fimmtíu ár, jafnvel á bæjum, langt frá frægð og frama heimsins. Þannig er það einnig með þína skál, sé hún vel gerð, þá er hún vatnsheld og í henni má geyma penna, súkkulaði og glersteina, eins munu ljóð þín halda fegurð sinni og visku, kímni og ást, sama á hvaða tungumáli þú yrkir, einsog ljóðaskálar Kristjáns Árnasonar, skálds á Skálá, ortar úr orðum og viði og gefnar mér. BILL HOLM KVÖLDVEIÐAR Í SKAGAFIRÐI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.