Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Síða 2

Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Síða 2
Ég veit að Margrét var einlæg i þessum orðum sinum. Að eðli hafði Margrét stórt skap og gat hUn beitt þvi, ef mikið lá við, einkum þegar taðan eða dýrin hennar áttu hlut að máli. Litillátari og þakklátari manneskju hef ég þó ekki kynnzt en Margréti i Vatnsskógum nema væri það amma min. Húsbændum og búendum á ná- grannabæjum hennar Viðilæk, Haug- um og Borg þakkar Margrét af einlæg- um huga fyrir mikla og góða hjálp i gegnum árin, einkum árin seinustu. Ekki er til betra hjúkrunarfólk en á íslandi, það þekkja margir bæði sjúkir og heilbrigðir. Þvi kynntist Margrét seinustu stundir sinar og þvi er einlæg- lega þakkað fyrir mjög góða að- hlynningu á Landspitalanum. Guðrún Vigfúsdóttir ættuð úr Skriðdalnum sýndi Margréti einstaka umhyggju á dánarbeði hennar og það gerði einnig frænka hennar, Laufey, og einnig áður. Margréti þakka ég með tárvotum augum fyrir allt, sem hún var mér i lifi sinu. Margrét var mikil og góð kona og höfðingi stór heim að sækja. Þótt fengi hún aðstoð, þá greiddi hún slikt tiðum mjög riflega. ,,Hún var alltaf meiri veitandi en þiggjandi i sinni sveit,” sagði fyrrverandi kaupfélagsstjóri Björn Stefánsson eitt sinn við mig. Ég þakka af hrærðum hug fyrir börn min og það gerir einnig Laufey konan min fyrir það, sem Margrét veitti börnunum okkar — þar á meðal fyrir áfirnar úr gamla strokknum hennar Margrétar, Smjör hennar, skyr og heimatilbúnu ostana, að ógleymdu is- lenzka grasateinu hennar. Margrét Halldórsdóttir húsfreyja i Vatnsskógum er að öllum likindum seinasta búkona á íslandi, sem bjó til sitt eigið skyr, eigin osta og smjör og hvar á Islandi fengu menn hertan silung nema hjá Margréti i Vatnsskóg- um. ,,Nú hef ég borðaö mat, sem ég vissi ekki að væri til,” sagði séra Pétur i Vallanesi, er hann heimsótti Margréti á prestsárum sinum á Héraði og fékk þar framborinn m.a. hertan silung. Við drjúpum höfði i dag með lotningu viö kistu Margrétar I Þing- múlakirkjugarði — tár okkar ná ekki að endurlifga birkikjarrið og berjalyng úr Vatnsskógalandi, sem fylgir kistu hennar til móðurmoldar i dag — en megi bænir hennar og óskir rætast, að af lifi birkiskógur hennar vélgröfur og vegagerð og „skóg” gaddavirs- klæddra sumarbústaða. Vinir hennar og ættingjar biðja al- máttugan Guð að vera nálægan henni 2 Valdimar B. V aldimarsson frá Hnífsdal Og við settumst við veginn tveir ferðlúnir framandi menn, Eins og fuglar, sem þöndu sinn væng yfir úthöfin breið Hve gott er að hvila sig rótt, eins og lokiðsé leið, þótt langur og eilifur gangur biði manns enn (Steinn Steinarr) F. 11.9 1888 D. 18.7 1974. Fyrir réttum hálfum fjórða tug ára, á þeim dögum, er skriðdrekasveitir Hitlers heitins voru að brytja niður hið fræga pólska riddaralið, birtust á Islenzkum bókamarkaði fáeinir isfirzkir sagnaþættir eftir undir- ritaðan. Eins og gengur oggeristiitu ekki allir bækling þann jafnhýru auga. Hvað um það, slikt fá þeir, sem sölin eta. Allnokkru siðar, Hklega eitthvað i kringum hinn örlagaþrungna svo- nefnda D-dag Engilsaxa og banda- manna þeirra, bárust mér vingjarnleg viðurkenningarorð um bækling minn, frá mér áður ókunnum Norður- nú, er hún hverfur á fund móður sinnar, litla drengsins og annarra ætt- ingja. Eitt það seinasta, sem Margrét bað mig fyrir, var bréfmiði ritaður af henni á Landspitalanum skömmu áöur en hún kvaddi og bað hún mig um að láta hann fjúka yfir landið sitt. Mar- grét ritaði sem yfirskrift á bréfmið- ann: Kveðja heim. Upphafið er svo:: „Faðir og vinur alis, sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu faðir blómin hér, blessaðu þau i hverri sveit.” Lokaoðin, sem Margrét skrifar á miðann sinn voru: „Drottinn blessi mig og mína og bæinn minn. Guði sé lof og þökk fyrir allt.” Jón Magnússon. ísfirðingi, Valdimar Birni Valdimars- syni frá Hnifsdal. Þegar ég svo fyrir tæpum tuttugu árum settist að hér syðra, var mér bæöi gagn og gaman að kynnast per- sónulega þessum aldna Hnifsdælingi, þótt það að visu væri einkum i sim- tölum, og fyrr á árum einstöku sinnum niðri i Safnahúsi. Þó að við- kynningarstundir okkar yrðu bæði stuttar og strjálar, gat mér ekki dulizt frábært minni hans og fróðleikur i ýmsum greinum einkum að þvi er snerti vestfirzkar ættir atvinnuhætti og persónusögu Vestfjarða á 19 öld. Lengi mun Valdimars Björns verða minnzt I sambandi viö ritið „Vest- firzkar ættir”, sem út kom i fjórum stórum bindum á árunum 1959-1968. ásamt miklum fjölda mynda manna og staða vestur þar. Höfundar þessa mikla ritverks er þó ekki Valdimar einn, heldur hafa fleiri fróðir menn lagt þar hönd á plóg, og er Ari kennari Gislason annar aðalhöfundur verks- ins. Hitt mun aftur á móti vera stað- reynd, að án aðildar og forgöngu Valdimars, hvað sem öllum höfund- skap liður, hefði rit þetta aldrei séð ísiendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.