Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1974, Síða 15

Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1974, Síða 15
sinum og létust með fárra ára milli- bili. Ólafur Þórlindsson og Þóra Stefáns- dóttir gengu i hjónaband haustið 1918 og tóku við þeim hluta jarðarinnar, sem foreldrar Þóru höfðu búið á áður, og bjuggu á móti Stefáni bróður henn- ar til ársins 1936, að hann flytur að Fagradal. Þá fá þau jörðina alla til umráða og munu hafa fest á henni kaup, en hún var áður kirkjujörð. Þórlindur faðir Ólafs á Hamri var, eins og áður er getið, hálfbróðir Stef- áns Sigurðssonar. Þeir voru samfeðra. Móðir Þórlindar hét Herdis. Þórlindur hafði fyrst búið að Viðinesi á Fossár- dal, siðar i Gautavik á Berufjarðar- strönd, og siðast i Hamarsseli. Kona hans hét Ingunn Björnsdóttir bónda á Hálsi og Halldóru Sigurðardóttur yngra i Hamarsseli, Antoniussonar. Föðurafi Björns 4 Hálsi var séra Sig- urður Vigfússon, sunnlenzkur að ætt, talinn vel gefinn maður, en úr hófi drykkfelldur. Hann hafði verið prestur á Hofi i Alftafirði i 7 ár og komið þang- að frá Skeggjastöðum á Langanesi, laust eftir 1790. Séra Sigurður var talinn hafa látizt af ofdrykkju á „plássinu”, sem svo var kallað, á Djúpavogi 1897. Kona hans var Guðrún Eymundsdóttir, frá Skálum á Langanesi. Þau eignuðust fjögur börn. Börn Þórlindar og Ingunnar hétu Sigurður, Jón, Stefán, Ólafur, Hall- dóra, Sigurbjörg og Herdis. Ekki eign- uðust þessi systkini niðja, nema Jón, sem var búsettur i Reykjavik, og Ólaf- ur, sem hér segir frá. Þegar þau Ólafur og Þóra tóku við búskap á Hamri, fengu þau fyrst innri hluta jarðarinnar til umráða. Hamar var engjalitil jörð og snögglend, og lentu þau þess vegna oft i engjahraki og þurftu að leita fanga flest árin, sem þau bjuggu á helmingi jarðarinnar, til ýmissa átta, um engjalán. Oft þurfti að sækja það langt, og var það bæði kostnaðarsamt og útheimti mikið erf- iði, sem Ólafur varð á sig að leggja við heyöflun þessa, og þess verra sem hann var ekki heilsuhraustur. En þar sem hann var hugrakkur og ákafa- maður um búskap, tókst honum furðu- fljótt að koma upp góðu fjárbúi. Hann var lika sérlega góður fjármaður og glöggur á fé, og þá ekki síður konan, sem var sérstaklega umhyggjusöm bæði i aðhlynningu og hjúkrun á skepnum, eins og stundum þurfti með á þessum timum. Eftir að Stefán fluttist i Fagradal og Ólafur fékk alla jörðina til umráða, stækkaði hann búið til muna. Jafn- framt jók hann ræktun ár frá ári, svo sem tök voru á, sérstaklega eftir að vinnuvélar komust i notkun. Mun hann islendingaþættir hafa verið búinn að rækta allt það land, sem ræktanlegt var með góðu * móti, þrátt fyrir hin þekktu kreppuár, sem riktu um árabil. Honum tókst að auka svo við bú sitt, að á siðari bú- skaparárum þeirra hjóna varð það eitt fjárflesta bú sveitarinnar. Sigurður, bróðir Ólafs dvaldist á heimili þeirra hjóna um árabil, með sinn eigin búskap. Hann átti allmargt fé, sem hann sá um, en að sjálfsögðu hefur heimilinu verið mikill styrkur að veru hans og störfum. Herdis, systir Ólafs, vann heimilinu einnig alla þeirra búskapartið. Eftir að heilsu þeirra hjóna fór að hraka fyrir aldurssakir, varð að draga saman bústofninn, og þar með að minnka öll umsvif, og gerðist það smátt og smátt. Þó höfðu þau nokkurt bú til hins siðasta, og nutu þá aðstoðar barna sinna o.fl. Lengi höfðu þau t.d. vetrarmann. Þá er þess að geta, að Kristin systir Þóru var hjá þeim á seinni árum, eftir að hún missti eiginmann sinn Svein Stefánsson, og var það mikill styrkur fyrir heimilið að fá hana, þvi börnin voru gift að heiman og komin i fastar stöður, og enginn til að taka þarna við um sinn. Alla tið var mjög gestkvæmt hjá þessum heiðurshjónum, og var öllum á þvi heimili tekið af mikilli vinsemd og hlýju. Þau Ólafur og Þóra bjuggu á Hamri i full 50 ár og eignuðust fimm börn, þrjá syni og tvær dætur. Börn þeirra voru þessi: 1. Stefán Steinar var þeirra elztur. Hann kvæntist ekki, fékk lömunar- veiki og lézt á fertugsaldri. 