Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1973, Blaðsíða 8

Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1973, Blaðsíða 8
Jóhannes Kjarval listmálari Nú þegar Jóhannes Sveinsson Kjar- val listmálari hefir lokiö þeirri vegferð sinni hér á jörð, sem sýnileg er augum okkar flestra, er mér ljúft og skylt að minnast hans með nokkrum linum, þar eð einn þáttur i lifi hans og starfi gerðist hér i nágrenninu. Það var fyrripart sumars 1948, að hér kom bilstjóri úr sveitinni þeirra erinda fyrir Kjarval, að biðja um leyfi til þess að tjalda i landi minu. Kjarval hafði ætlað til Borgarfjarðar og átti von á bát þaðan til þess að sækja sig að Selfljótsbrú eða Krosshöfða. En báturinn kom ekki. Bað Kjarval þá bil- stjórann að flytja sig til baka, þvi að hann hefði séð gott ,,mótiv" út um bil- gluggann, þegar þeir fóru fram hjá stað skammt sunnan Ketilsstaða Leyfið tii þess að tjalda var fúslega veitt, og lágu til þess fleiri ástæður. Fyrst og fremst var það skylt sam- kvæmt reglum gestrisninnar, og i öðru lagi sökum þess, að Kjarval hafði nokkru áður málað mynd fyrir sveitunga mina, sem litið gjald hafði komið fyrir. En sú mynd var gefin lækni, sem héðan var að flytja. Taldi ég, að nú mundi gefast tæki- færi tii að bæta hér nokkuð um. En þar misreiknaði ég mig mjög, svo sem siðar mun sagt verða. Þegar ég svo stuttu siðar fór að athuga um dvalarstað „landseta mins” - en svo nefndi hann sig sjálfan i sljóði, er hann færði mér á 50 ára afmæli mínu - kom það i ljós, að hann hafði valið sér tjald- stæði i hvammi syðst i Ketilsstaða- landi. Er þar hár kiettur að baki, en Selfijót i mjúkum boga framundan. í vorleysingum og rigningatið fellur lækur fram af klettinum, myndar all- háan foss og rennur siðan niður hvamminn og út i Selfljót. í hvammi þessum dvaldi hann siðan lengri eða skemmri tima nær hvert sumar næstu 20 ár. Tvö fyrstu árin bjó hann i tjaldi, en siðar i litlu húsi, sem hann byggði sér þar og enn stendur. f þessum hvammi, og nágrenni hans, málaði hann svo fjölda mynda, stórra og smárra. Sérstaklega minnist ég tveggja nafngefinna verka, er hétu „Gullmold” og „Sumar við Selfljót”. Voru þau mjög stór og forkunnar- fögur. 8 Til dæmis um afköst Kjarvals segi ég eftirfarandi: Eitt sinn kom ég i beitarhús, sem eru skammt frá hvamminum. Héngu þá þar til þerris 5 eða 6 allstór málverk. Ég fjölyrði ekki um málverkin, en segi hér smásögu i sambandi við eitt þeirra. Ég kom eitt sinn til hans, er hann var að byrja á alistóru málverki. Stuttu siðar kom ég aftur, og hafði verkinu þá miðað nokkuð áfram. Varð mér að orði, að nú væri málverkið að byrja að verða áfengt, þ.e. það hefði áhrif á fegurðarskyn mitt og veitti mér gleði. En á þann hátt held ég að þeir njóti listaverka, sem ekki hafa þekkingu til að dæma þau út frá list- rænu sjónarmiði. En nú sný ég mér að manninum sjálfum, persónunni. sem skapað hefir þann mikia fjölda lista- verka, sem eftir hann liggja og sem sennilega eru meiri að vöxtum, marg- breytileik og fegurð, þar sem hæst ber, heldur en nokkurs annars islenzks málara fyrr og siðar, að þeim öllum ólöstuðum. Athugunargáfa hans var slik, að hann gaf jafnt gætur að hinu minnsta blómi og himingnæfandi fjöllum. Ekkert mátti hann aumt sjá, svo að ekki væri reynt að bæta úr, og það sem hann taldi vel til sin gjört. launaði hann svo rikulega, að sliks munu fá dæmi. Ég gat um það hér að framan, að ég hefði hugsað mér að launa að einhveriu leyti. það sem hann hafði gjört fyrir sveitunga mina. En það fór á annan veg. \ Okkur hér varð það fljótlega ljóst, eftir að hann fór að dveljast i hvamminum, að hann hafði ekki ævin- lega hugsað mikið fyrir likamlegum þörfum sinum, enda var það oft ódrjúgt, sem meðferðis var haft, þvi öllum, sem að garði bar - og þeir voru margir - þurfti að gjöra gott, eins og það kallast á máli manna hér um slóð- ir. Kom það i hlut konu minnar að geta sér til um það, sem hann mundi helzt skorta hverju sinni. 1 sambandi við þetta urðum við honum málkunnug, og Framhald á 7. siðu. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.