Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1974, Blaðsíða 9

Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1974, Blaðsíða 9
Elín Jónsdóttir frá Kirkjuhúsi, Eyrarbakka Hinn 13. janúar s.l. andaðist að sjúkrahúsinu á Selfossi, Elin Jóns- dóttir frá Kirkjuhúsi á Eyarbakka. Elin hafði dvalið hjá börnum sinum siðustu árin ýmist i Reykjavik eða hér austan fjalls, við dvinandi heilsu samfara hárri elli, unz hún lézt rúmlega 87 ára gömul. Elin Jónsdóttir var Biskupstungna- barn, hún var fædd að Haukadal 10. október 1886. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Guðmann Sigurðsson og Vilborg Jónsdóttir, er þar bjuggu, þau voru einnig Biskupstungnabörn, hann frá Haukadal en hún frá Bryggju i sömu sveit. Siðar fluttu foreldrar Elinar að Láug við Geysi og þar ólst hún upp i hópi fjölmargra systkina, en þau urðu alls 15. Laugarheimilið var þekkt á þeim tima umfram aðra bæi, ekki aðeins fyrir hinn stóra hóp systkina, sem þar ólst upp og komst til manns, heldur einnig fyrir þjónustu við ferðamenn, erlenda sem innlenda, sem þar mun hafa verið veitt.og á timabili mun hafa verið þar greiðasala. Eftir að bræðurnir komust til þroska, fóru þeir að veita ferðamönnum leiðsögn, bæði um næsta nágrenni hins viðfræga Geysis og einnig inn á öræfinuppaf Biskupstungum og viðar. Geysir var þá og er reyndar enn einn viðfrægastur staður á tslandi og þekktur viða um lönd, svo að allflestir útlendingar; sem til landsins komu, gerðu sér ferð austur i Biskupstungur til að lita augum þetta sérstæða náttúrundur. Það lætur þvi að likum, að næsti bær við þennan stað, yrði að veita fyrirgreiðslu og aðstoð þeim ferðamönnum, sem komu gagngert til að sjá hann, enda var þá ekki komin sú aðstaða, sem nú er til þjónustu við ferðamenn. Af framansögðu er augljóst, að Elin hefur alizt upp við nokkuð fjöl- breyttara mannlif en algengt var um stúlkur á venjulegum sveitaheimilum þess tima.Auk þess sem hún mótaðist af siðum og venjum myndarlegs sveitaheimilis i stórum hópi kapp- gjarnra og félagslyndra syst-kina, varð hún fyrir snertingu við heims- menninguna, ef svo mætti segja, þar sem hinir fjölmörgu erlendu ferða- menn leituðu fyrirgreiðslu á heimili hennar og athugult auga unglingsins nam hin framandi áhrif, sem jafnan fylgja gestum,sem langt eru að komnir og bera að nokkru með sér svipmót sins heimaiands. Eftir að Elin náði þroska unglings- ins, var ekki lengur grundvöllur fyrir áframhaldandi dvöl i heimahúsum, hún varð að fara i atvinnuleit til vandalausra, svo sem var um flesta unglinga á þeim timum, ekki sizt ef systkinakópurinn var stór. Þá var ekki um fjölþættan starfsvettvang að ræða fyrir ungar stúlkur, helzt var að leita til Reykjavikur og taka að sér heimilisstörf. Þetta mun hún hafa stundað um nokkuð mörg ár, bæði i Reykjavik og viðar, meðal annars var henni mjög hugstæð dvöl á heimili Mattiasar Einarssonar læknis og hafði þaðan góðar minningar, sem entust henni lengi.Einnig dvaldi hún á tima- bili i Vestmannaeyjum og gerðist þar um skeið ráðskona á sjúkrahúsinu. Vinnulaun fyrir heimilisstörf voru ekki há á þessum tima, jafnvel svo að varla nægði fyrir brýnustu þörfum, svo sem eins og fatnaði. Elinu tókst þó að spara saman, á löngum tima og með ýtrustu sparsemi, fyrir skóla- kostnaði til eins vetrar náms á Hvitár- bakkaskóla. Það hafði verið draumur hennar frá ungum aldri að fá með einhverjum hætti svalað menntaþrá sinni, þó ekki væri nema að litlu einu, og með harðfylgi og einbeitni tókst að með þessum bætti. Þessarar skólavistar minntist Elin lengi og taldi sig hafa sótt þangað menntun og viðsýni, sem enzt hefði henni um langa ævi. Ekki varð um frekara nám að ræða hjá Elinu, sem hún hefði þó kosið, til þess voru hvorki efni né ástæður. Elin var prýðilega vel greind kona og unni hverskonar fróðleik og menningu, sérstaklega voru henni hugstæð ljóð góðskáldanna, sem hún mat að verðleikum.og ekki aðeins naut sjálfrar sin vegna, heldur hafði löngun og nokkra viðleitni til að kynna öðrum. Eftir skólavistina á Hvitárbakka heldur Elin þvi áfram þeim störfum, sem tiltæk voru stúlkum á þessum tima, hún berst austur i Landeyjar og gerist kaupakona hjá hjónunum i Gaularhólshjáleigu, Þorvarði Sigurðs- syni og Margréti Magnúsdóttur. Þetta varð henni giftusamleg kaupavinna, þar kynnist hún syni hjónanna, Valdimar, sem siðar varð maður hennar og æviförunautur, meðan hans naut við. Þau Valdimar og Elin giftust árið 1918, og hófu búskap að Gaularhóls- hjáleigu þetta eftirm innilega ár, harðinda, Kötlugoss og Spönskuveiki. Ekki fara þó sögur af öðru en að farsællega hafi farið um búskap þeirra hjóna þau 16 ár, sem þau bjuggu i Landeyjum, enda bæði ung og dugleg, auk þess stundaði Valdimar jafnan smiðar með búskapnum alla tið og sem aðalstarf siðar á ævinni. Hingað i sýsluna flytja þau 1934 og hófu búskap að Þórðarkoti i Sand- vikurhreppi og búa þar, unz þau flytja islendingaþættir 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.