2. Jón. Hann er lögreglumaður á Eskifirði. Kona hans heitir Valdis Guðjónsdóttir. Þau eiga eitthvað af uppkomnum börnum. 3. Ingibjörg. Hún býr að Bragðavöll- um, næsta bæ við Hamar, og hennar maður er Jón Björnsson, frá Hofi i Alftafirði. Þau eiga tvær uppkomnar dætur. 4. Hrefna. Hún er gift og býr i Dölum vestur. Hennar maður heitir Steinólfur Lárusson, og eiga þau eitthvað af börnum. 5. örn er yngstur þeirra systkina. Hann var um skeið ráðunautur hjá Búnaðarfélagi Islands, og er nú vænt- anlegur ábúandi á Hamri. Hann á eina dóttur, barnunga. Ólafur á Hamri var maður jafnlynd- ur og léttur i skapi, ávallt hress i máli og glaðvær, hvort sem maður hitti hann heima eða að heiman. Hið sama mátti um Þóru segja, þótt hún væri e.t.v. hlédrægari. Hún var hæglát i fasi, prúð og orðvör, þægileg i við- móti og þó ræðin, þegar búið var að taka hana tali á annað borð. Bæði voru þau myndarleg i sjón, hávaxin og frið, og hún þrekvaxin með aldri. Nú eru þessi góðu og minnisstæðu hjón horfin af sjónvarsviðinu, en minningin lifir þótt maðurinn deyi — og trúin á lif að þessu loknu, þar sem vinir geti aftur fundizt. Þau létust með aðeins árs millibili, hann að Vifilsstöðum 1972, þá áttatiu og eins árs að aldri. Hún lézt á Nprð- fjarðarspitala 1973, 78 ára gömul, og hvila þau nú hlið við hlið i grafreit Djúpavogssóknar að Hermannastekk- um. Nú búa i gamla bænum á Hamri Sig- urðar bróðir Ólafs, orðinn rúmlega hálfniræður að aldri, og systir hans Herdis, sem er um sjötugt. Einnig Kristin systir Þóru, en hún mun vera hálfáttræð. Ég votta þeim, svo og börnum þeirra hjóna og öðrum ná- komnum ættingjum, samúð mína. - G.Ey. (Guðmundur Eyjólfsson frá Þvottá) n Valdimarsson Jón var maður gamansamur og skemmtilegur. Kimni hans var græskulaus og bar vitni um velvild hans til allra manna. Jón var tryggða- tröll vinum sinum og ættingjum. Þegar faðir hans var orðinn aldraður og sjúkur leið t.d. vart sá dagur, að Jón kæmi ekki i heimsókn til hans, en mjög kært var með þeim feðgum. Jón starfaði um langt skeið i Leik- félagi Húsavikur og var þar liðtækur starfskraftur sem og annars staðar. Hann var i Lionsklúbb Húsavikur og hann var áhugasamur jafnaðarmaður. A siðustu árum fór Jón tvivegis i heimsókn á fornar slóöir i Noregi. Varð það honum til mikillar ánægju ekki sizt þar er hann gat um leið kynnt fylgdarmönnum sinum fegurð landsins og ágæti fólksins, sem það byggir. Jón hugðist nota elliárin til þess að treysta enn betur sambandið við. vini sina i Noregi, með tiðari heimsóknum þangað, en forlögin komu i veg fyrir það. Ég og f jölskylda min áttum þvi láni að fagna að njóta vináttu Jóns Valdi- marssonar nú um nokkurra ára skeið. Ég kynntist Jóni i starfi, sem sam- vizkusömum og hæfum starfsmanni og utan þess sem skemmtilegum vini og góðum félaga. Nú þegar leiðir skilja þökkum v.ið fyrir ánægjulega samfylgd á lifsbrautinni um leið og við sendum eiginkonu, dætrum og systkin- um hans okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Björn Friðfinnsson. 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.