Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Síða 5
hefur í tímaritinu Goðasteini lýst vel þessum erfiðu limum i sögu kaup- félagsins: „Guðbrandur Magnússon veitti K.H.L. forstöðu á frumbýlingsárum þess. Hann átti við fjölþætt vandamál að etja i þvi starfi sakir samgöngu- og flutningaerfiðleika, dýrtíðar og markaðshruns, skulda heima fyrir og út á við, vantrúar ýmissa manna á mál staðnum og fráfalls frá félaginu, þegar verst gegndi. En Guðbrandur þoldi vel, og þótt móti blési á stundum. Hann leiddi félagið yfir erfiðasta hjallann og sigraðist á fjölmörgum erfiðleikum með dugnaði og ráðsnilld, bjartsýni og framfarahug. Fyrir Rangæinga og samvinnuhugsjónina vann hann stórmerkilegt starf, sem seintmun fullmetið. Og að mörgu leyti naut Guðbrandur sín vel i kauprélags- stjórastarfinu. Honum segist sjálfum svo frá, að á langri, viðburðarikri og giftudrjúgri ævi finnist sér, þrátt fyrir allt, hvila einna skærust birta yfir árunum sinum i Hallgeirsey. Hann og samstarfsmenn hans unnu fyrir þann málstað og trúðu á þá hugsjón, sem hvort tveggja hefur átt meiri þátt i auknum framförum, bættum hag og vaxandi þjóðmenningu en flest annað i landi okkar á siðari timum.” Guðbrandur var honum frábær föru- nautur og styrk stoð. Samstarfsmenn i kaupfélaginu traustir menn og áhuga- samir. Ég man bezt Gunnar Vigfússon sem var einstakur starfsmaður, jafn- vigur á afgreiðslu og skrifstofustörf Og ekki var hann svikinn 25 aura skammturinn af brjóstsykrinum góða i stóru stömpunum! Guöbrandur og Matthildur voru viöa kunn að greiðvikni og gestrisni — Þaö bar til eitt sinn, að við biðum nokkrir Landeyingar lengi dags, að sjór yrði fær til útskipunar á ull. Var okkur boðið i bæinn og veittur góður beini að vanda. Þar voru meðal gesta tveir ungir byltingarsinnaðir menn ,,að sunnan”. Varð annar vel metinn prestur, hinn heildsali. Var margt rætt um þjóðfélagsvandamálin, en svo vék Guðbrandur talinu að skáldskap. Hann hafði til að bera mikla frásagnargleði, og sagði frábærlega vel frá. Hann flutti okkur nú ritdóm sinn i ljóði um Kvæði Daviðs Stefánssonar. Bændur glottu, sögðu fátt. Jæja, var Guöbrandur nú farinn að yrkja. Mér fannst þetta um of óandlegur skáld- skapur, en hneigði ekki orð til enda mun það ekki hafa þótt hæfa. En ritdóminn, sem hann sendi skáldinu, lærði ég, og hef kunnaö siðan. Hann er svolátandi: Hafðu þökk fyrir þessi kvæði, þau eru andleg leðurskæði- sem endast á við önnur tvenn. Af útnáranum ertu að sniða — ekki skaltu neinu kviða. Hrygglengjan er eftir enn. Stundum hefur það hvarflað að mér, er ég hef lesið langlokuritdóma, að ég hafi ekki kunnað að meta þennan rit- do'm Guðbrands, sem skyldi, liklega gagnorðasti ritdómur islenzkur og býsna sannur. Á Hallgeirseyjarárunum gaf Guðbrandur út blað um skeið. Það hét „Augnablikið”, fjölritað félags- mannablað K.H.L. Guðbrandur skipaði sér i lið þeirra manna, sem hófu framfarasókn i landinu i byrjun aldar, ekki sizt i búnaði, og samgöngumálum. Hann var einn brautryðjenda ungmenna- félagsskaparins, sem hafði mikil áhrif, efldi bjartsýni og sóknarhug. En maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. Guðbrandur sá af hyggjuviti og reynslu, að hinar „andlegu sam- göngur” þurftu lika að vera i lagi. Á ferð sinni suður i lönd nokkru fyrir 1930 sannfærðist Guðbrandur um, að ekki er nóg að hafa góð samgöngutæki. Málafjöldinn olli erfiðleikum i sam- skiptum manna af ólikum þjóðernum, og eins og hann komst að orði i Blaða- mannabókinni 1947: „Hinar andlegu samgöngur höfðu staðið i stað, og þeim jafnvel hrakað, meðan hverskonar tækni gjörði æ minna úr öllum vega- lengdum og hrærði mannskapnum saman frá hinum ýmsu þjóðlöndum.” Guðbrandur var hugsjónamaður, en hann var lika raunsær. A næsta leiti var þúsund ára afmæli þingsins. Væri ekki kjörið tækifæri fyrir elzta þjóðþing i heimi að vekja athygli um- heimsins á markverðu máli, samþykkja að gera auðvelt tilbúið mál, t.d. esperanto, að skyldunáms- grein i öllum barnaskólum landsins og hvetja önnur þjóðþing til hins sama? Guðbrandur ræddi málið við þrjá kunna alþingismenn og stjórnmála- foringja, sinn i hvert sinn. Það bar litinn árangur, tregðulögmálið var samt við sig. Svörin minna nokkuð á orð Hrisbrúarbónda i Innansveitar- króniku Laxness: „Viskum ekki gefa um það. Viskum vera að tátla hross - hárið okkar.” Guðbrandur Magnússon lifði langa og viðburðarika æfi. Hann var m.a. prentari, stjórnarráðsritari, fyrsti rit- stjóri Timans, bóndi undir Eyjafjöll- um um skeið, kaupfélagsstjóri og bóndi i Landeyjum átta ár, siðast for- stjóri umfangsmikils rikisfyrirtækis fjölda ára. Og nú, þegar hann er horfinn af þessu jarðlifsplani, þá finnst mér sem hann hafi lifað og starfað i anda Hávamála: „glaðr ok reifr, skyli gumna hverr, unz sinn biðr bana.” Haraldur Guðnason. Stígrún Helga Stígsdóttir Hinzta kveðja f. 11. júli 1905 d. 22. maí 1974 Þér gaf lifið þrek og styrk þor og hjartahlýju, þú þvi hverju — vökul, virk, vannst að starfi þinu. Misjöfn jafnan marka spor menn á lifsins vegi. Þin voru æ sem varmhlýtt vor virk að hinzta degi. Út á ókunn lifsins lönd leiðir allra venda. Þú munt og af þeirri strönd þrótt til vina senda. HjörturBjörnsson íslendingaþættir 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.