Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1974, Qupperneq 4

Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1974, Qupperneq 4
Davið Pétursson F. 14. sept. 1940. D. 24. des. 1973. Pabbi minn, þaö er svo erfitt að trúa þvi að þú sért dáinn, og viö sem ætluð- um að gera svo margt á meðan þú varst i bænum. Þegar við hittum þig daginn, sem þú komst i bæinn, þá varstu svo glaður og kátur, eins og alltaf þegar við hittumst. En elsku pabbi við vitum að þú ert hjá okkur alltaf, og þó að það sé sárt að hugsa um þaö að þú ert dáinn, þá eigum við allar fallegu minningarnar um þig og við vitum að þér liður vel núna. Þú ert geymdur guðs i örmum, góði, elsku pabbi minn. Bak við tregatár frá hvörmum trútt er geymdur hugur þinn. Guð geymi þig og blessi minningu þina elsku pabbi minn. Minningarijóð um Davið Pétursson Guði sál þin geðjast hefur, geymdan hvers kyns hættum frá sonur guðs að sér þig vefur, sælum englum þú ert hjá. Eitt sinn gleðja þar munt þú þá, er sárt þig gráta nú, náðar, lifs og sannleiks sæta senn hjá brunni þeim skal mæta. Stillið harm og söknuð sáran, særðu hjörtun angurvær, ei hin djúpa dauðans bára drekkt né grandað neinu fær þvi sem jarðneskt ekki er. Ó, hvað dýra huggun lér allt, sem eðii himneskt hefur, himnum aftur dauöinn gefur. Góði Jesú, gef oss öllum góða barnsins hjartaþel, gef að aldrei frá þér föllum, forðumst syndir heims og vél. Sálarprýði sé vor ein sakleysisins rósemd hrein. Þú vilt aðeins hreinu hjarta húsið opna föður bjarta. Elsku pabbi og fósturfaöir, við mun- um alla tið muna þig, svo blóðan og góðan. Hafðu hjartans þökk fyrir allt og guð styrki ömmu og afa, systkini þin og önnur ættmenni. Synir þinir og fósturdóttir. f Hinzta kveðja frá foreldrum og syst- kinum Með harm i hjarta höfuð mitt ég hneigi. Vor hugur leitar þin, ó drottinn minn. Lát engla þina leiða um ljóssins vegi vorn látna ástvin, beint i faðm þinn inn. Við þökkum guð minn, ljúfu liðnu árin, er léöur var hann okkur hér á jörð. Tak frá oss sorg og þerra tregatárin, hans trúu sál nú leiddu i englahjörð. Ó, dýrö sé þér, þú drottinn himinsala. Úr djúpum sálar okkar stigur nú vorvæn. óguðlát tungur sannleik tala og tæmdu ei saiir neinna kærleikstrú. 0, leið oss, faðir, lát ei okkur falla, en ljá oss öllum hendi þina nú. Nú sálir okkar hátt til himins kalla, gef hjörtum okkar kærleik, von og trú. Ó, veittu, guð minn, öllum sjúkum sálum þá sælu að trúa á mátt og kærleik þinn, leiö þær á braut, af breiðum vegi, hál- um, þá brátt mun læknast sál hver, drottinn minn. „Vor ævi stuttrar stundar, er stefnt til Drottins fundar” Ég vil með þessum linum kveðja þig Davið minn, með þökk fyrir allt það góöa, sem þú veittir bæði mér og öðrum af örlæti þínu. A fæðinarhátið frelsarans, flutti sál þin á braut til þess almættis sem við öll trúum á, þar hélzt þú heilög jól. Það er taknrænt fyrir þfna góðu og trúu sál. Þótt mér væri vel kunnugt um, að þú um árabil gengir ekki heill til skógar, varst búinn að vera veill fyrir hjarta siðustu árin, kom kallið svo snöggt, að ég hálf neitaði að trúa þvi. Það vilja oft verða fyrstu viðbrögð manns,þegar ungmenni og börn er maður þekkir vel, hverfa okkur sjónum i bili. Þótt þú ræddir litt veikindi þin, var það aðeins til aö firra þina nánustu áhyggjum. Þú varst alla tið frá þvi fyrsta að ég man þig, þá smábarn elskulegur góður og elskulegur viö allt og alla. Foreldrum varstu elskulegur sonur, drengjunum þinum og stjúpdóttur ástkær faðir, systkinum þínum sá góði bróðir sem þau gátu alltaf leitað til, I blíðu og striöu, Sesselju ömmu góður og elsku- legur dóttursonur, og barst nafnið hans afa þins með sóma, einnig mun Ólina amma þin muna þina ljúfu framkomu, sem og allir er kynntust þér. Ég get ekki imyndað mér annað en þin sakni allir er þig þekktu . Ég vil biðja góðan guð að þerra tregatár ástvina þinna. Þú varst léður þeim, og öðrum til að gleðja og þvi að alls alls staðar komst þú fram til góðs. Og þegar kallið kom var þinu dags- verki lokiö hér á jörð, þó aö ár þin 4 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.