Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1973, Page 7

Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1973, Page 7
Sask. þar til hann lét af störfum 65 ára gamall. Næstu árin bjuggu þau hjón I Calgary, Alta, en siðan 1954 var heimili þeirra i fögrum skógarlundi suður af Victoria. Dr. j.P.P. kvæntist 1910 Sigriði Vigfúsdóttur frá Skógargerði i Fljóts- byggð, Nýja Islandi, hinni ágætustu konu, er stóð örugg við hliö manns i bliðu og striðu i full 60 ár, var „ljós á vegum hans og lampi fóta hans” er sjón hans tók að daprast. Hún las og skrifaði fyrir hann, til þess að hann þyrfti ekki að hætta bréfaviðskiptum við vini og vandamenn, og öðrum rit- störfum. Börn þeirra hjóna eru 4 á lifi, Haraldur kennari i Victoria, Mr. Thora Bell, húsfreyja á Vanvouver- eyju, Sigrún, skrifstofustjóri i Ottawa, og Mrs. Salin Stewart, ekkja i Vancouver. Barnabörnin eru 7. Dr. J .P .P. hóf undur ritstörf, og væri skáldverkum hans safnað i eina bók, væri þar mikið og gott lestrarefni. Hann var einn þeirra fáu manna, er lengi lögðu Timariti Þjóöræknis- félagsins til gott efni. Má þar t.d. benda á hina frábæru minningargrein um J.M.B. sem sinn andlegan fóstur- föður, og sýndi honum og konu hans sonarlega rækt til þeirra hinztu daga. Má sjá i dagbók J.M.B. (sem enn er óprentuð) hve innilega þakklátur hann er þessum gamla nemanda sinum fyrir alla umönnun hans. J.P.P. ritaði einnig i timaritiö „Saga” er Þorsteinn Þ. Þorsteinsson gaf út i Winnipeg, og smásögur hans, leikrit og Ijóð birtust i Heimskringlu um langan aldur, og fjöldi ritgerða um ýmsileg efni, meðal annars ferðasögur, og var ein þeirra sérprentuð „Hnausaför min” 1928, gamansaga og skáldskapur að nokkru leyti. í bókinni „Vestan um haf”, úr- val úr vestur-islenzkum bókmenntum, er gefið út i Reykjavik 1930, á dr. J.P.P. góðan skerf. Þeir Stephan G. Stephanson og J.P.P. voru alúöarvinir á efri árum Stephans, enda um margt andlega skyldir, og lét J.P.P. sér mjög annt um Stephan eftir aö heilsa hans tðk að bila, enda má glöggt sjá þess merki i bréfum Stephans, en nokkuð af bréfum hans til J.P.P. mun vera óprentað hér i Landsbókasafni. A siðustu árum sinum hugleiddi dr. Pálsson mjög heimspekileg efni og framtið mannkynsins. Þess á milli orti hann lausavisur, sér til dægra- styttingar i rökkrinu, er aö siöustu var oröið algert mykur, þó að það væri lýst upp af ást og umhyggju konu hans og barna. Með honum er til moldar genginn einn hinna merkilegu manna, er ótrauðir lögöu liö sitt fram til þess að islenzk tungu og þjóðerni mættu lifa sem lengst i þeirra nýja heimkynni i fjarlægri heimsálfu. Ævistarfi hans og manngildi verða litil skil gerð með þessum fátæklegu linum. Þess skal að siðustu getið, að I júli s.l. gleðst hann þá mjög farinn að heilsu, yfir þvi að „...á lslandi...sé enn Paradis, og lifs- stefnan ráði þar iögum og lofum.” Þá þætti honum vel, ef við létum það verða sannmæli i framtiðinni. 28. jan. 1973. Jóhannes Kjarval Framhald af bls 8. seinna leiddu þau kynni til þess, að hann varð hér heimilisvinur alla þá stund, sem hann hafði hér bækistöð og heilsa hans leyfði persónuleg sam- skipti. Kjarvai vann aldrei á sunnudögum. Kom hann þá oft hér heim og gisti nokkrum sinnum. Var hann jafnan au- fúsugestur. Það sem hér er talið, leiddi til þess, að Kjarval fannst hann verða að láta eitthvað mikið af hendi rakna i staðinn. Voru það málverk, bækur og ýmislegt fleira þarflegra hluta, sem við þágum úr hendi hans, auk fjölda bréfa, sem bera fagurt vitni þakklát- semi hans og tryggð. Hallaði þvi alltaf meira og meira á okkur i þessum viðskiptum, eftir þvi sem lengra leið. Sama sagan mun hafa gjörzt viðar, þar sem leið hans lá. En dýrustu gjöfina hefir hann gefið þjóðinni allri? Alla list sína og lif. Frá þeim tima, sem Kjarval dvaldi hér i nágrenninu, eigum við margar ógleymanlegar minningar. En einna minnistæðastar verða mér þó kvöld- stundirnar i litla húsinu hans i hvamminum - þegar hinn mikli meistari lina og lita hafði lagt frá sér pensilinn, tekið brettið af trönunum og lokað þvi, og naut hvildarinnar eftir erfiðan dag. Þá ræddi hann stundum opinskátt um það, sem var að gerast i islenzku þjóölífi, skáldskap og listum. Eitt sinn sagði hann mér frá þvi, hvernig hann setti sjálfan sig i samband við um- hverfið, þegar hann væri að mála. Þar sem búast mátti við umferð, gaf hann sig ekki svo á vald verkefnisins, að hann væri ekki fær um að taka á móti truflun frá umferðinni án þess að fara úr jafnvægi, „en þegar unnið er langt frá alfaraleið, stillir maður sig inn á þögnina,” sagði hann. Eitt sinn var hann að mála á slikum stað og varð fyrir óvæntu ónæði: „Ég varað glima við erfitt viðfangs- efni og hafði ef til vill náð sambandi við framliðna meistara. Var búinn að sjá fyrirmér lausn á vandanum, en átti eftir að koma henni á léreftið. Þá varð ég fyrir ónæði og tapaði hugsjóninni.” Þótt honum þetta mjög leitt, en tók þó aftur gleði sina eftir einn eða tvo daga. Ég tel mér það mikinn ávinning að hafa kynnzt Kjarval, þessum sér- stæða og mikla persónuleika. Það hefir vikkað sjóndeildarhring minn og auið bjartsýni og trú á þann stofn, sem borið hefir hina þróttmiklu og laufriku grein, sem hann var. Mikilmenni koma jafnan fram i fyllingu timans. Nú stendur autt litla húsið i hvamminum - eins og svo mörg önnur i sveitum þessa lands. Segja mætti mér það, að á kyrrum sumarkvöldum, þegar sól gyllir ris- bratta tinda Dyrfjalla og annarra fjalijöfra austan Héraðs, að i hvamminn komi maður, hár vexti, með hatt á höfði og silfurhvita lokka niður undan, og með málingarslettur á fötum og höndum, hafandi með sér málaratrönur og annað það, sem starfinu heyrir til, renni athugulum augum yfir mjúkar linur Selfljótsins, bakka þess, og siðan fjær yfir ása og fell, til fjallanna i fjarska, og hefjist handa. Jóhannes Sveinsson Kjarval. Þessi fáu og fátæklegu orð eiga að færa þér innilegasta þakklæti mitt og fjölskyldu minnar, fyrir vináttu þina og tryggð, gjafir þinar og allan sóma, er þú sýndir okkur, ásamt ósk um heill og hamingju á nýju sviði lifs og list- ar. Börnum þinum og öðrum aðstendendum vottum við inni- legustu samúð. Björn Guttormsson islendingaþættir 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.