Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1974, Síða 16

Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1974, Síða 16
Jón Valdimarsson Siðan tslendingar og Norðmenn að- greindust i tvær þjóðir hefur sam- bandið á milli þeirra aldrei rofnað og frændsemin verið ræktuð með báðum. Þessi frændsemiskennd hefur bundið vináttu þjóðanna órofa böndum i bliðu og striðu, og þegar óvæntir erfiðleikar af völdum styrjaldar eða náttúruham- fara hafa steðjað að annarri þjóðinni, hefur það vakið þær öldur samúðar og hjálparhugs með hinni, að sliks munu fá dæmi á jarðkringlunni. t Noregi varð þjóðleg vakning i byrj- un siðustu aldar og árangur þeirrar vakningar varð efalaust ein helzta kveikja islenzkrar þjóðarvakningar. tslendingar fylgdust með þvi, hvernig Norðmenn risu upp úr niðurlægingu og hvernig þeim tókst á skömmum tima að tileinka sér nýja i þvi skyni að bæta land sitt og atvinnuvegi, skapa trausta þjóðmenningu og auka velsæld almennings. Eins og á vikingaöld leitaði norsk at- hafnasemi brátt út fyrir landsteinana. Norðmenn urðu frumkvöðlar að sigl- ingum, fiskveiðum og hvalveiðum viða um lönd. Þeir könnuðu ókunna stigu i heimskautalöndunum og urðu um margt fyrirmynd og stolt Norður- landaþjóðanna. Hér á landi hófu norskir athafna- menn byltingu á sviði atvinnulifsins um siðustu aldamót með afskiptum sinum af sildveiðum og sildariðnaði og með uppbyggingu hvalveiðanna. Ný verkkunnátta barst til landsins, sem gerði Islendingum kleift að auka nýt- ingu náttúrugæða landsins til hagsbóta fyrir alla. 1 kjölfar aukinna samskipta Islendinga og Norðmanna bötnuðu samgöngur milli þjóðanna og hófust nú á nýján leik ferðir ungra og metnaðargjarnra tslendinga til náms og starfa i Noregi. Menn héldu yfir hafið til þess að afla sér verkkunnáttu, til þess að nema i búnaðarskólum eða til þess að sækja norska lýðháskóla.. 1 kjölfar norskrar athafnasemi á tslandi voru byggð mörg vegleg hús úr norsku timbri viösvegar um land og munu i þvi sambandi hafa tekizt góð kynni með islenzkum og norskum húsa- smiðum. Upp úr aldamótunum fór ungur tré- smiður, Valdimar Jósafatsson að nafni, ættaður úr Reykjadal i S. Þing. til Noregs i þvi skyni að afla sér þar þekkingar og starfsreynslu. Valdimar festi ráð sitt ytra og kvæntist norskri konu, Olene Olsen að nafni. Reistu þau bú sitt iStavanger. Þau hjónin eignuð- ust tvo syni, Jóri fæddan 29.12. 1906 og Olav, sem var nokkru yngri. Fermingarár Jóns andaðist Olene Olsen og árið 1924 fluttist Valdimar heim til íslands með syni sina báða og settist að á.Húsavik. Jón var þá 17 ára og dvaldi hann nú með föður sinum i 2 ár, en að svo búnu hélt hann á ný til Noregs og dvaldi þar til ársins 1928 er hann sneri aftur til Húsavikur. Faðir hans var þá kvæntur á nýjan leik Arninu Jónsdóttur, sem verið hafði ekkja eftir Aðalstein Isfjörð og átti úr þvi hjónabandi 2 syni, þá Jón og Sigurpál. Þau Arnina og Valdimar eignuðust 4 börn, dæturnar Hólmfriði, Steinunni og Aslaugu og soninn Aðal- stein Hilmar. Með barnahópnum öll- um bundust traust bönd, sem varað hafa, en þrjú eru nú komin yfir móð- una miklu. Olav fórst 1943 með norsku skipi, sem þýzkur kafbátur grandaði, en hann var þá loftskeytamaður. Jón Isfjörð lézt á Norðfirði 1971 og 2. janú- ar s.l. varð Jón Valdimarsson bráð- kvaddur við starf sitt á Húsavik. Ari eftir siðari heimkomuna frá Noregi eða árið 1929 kvæntist Jón Valdimarsson Sigurhönnu Sigur- björnsdóttur frá Bangastöðum á Tjör- nesi og bjuggu þau alla sina búskapar- tið á Húsavik. Þau eignuðust 2 dætur, Olene fædda 1932, giftri Einari Fr. Jó- hannessyni byggingarmeistara og Þórunni fædda 1940 giftri Jóni Gunn arssyni bifreiðarstjóra. Eru dæturn- ar báðar búsettar á Húsavik. Jón og Sigurhanna eignuðust gott og hlýlegt heimili, sem Jón ræktaði og unni, en fyrr á árum mátti hann oft afla fjöl- skyldunni lifsviðurværis með þvi að sækja atvinnu til annarra staða. Jón var traustur, áreiðanlegur og verklaginn og stundaði hann framan af ævi ýmis almenn störf, sem buðust. Hann var sjómaður, starfaði við sildarbræðslu á Raufarhöfn, hitaveitu- lagnir i Reykjavik, flugvallargerð i Kaldaðarnesi og þannig mætti lengi telja. Alls staðar var hann eftirsóttur til verka og honum féll ekki verk úr hendi, þótt litla atvinnu væri að fá heima fyrir. Þegar lögð var raflina frá Laxár- virkjun til Húsavikur 1946-1947 var Jón fenginn til að vinna að þvi verki, en forstöðumaður þess mun upphaflega átt að vera Norðmaður, en sá fórst i flugslysinu mikla i Héðinsfirði. Skömmu seinan hóf Jón störf við breytingar á raflögnum og rafkertum á Húsavik og vann við það um nokkurt skeið. Hann stofnaði þá steinasteypu- fyrirtæki á Húsavik ásamt fleiri og vann við það, unz hann gerðist fastur starfsmaður Rafveitu Húsavikur og starfaði þar til dauðadags eða um 20 ára skeið. Jón Valdimarsson var i senn góður sonur Noregs og Islands. Þess gætti jafnan nokkuð á mæli hans, að norska hafði verið hans móðurmál. Það var einhver skemmtilegur og notalegur hreimur á islenzkunni enda fékk Jón meðal Húsvikinga viðurnefnið „norski” eða „norsi”, væntanlega til aðgreiningar frá öðrum þeim Jónum, sem fylla siður manntalsskrárinnar á landi hér. Meðan norsk sildveiðiskip stunduðu veiðar við Norðurland var Jón lika eins konar óopinber ræðismaður Norð- manna. Heimili hans var jafnan Norð- mönnum opiö og hann eignaðist mik- inn fjölda af vinum og kunningjum meðal áhafna sildveiðiskipanna. Suma þeirra þekkti hann lika frá fornu fari, eins og t.d. þegar hálf áhöfnin á norsku skipi, er til Húasavikur kom, var skip- uð fermingarbræðrum Jóns. Frh. á bls. 15 16 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.